Á tali hjá Hemma Gunn 1987-1988

27. febrúar 1988

Í þættinum ræðir Hemmi Gunn við söngvarann Kristinn Hallsson, sem flytur lagið Tondeleyjó eftir Sigfús Halldórsson við undirleik hljómsveitarinnar. Valgerður Sverrisdóttir alþingismaður kemur í spjall og reynir þekkja „pokamanninn“, sem reynist vera Ómar Ragnarsson. Pálmi Gunnarsson syngur lagið Ég elska þig enn eftir Magnús Eiríksson, og tveir strákar í gervum uppa og pönkara ræða við Hemma um viðhorf unglinga. Hafsteinn Hafsteinsson og Guðmundur Jónsson flytja lag úr kvikmyndinni Fame, og Jóhannes Kristjánsson kemur í gervi Halldórs Ásgrímssonar sjávarútvegsráðherra og ræðir við Hemma um nýafstaðið hvalaþing. Tónlistarhópurinn Classic Nouveau flytur Summertime eftir George Gershwin, og Hemmi kynnir einnig undankeppni fyrir söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva þar sem höfundar laganna syngja saman Þorraþræl. Aflraunamaðurinn Njáll Torfason sýnir krafta sína á sviðinu, og lokum syngur bandaríski söngvarinn Tommy Hunt lagið New York, New York áður en Hemmi kveður áhorfendur og greinir frá úrslitum í skák Jóhanns Hjartarsonar og Viktors Kortsjnoj.

Þátturinn var fyrst á dagskrá 27. febrúar 1988

Birt

27. feb. 2019

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Á tali hjá Hemma Gunn 1987-1988

Skemmtiþáttur þar sem Hemmi Gunn tekur á móti góðum gestum í sjónvarpssal. Slegið er á létta strengi, stiginn dans og sungið. Hljómsveit Magnúsar Kjartanssonar leikur af fingrum fram. Stjórn útsendingar: Björn Emilsson.

Þættir

,