Á tali hjá Hemma Gunn 1987-1988

28. október 1987

Í þættinum fær Hemmi Gunn til sín söngvarann Hörð Torfason, sem ræðir við Hemma og flytur eitt lag. Jón Baldvin Hannibalsson kemur í þáttinn til reyna þekkja „pokamanninn“, sem reynist vera Bjarni Arason. Dansarar frá Djazzsporinu, ásamt förðunarmeisturum úr Förðunarfélagi Íslands, sýna sérstakt dansatriði og síðan ræðir Hemmi við leikarann Svein M. Eiðsson, sem syngur lagið Hægt og hljótt við eigin texta. Í gestaþraut reyna þrír áhorfendur þekkja lagabúta sem hljómsveitin leikur, og í skemmtiatriði fjalla Örn Árnason og Tinna Gunnlaugsdóttir með gamansömum hætti um innflutning á taílenskum konum. Ríó tríó kemur í heimsókn, spjallar við Hemma og flytur lögin Sigling og Sprettur, áður en Hemmi kveður áhorfendur í lok þáttar.

Birt

9. jan. 2019

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Á tali hjá Hemma Gunn 1987-1988

Skemmtiþáttur þar sem Hemmi Gunn tekur á móti góðum gestum í sjónvarpssal. Slegið er á létta strengi, stiginn dans og sungið. Hljómsveit Magnúsar Kjartanssonar leikur af fingrum fram. Stjórn útsendingar: Björn Emilsson.

Þættir

,