Spurningakeppni framhaldsskólanna frá 1991. Spyrill: Stefán Jón Hafstein. Dómari: Ragnheiður Erla Bjarnadóttir. Stigavörður Oddný Eir Ævarsdóttir. Dagskrárgerð: Andrés Indriðason.
Að þessu sinni mætast lið Menntaskólans á Akureyri og Verkmenntaskólans á Akureyri. Lið Menntaskólans á Akureyri skipa Finnur Friðriksson, Jón Pálmi Óskarsson og Magnús Teitsson. Lið Verkmenntaskólans á Akureyri skipa Gísli Magnússon, Pétur Maack Þorsteinsson og Heiðbjört Ida Friðriksdóttir.
Sigmar Guðmundsson fær til sín góða gesti úr öllum áttum og ræðir við þá undir fjögur augu. Gestirnir eiga það sameiginlegt að hafa áhugaverða sögu að segja. Dagskrárgerð: Salóme Þorkelsdóttir.
Sigmar ræðir við Einar Þór Jónsson sem var fyrsti íslenski homminn sem greindi frá því opinberlega að hann væri HIV smitaður árið 1992. Hann horfði á eftir vinum sínum deyja og beið sjálfur dauðans í mörg ár á stöðugum flótta en HIV lyfin björguðu lífi hans. Hann er einnig brautryðjandi og baráttumaður sem lengi þurfti að berjast fyrir viðurkenningu og því að fá að tilheyra í samfélagi sem vildi frekar fordæma og útskúfa.
Matreiðsluþættir þar sem Solla Eiríks heimsækir konur sem hafa áratugareynslu af matargerð. Hún kíkir í uppskriftabækur þeirra og lærir að elda rétti sem þær hafa matreitt á sinn einstaka hátt í fjölda ára. Í framhaldinu býður hún konunum heim til sín og endurgerir uppskriftirnar með aðstoð þeirra, en skiptir út dýraafurðum fyrir hráefni úr náttúrunni. Leikstjóri: Sunneva Ása Weisshappel. Framleiðsla: RVK Studios.
Uppskriftirnar má finna hér: https://www.ruv.is/frettir/tag/uppskriftabokin
Solla Eiríks heimsækir Ragnheiði sem kennir okkur að elda plokkfisk og kleinur. Einnig hittir hún þau Eydísi og Hinrik sem fræða hana um þaratínslu og matþörunga. Við lærum líka að búa til möndlumjólk.

Velkomin til Eplabæjar. Eplabær er svo daufur og óspennandi að hann hefur verið tekinn út af landakortum. En ef betur er að gáð fela jafnvel mestu leiðindin í sér ævintýri. Stundum getur ómerkilegasti staðurinn orðið vettvangur stórkostlegra uppátækja – ef ímyndunaraflið fær að ráða.
Flóra er níu ára og finnur gat í limgerðinu úti í garði. Hún skríður í gegn og er skyndilega stödd í skóginum endalausa – galdraheimi þar sem allt getur gerst. Þar ráfa um skrítnar og stórkostlegar verur. Þær lenda í ýmiss konar vandræðum og enginn getur hjálpað þeim – nema kannski Flóra sjálf?
Þegar afi ykkar er búin að þjálfa ykkur sem skrímslaveiðimenn, þá er ekkert annað í stöðunni en að veiða öll skrímslin! Það er þó eitt vandamál, krakkarnir elska skrímslin og vilja helst bara bjarga þeim. Það geta þau gert á meðan afi blundar, eða hvað?
Orðbragð er skemmtiþáttur þar sem Bragi Valdimar Skúlason og Brynja Þorgeirsdóttir snúa upp á íslenska tungumálið, teygja það, toga og umfaðma, knúsa og blása í það lífi. Umsjónarmenn eru Bragi Valdimar Skúlason og Brynja Þorgeirsdóttir. Dagskrárgerð: Konráð Pálmason.
Í þessum þætti hittum við mögulega síðasta flámælta manninn á Íslandi - og skoðum íslenskar mállýskur, sem eru óðum að hverfa. Svo er það veggjakrotið. Frá upphafi mannkyns hefur fólk dundað sér við að krota eitthvað sniðugt á veggi. Óþekktarangi merkti sér vegg í Skálholti fyrir mörg hundruð árum, og við kíkjum líka á elsta krot sem fundist hefur á Íslandi. Það er á 1000 ára gömlum snældusnúð: „Vilborg á mig“. Við ætlum að fyrirkoma einu útjöskuðu orði, málverið hans Braga verður á sínum stað og við veljum tíu undarlegustu hljómsveitanöfnin.
Íslenskir heimildarþættir um ferðalag Hringfarans Kristjáns Gíslasonar og Ásdísar Rósu konu hans. Síðla árs 2022 ferðuðust þau á mótorhjóli um töfraheima Patagóníu og Chile. Krefjandi aðstæður gerðu ferðalagið erfiðara en þau gerðu ráð fyrir en upp úr stendur mikilfengleg náttúra auk heillandi menningar og mannlífs.
Kristján og Ásdís Rósa glíma við ofsavind, erfiða fjallvegi og fjallaskörð þar sem vegirnir eru nýkomnir undan snjóþungum vetrinum. Þegar þau koma úr óbyggðunum taka við vatna- og vínræktarhéruð sem skarta eldfjöllum og stöðuvötnum. Ævintýrið tekur óvænta stefnu þegar hjónunum býðst að skoða landið úr lofti.

Finnlands-sænskir þættir frá 2022. Vinkonurnar Tara og Malin verja sumri í sumarhúsi í sænsku sveitinni. Þar njóta þær náttúrunnar, elda mat og kryfja alls kyns málefni á borð við vináttu, líkamsímynd, átraskanir og kulnun.
Sænsk leikin þáttaröð frá 2026. Lögfræðingar á lögmannsstofunni Matsson og Moradi takast á við stór og flókin mál þar sem mikið er í húfi. Nýliðinn Tilde stígur sín fyrstu skref inn í þennan harða og miskunnarlausa heim þar sem mörkin á milli réttlætis og góðs árangurs verða sífellt óljósari. Aðalhlutverk: Arvin Kananian, Björn Bengtsson og Kit Walker Johansson. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 16 ára.

Heimildarmynd frá 1991 sem veitir innsýn í gerð stórmyndarinnar Apocolypse Now eftir Francis Ford Coppola. Erfiðleikar tengdir handriti, kvikmyndatökum, fjárhagsáætlun og leikaravali gerðu það að verkum að framleiðsluferlið varð leikstjóranum nánast ofviða. Leikstjórar: Fax Bahr og George Hickenlooper. Myndin er ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
Önnur þáttaröð þessara bresku spennuþátta um rannsóknarlögreglukonuna Rachitu Ray. Þegar hjúkrunarfræðingur og foringi alræmdra glæpasamtaka eru myrt í skotárás við sjúkrahús í Birmingham tekur Ray við rannsókn málsins. Í fyrstu lítur þetta út fyrir að vera átök glæpagengja en eftir því sem rannsókninni vindur áfram kemur í ljós að málið er mun margslungnara. Aðalhlutverk: Parminder Nagra, Gemma Whelan, Patrick Baladi og Jan Puleston-Davies. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.