Á tali hjá Hemma Gunn 1987-1988

30. nóvember 1988

Í þættinum ræðir Hermann við Guðfreð Jóhannesson, sigurvegara í grettukeppni árið 1988, sem sýnir hina frægu sigurgrettu. Andrea Gylfadóttir flytur blúslag og Hrafnkell Helgason, læknir á Vífilstöðum, tekur þátt í lokaspurningaleik úr Sturlungu og svarar spurningunum af mikilli snilld. Stefán Hilmarsson og Sálin hans Jóns míns flytja lagið Þig bara þig og Hermann minnir á brandarasamkeppni þáttarins. Falin myndavél er á sínum stað þar sem símaklefi er settur upp í Kringlunni og reynt lokka fólk inn í hann. Bjartmar Guðlaugsson kemur í spjall og flytur lagið Skáldið, og í máli vikunnar ræðir Marteinn Thorarensen, í túlkun Júlíusar Brjánssonar, um áfengiskaup sín. Karlakórinn Fóstbræður flytur lagið Söknuður eftir Jóhann Helgason, og lokum kemur Valgeir Guðjónsson í heimsókn, þar sem Elsa Lund lætur óvænt sjá sig áður en Valgeir flytur lagasyrpu og lagið Frændi.

Þátturinn var fyrst á dagskrá 30. nóvember 1988.

Birt

17. apríl 2019

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Á tali hjá Hemma Gunn 1987-1988

Skemmtiþáttur þar sem Hemmi Gunn tekur á móti góðum gestum í sjónvarpssal. Slegið er á létta strengi, stiginn dans og sungið. Hljómsveit Magnúsar Kjartanssonar leikur af fingrum fram. Stjórn útsendingar: Björn Emilsson.

Þættir

,