13:10
Kastljós
Þjóðarhöll, 3 ár frá flóði á Flateyri, flóttafólk á Laugarvatni
Kastljós

Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Baldvin Þór Bergsson, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Óðinn Svan Óðinsson, Sigríður Dögg Auðunsdóttir og Viktoría Hermannsdóttir.

Í dag var kynnt framkvæmdaáætlun um nýja þjóðarhöll sem rísa á í Laugardalnum í Reykjavík. Áætlað er að hún verði 19 þúsund fermetrar að stærð og taki ríflega átta þúsund áhorfendur í sæti. Kostnaður við höllina er áætlaður fimmtán milljarðar og hún á að vera tilbúin haustið 2025. Er þetta raunhæf áætlun? Ásmundur Einar Daðason, ráðherra íþróttamála, ræddi um höllina.

Þrjú ár eru liðin frá því að snjóflóð féll á Flateyri sem olli stórtjóni og rifjaði líka upp sárar minningar frá flóðinu árið 1995 sem kostaði tuttugu manns lífið. Endurbótum á snjóflóðavörnum var lofað en hver er staðan þremur árum síðar? Kastljós ræddi við Örnu Láru Jónsdóttur, bæjarstjóra í Ísafjarðarbæ um tjónið og fyrirhugaða enduruppbyggingu.

Heimavist íþróttakennarskólans á Laugarvatni fær nýtt hlutverk á næstu vikum þegar þar verða hýstir allt að sextíu umsækjendur um alþjóðlega vernd. Fólkið mun dvelja á Laugarvatni í allt að sex mánuði, á meðan umsóknir þeirra fá afgreiðslu í kerfinu, en fólk fær ekki atvinnuleyfi fyrr en umsókn þeirra hefur verið samþykkt. Stefnt er að því að nýta húsnæðið fyrir konur einar á ferð, pör og litlar fjölskyldur. Rætt við sveitarstjóra Bláskógarbyggðar á Laugarvatni og forstjóra Vinnumálastofnunar.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 25 mín.
e
Endursýnt.
Dagskrárliður er textaður.
,