Á tali hjá Hemma Gunn 1987-1988

23. mars 1988

Í þættinum kynnir Hemmi Gunn efni kvöldsins og fær í heimsókn söngkonuna Rut Reginalds, sem spjallar við hann og flytur lagið Ó Guð viltu gefa mér eftir Rúnar Þór Pétursson. Þorsteinn Pálsson, forsætisráðherra, kemur í sófann og reynir giska á „pokamanninn“, sem reynist vera Þórhallur Sigurðsson (Laddi). Hemmi ræðir einnig við harmonikkuleikarann Illuga Þórarinsson, sem flytur lag á nikkuna með hljómsveitinni, og vaxtaræktarmenn stíga á svið og sýna pósur við undirleik tónlistar. Jóhannes Kristjánsson bregður sér í gervi Þórarins V. Þórarinssonar, dansarar frá Dansskóla Auðar Haralds sýna kúbanska rúmbu og Anna Margrét Kaldalóns syngur lagið Elín Helena. Dúóið Flass flytur lag með Hauki Haukssyni og Einari Oddssyni, og Jón B. Gunnlaugsson kemur í spjall og flytur gamanmál. Þá koma fram grænlenskir listamenn með trumbuslætti og gítarsöng, áður en Eiríkur Hauksson ræðir við Hemma og flytur lagið Delilah við undirleik hljómsveitarinnar.

Þátturinn var fyrst á dagskrá 23. mars 1988.

Birt

27. mars 2019

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Á tali hjá Hemma Gunn 1987-1988

Skemmtiþáttur þar sem Hemmi Gunn tekur á móti góðum gestum í sjónvarpssal. Slegið er á létta strengi, stiginn dans og sungið. Hljómsveit Magnúsar Kjartanssonar leikur af fingrum fram. Stjórn útsendingar: Björn Emilsson.

Þættir

,