22:00
Vitjanir (5 af 8)
5. Dansa þau vikivaka
Íslensk, leikin þáttaröð um bráðalækninn Kristínu sem flytur með unglingsdóttur sinni heim til foreldra sinna í lítið sjávarþorp eftir framhjáhald eiginmannsins. Kristín, sem er raunsæ og jarðbundin, kemst fljótt að því að hún fer langt út fyrir þægindarammann í samskiptum við miðilinn móður sína og neyðist til að horfast í augu við drauga fortíðar. Leikstjóri: Eva Sigurðardóttir. Aðalhlutverk: Sara Dögg Ásgeirsdóttir, Helga E. Jónsdóttir, Katla Njálsdóttir og Jói Jóhannsson. Atriði í þáttunum eru ekki við hæfi ungra barna.
Kristín hefur í mörgu að snúast þegar hópur fólks sýnir sérkennileg sjúkdómseinkenni og grunur vaknar að fólkið sé með smitsjúkdóm. Á sama tíma berst Ragnar við tilfinningar sínar í garð Kristínar.
Er aðgengilegt til 28. ágúst 2027.
Lengd: 50 mín.
Aðgengilegt eingöngu á Íslandi.
e
Dagskrárliðurinn er textaður.
