13:35
Kastljós
Persónunjósnir og lögreglan, menningarfjölskylda

Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Baldvin Þór Bergsson, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Óðinn Svan Óðinsson, Urður Örlygsdóttir og Viktoría Hermannsdóttir.

Umfjöllun Kveiks í gær um umfangsmiklar persónunjósnir á vegum auðmannsins Björgólfs Thors Björgólfssonar hafa vakið sterk viðbrögð - ekki síst vegna þáttöku fyrrverandi og starfandi lögreglumanna í þeim. Fjölnir Sæmundsson, formaður Landssambands lögreglumanna, og Margrét Valdimarsdóttir, dósent í félags- og afbrotafræði við Háskóla Íslands, voru gestir Kastljóss.

Við höldum líka áfram syrpu þar sem fólk heimsækir nokkra áhugaverða viðburði innan einnar viku og deilir svo reynslunni með áhorfendum. Nú var röðin komin að Elísu og sonum hennar, Úlfi og Elís Krumma, sem fóru á menningarflakk.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 24 mín.
e
Endursýnt.
Dagskrárliðurinn er textaður.
,