STEFNA RÚV TIL 2026

HLUTVERK

Hlutverk RÚV er að upplýsa og fræða, skerpa skilning og þátttöku í samfélaginu, auka ánægju og hreyfa við fólki á uppbyggilegan hátt.

FRAMTÍÐARSÝN

RÚV vill endurspegla litríkt samfélag.

GILDI

Gildi RÚV einkenna vinnubrögð, viðhorf og framkomu starfsfólks.

STEFNUÁHERSLUR

Fimm stefnuáherslur liggja til grundvallar stærri og smærri aðgerðum RÚV til ársloka 2026.

STEFNUÁHERSLUR

Áherslurnar sem settar eru fram í stefnunni taka mið af lykilbreytingum í ytra umhverfi, viðhorfi og hegðun neytenda, þróun fjölmiðlamarkaðar og stöðu almannaþjónustumiðla. Stefnuskjöl systurstöðva annars staðar á Norðurlöndunum og Bretlandseyjum voru rýnd auk þess sem vinnan við stefnumótun RÚV er byggð á umfangsmiklum rannsóknum frá Sambandi evrópskra sjónvarpsstöðva, EBU.

 

Önnur lykilatriði í ytra umhverfi eru samfélagsleg ábyrgð, tengsl við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna, auknar áherslur á sviði jafnréttismála og umhverfis- og loftslagsmála, áherslur á fjölbreytileika, jafnræði, aðgengi og sýnileika fjölbreyttra hópa. Horft var til aukinnar norrænnar samvinnu við framleiðslu á efni auk þess sem stefnumótun og áherslur EBU á mörgum sviðum höfðu áhrif á að horft er á aukið virði almannaþjónustumiðlanna. Horft var til nauðsynjar þess að auka meðvitund um falsfréttir og leiðir til að sporna gegn þeim og upplýsingaóreiðu almennt, meðal annars með áherslu á miðla- og upplýsingalæsi.

 

Staða RÚV, hlutverk og áskoranir voru bornar saman við stöðu annarra almannaþjónustumiðla og þær leiðir sem þeir hafa valið og samhljómurinn er mikill. RÚV sinnir mikilvægri þjónustu í íslensku samfélagi sem er að miklu leyti sambærileg við þjónustu erlendra almannaþjónustumiðla.

STAFRÆNT RÚV

Stafræn tækni þróast hratt. RÚV tekur virkan þátt í stafrænum umbreytingum í þágu notenda og vinnur frumkvöðlastarf í framleiðslu og dreifingu.

FRÉTTIR OG ÞJÓÐFÉLAGSRÝNI

RÚV starfar í þágu fólksins í landinu og gegnir mikilvægu öryggis- og lýðræðis­hlutverki. Aðaláherslan er á vandaðan og hlutlægan fréttaflutning og kappkostað er að standa undir trausti almennings.

MENNING OG MIÐLUN

RÚV tekur virkan þátt í íslensku menningar­lífi með því að skapa, miðla og fjalla um öll svið menningar og lista. RÚV sýnir frumkvæði og djörfung í sköpun, miðlun og umfjöllun.

FJÖLBREYTILEIKI, JAFNRÆÐI OG ÞÁTTTAKA

RÚV ber að endurspegla fjölbreytileika sam­félagsins í dagskrá og allri starfsemi. Kynjajafnrétti er hornsteinninn í ytra og innra starfi og gætt er að jafnræði fjölbreyttra hópa og einstaklinga. Aðgengi allra að þjónustu RÚV skal vera tryggt og áhersla lögð á þjónustu við ólíka einstaklinga.

SJÁLFBÆRNI OG SAMFÉLAGSÁBYRGÐ

RÚV gegnir mikilvægu hlutverki við að byggja upp sjálfbært samfélag í samræmi við heims­markmið Sameinuðu þjóðanna. Stefna um sjálfbærni felur í sér skuld­bindingu um að styrkja hringrásarhagkerfið, skapa virði og efla þá þætti í stefnumótun, aðgerðum og ákvarðanatöku er snúa að umhverfis- og loftslagsmálum, félagslegri sjálfbærni og ábyrgum stjórnunarháttum.

Stjórn RÚV ohf.

janúar–apríl

Aðalmenn

  • Silja Dögg Gunnarsdóttir, formaður
  • Margrét Tryggvadóttir
  • Jón Ólafsson
  • Þráinn Óskarsson
  • Nanna Kristín Tryggvadóttir
  • Mörður Áslaugarson
  • Ingvar Smári Birgisson
  • Aron Ólafsson
  • Diljá Ámundadóttir Zoëga
  • Hrafnhildur Halldórsdóttir
    (fulltrúi starfsmanna)

Varamenn

  • Jónas Skúlason
  • Viðar Eggertsson
  • Marta Guðrún Jóhannesdóttir
  • Natalie Guðríður Gunnarsdóttir
  • Inga María Hlíðar Thorsteinsson
  • Sigurður Helgi Birgisson
  • Kristín Amalía Atladóttir
  • Sandra Rán Ásgrímsdóttir
  • Ingvar Þóroddsson
  • Valgeir Vilhjálmsson (fulltrúi starfsmanna)

apríl-desember 

Aðalmenn

  • Silja Dögg Gunnarsdóttir, formaður
  • Rósa Kristinsdóttir
  • Marta Guðrún Jóhannesdóttir
  • Ingvar Smári Birgisson
  • Aron Ólafsson
  • Mörður Áslaugarson
  • Margrét Tryggvadóttir
  • Þráinn Óskarsson
  • Diljá Ámundadóttir Zoëga
  • Hrafnhildur Halldórsdóttir
    (fulltrúi starfsmanna)

Varamenn

  • Jónas Skúlason
  • Inga María Hlíðar Thorsteinsson
  • Kristján Ketill Stefánsson
  • Sigurður Helgi Birgisson
  • Sandra Rán Ásgrímsdóttir
  • Kristín Amalía Atladóttir
  • Viðar Eggertsson
  • Natalie Guðríður Gunnarsdóttir
  • Ingvar Þóroddsson
  • Valgeir Vilhjálmsson (fulltrúi starfsmanna)

Skipurit

Stjórnskipulag RÚV er í stöðugri þróun. Breytingar eru gerðar til að styrkja dagskrárþróun, framleiðslu og miðlun til stafrænnar framtíðar.

Innri áherslur

Untitled design (3)

Velferð og vistvænar samgöngur

Markvisst er unnið að því að setja heilsu og velferð starfsfólks í forgrunn. Á árinu var kynnt velferðarstefna sem rammar inn velferðaráherslur í fjórum meginþáttum er varða hreyfingu og næringu, vellíðan, jákvæð tengsl og þekkingarvöxt.

 

Í stefnunni er kveðið á um skuldbindingu RÚV til að veita næringarríka valkosti, heilsufarsmælingar og hvatningu til hreyfingar með ýmsu móti. Reglulega á að bjóða upp á fræðsluerindi, sem miða að því að efla heilsu, og styrkja félagslega samheldni með ýmsum viðburðum. Áfram er stutt við starfsþróun, m.a. með tækifærum í gegnum EBU-samstarf.

 

Þjónusta við starfsfólk var efld, meðal annars með því að auka samstarf um sálfræðiaðstoð, markþjálfun, stjórnendaráðgjöf og ráðgjöf til að takast á við og fyrirbyggja langvarandi streitu og álagseinkenni. Heilsuvísitala starfsfólks styrktist aðeins á milli ára sem skýrist af miklum covid-tengdum veikindafjarvistum árið 2022. Yfirvinnutölur lækkuðu enn og áfram verður unnið að því að draga úr yfirvinnu eins og kostur er til að styðja við velferð starfsfólks.

 

Starfsfólk RÚV á kost á að fá íþróttastyrk og það er hvatt til vistvænna samgangna með tilboði um samgöngusamning. Á árinu var ákveðið að bjóða starfsfólki afnot af rafmagnshjóli endurgjaldslaust nokkra daga í einu til að hvetja til vistvænni samgangna til og frá vinnu. Í samræmi við markmið um vistvænar samgöngur var einnig boðið upp á hjólastillingar og yfirferð hjóla í vor.

 

Hugað var að hreyfingartengdum heilsuviðburðum með þátttöku í Lífshlaupinu, Hjólað í vinnuna og átakinu Syndum. Þátttakan eykst ár frá ári enda er starfsfólk hvatt til að vera með og eru veitt hvatningarverðlaun. Starfsfólki var boðið í spinning undir öruggri stjórn tónlistarstjórans Sigga Gunn og hópur rúvara tók þátt í hlaupi í Þórsmörk á fallegum haustdegi. Í framhaldi af því var stofnaður hlaupahópur sem hleypur saman vikulega. Nudd á vinnutíma hefur fest sig í sessi og starfsfólk hélt áfram að njóta rjúkandi fargufu. Það er vinsæll viðburður þar sem fara saman sána og sjóbað.

Untitled design (6)

RÚVaralífið

Félagslífið var fjörugt á árinu. Starfsmannasamtök RÚV stóðu fyrir glæsilegri árshátíð í Hörpu í vor auk þess sem haldnir voru ýmsir viðburðir svo sem spurningakeppni, haust- og aðventugleði. Startvikunni var fagnað í haust með ýmsu uppbroti og sem fyrr tók mötuneyti RÚV virkan þátt í því með frábærum þematengdum matseðli og tilheyrandi stemningu.

 

Áralöng hefð er fyrir jólaballi í stúdíói A, sem var vel sótt fjölskylduskemmtun. Fjölskyldudagur RÚVara hefur fest sig í sessi í upphafi sumars. Þá gefst starfsfólki kostur að bjóða fjölskyldum sínum í Efstaleitið í grill og gaman. Stúdíóin eru opnuð fyrir gestum og boðið upp á söng- og leikatriði úr smiðju RÚV. Golfklúbbur RÚV var einnig virkur og þrjú vel sótt golfmót voru haldin í sumar. Konur og kvár á RÚV tóku að sjálfsögðu þátt í kvennaverkfallinu 24. okt. og fjölmenntu á baráttufund.

Untitled design (5)
ma_20221031_005511

Þróun þekkingar

Lögð er áhersla á að byggja upp hæfni og styrkja starfsfólk í fjölbreyttum hlutverkum innan RÚV. Starfsmannasamtöl eru notuð fyrir endurgjöf og sem vettvangur til að ræða starfsþróun. Allt starfsfólk styður við mikilvægt hlutverk RÚV sem almannaþjónustumiðils sem rýnir samfélagið, segir mikilvægar sögur og þróar nýjar leiðir til miðlunar.

Untitled design (7)

Rétt um 40 fræðslufundir voru haldnir á árinu. Á dagskrá voru m.a. erindi um velferðartengd efni, umhverfismál og gervigreind. Jafnréttismál skipa alltaf reglulega sess í fræðsludagskránni. Á alþjóðadegi kvenna var haldið námskeið fyrir tempraða róttæklinga, þ.e. þau sem vilja vera jákvætt hreyfiafl breytinga á vinnustaðnum. Auk þess voru haldnir nokkrir fundir þar sem starfsfólki gafst kostur á að ræða um ýmis jafnréttistengd mál. Allt árið var starfsfólki af erlendum uppruna boðið upp á einkakennslu í íslensku á vinnutíma sem einn af málfarsráðgjöfum á RÚV hefur á hendi.

 

Lagt var kapp á að bjóða upp á sem flest fræðsluerindi á fjarfundum. Lögð var áhersla á að vinna úr ábendingum starfsfólks um fræðslu til efla fagþekkingu, t.d. á einstökum kerfum og forritum. Haldin voru námskeið um hlaðvarpsgerð og miðlun efnis á Tiktok. Upplýsingaöryggisnámskeið voru fyrirferðarmikil á árinu í tengslum við upplýsingaöryggisvottun sem RÚV vinnur að.

 

Haldið var áfram með þróun rafræns fræðslukerfis þar sem starfsfólki gefst kostur á að sækja fræðsluefni þegar því hentar best. Í boði eru fjölmörg stutt og hnitmiðuð námskeið. Kerfið er mikilvæg upplýsingaveita til starfsfólks um ýmis mannauðstengd mál og gegnir þýðingarmiklu hlutverki í upplýsingum til nýrra starfsmanna.

Varðveisla og miðlun íslenskrar tungu og menningar

Safn RÚV

Safn Ríkisútvarpsins varðveitir sjónvarps- og útvarpsefni frá upphafi útsendinga árið 1930 og í gagnagrunni RÚV safns er ríflega ein milljón færslna. Safnið er opið almenningi í Efstaleiti. Safnefni er eftirsóknarvert í ýmsa dagskrárgerð, bæði innanlands og fyrir sjálfstæða framleiðendur langt út fyrir landsteinana. Mikið var um efnisleit þegar 50 ár voru frá gosi í Vestmannaeyjum, á 40 ára afmæli Rásar 2 og vegna eldsumbrota á Reykjanesskaga auk kvennafrídagsins í október. Á árinu voru gefnir út skilmálar vegna notkunar á efni úr safni RÚV sem skýra betur verkferla við afhendingu þess. Pantanir á efni úr safninu voru færðar inn á Mitt.RUV.is sem gerir afgreiðslu skilvirkari.

 

Áfram var lögð áhersla á skráningu og stafræna yfirfærslu á eldri segulböndum, bæði tónlist og dagskrárefni. Í febrúar fékkst styrkur frá Miðstöð stafrænna lista og hugvísinda til að yfirfæra hljóð af 12.000 segulböndum útvarpsins á stafrænt form hjá fyrirtækinu Memnon í Belgíu. Böndin voru send í hita- og rakastýrðum gámi yfir hafið og hljóðið gert aðgengilegt í gagnagrunni RÚV um leið og stafrænar skrár bárust frá Belgíu. Fyrstu skrárnar bárust í lok árs.

 

Öllum filmum RÚV sem varðveittar eru í Kvikmyndasafni Íslands var pakkað í sýrufríar umbúðir og þær skráðar í gagnagrunn Kvikmyndasafnsins. Áfram var unnið í yfirfærslu á filmusafninu með samstarfssamningi við Kvikmyndasafnið. Að auki var samið við Myndbandavinnsluna um stafræna yfirfærslu á rauntímadagskrá sjónvarpsins árin 2005 til 2015. Öll leikritahandrit sem varðveitt voru í safninu voru skráð og gengið frá þeim af starfsmanni Leikminjasafns Íslands. Fólk í samfélagsþjónustu vann við skönnun og yfirfærslu á fréttatímum af geisladiskum.

 

Innslög með völdum brotum úr safninu voru hálfsmánaðarlega á dagskrá í Samfélaginu á Rás 1 og efni úr safni RÚV birtist reglulega á TikTok á vegum fréttastofu.

Málfar

RÚV hefur ríkar skyldur við íslenskt mál. Áhersla er lögð á vandað mál í öllum miðlum. Málfarsráðgjafar sjá um yfirlestur og ráðgjöf og stuðla þannig að bættri íslenskufærni og auðugra málfari starfsfólks, koma með ábendingar og halda fundi um málfar. Umfang yfirlestrar eykst ár frá ári. Málfarsráðunautur og málfarsráðgjafar sinna líka upplýsingagjöf og fræðslu um íslensku í miðlum RÚV, þar á meðal Samfélaginu á Rás 1 og þættinum Orð af orði sem hefur verið vikulega á Rás 1 frá 2013. Málstefna RÚV var endurskoðuð á árinu og verður hún birt á nýju ári.

RÚV tekur þátt í samstarfsverkefnum sem tengjast verndun íslenskrar tungu svo sem máltækniáætlun stjórnvalda og verkefnum sem lúta að vélþýðingum fyrir skjátexta og sjálfvirkri textun á innlendu sjónvarpsefni. Þá á RÚV fulltrúa í Íslenskri málnefnd og Málræktarsjóði.

Aðgengi og fjölbreytileiki

Jafnt og þétt er unnið að því að auka fjölbreytileika og aðgengi fatlaðs fólks að miðlum RÚV. Á árinu tók RÚV þátt í þróun sjálfvirkrar rauntímatextunar með máltæknifyrirtækinu Tiro sem á eftir að bæta mjög aðgengi heyrnarskerts og heyrnarlauss fólks að innlendu sjónvarpsefni. Aðgengis- og fjölbreytileikanefnd hélt reglubundna fundi á árinu og átti auk þess fundi með stjórnendum ýmissa deilda.

Á rúv.is er sérstaklega hugað að aðgengi fyrir blint og sjónskert fólk. Á síðunni ruv.is/audskilid er miðlað fréttum á auðskildu máli sem hentar fólki með þroskahömlun. Í sjónvarpi og spilara er hægt að fá íslenskan skjátexta með nær öllu íslensku sjónvarpsefni. Kvöldfréttir og íþróttir í sjónvarpi og meiri háttar menningarviðburðir eru með texta í beinni útsendingu. Kvöldfréttir og Krakkafréttir voru áfram túlkaðar á táknmál á RÚV 2 eða RÚV.is.

Í samstarfi við Félag heyrnarlausra voru lögin í úrslitaþætti Söngvakeppninnar 2023 flutt á táknmáli á RÚV 2 af döff flytjendum. Auk þess var allt tal í þættinum túlkað á táknmál. Úrslitaþáttur Eurovision var ennfremur með táknmálstúlkun á RÚV 2.

 

Þjónusta á ensku og pólsku

RÚV veitir íbúum sem hafa ekki íslensku að móðurmáli þjónustu á ensku og pólsku. Fréttastofa miðlar fréttum á ensku og pólsku og heldur úti hlaðvarpsþáttunum RÚV English Radio og Wyspa. Vinsælar íslenskar þáttaraðir eru aðgengilegar með enskum texta á RÚV 2 og í spilara. Talsettar fjölskyldumyndir sem sýndar eru á RÚV eru oft sýndar á sama tíma á frummálinu með íslenskum texta.

Mannauður

272

Meðalfjöldi stöðugilda

44ár

Meðalaldur starfsfólks

9ár

Meðalstarfsaldur starfsfólks

46%

Hlutfall kvenna í hópi starfsmanna

Starfsfólk og jafnrétti

FJÖLBREYTTUR STARFSHÓPUR

Hjá RÚV starfar kraftmikill og fjölbreyttur hópur fólks sem vinnur verk sín af lífi og sál og er stolt af starfi sínu. Það er stefna RÚV að skapa sveigjanlegt starfsumhverfi sem laðar að hæfasta starfsfólkið á hverju sviði. Velferð, vellíðan og öryggi starfsfólks er í forgrunni á vinnustaðnum.

 

FÓLKIÐ

Árið 2023 störfuðu 272 að meðaltali á RÚV. Starfsmannavelta dróst saman frá fyrra ári og var rétt um 9%, að meðtöldu því starfsfólki sem fór á eftirlaun.  Lögð er áhersla á að taka vel á móti nýju starfsfólki og könnuð er líðan og aðlögun þess í nýliðasamtölum. Starfað er eftir stefnu um að auka fjölbreytileika í starfshópnum, jafna kynjahlutföll og á árinu jókst fjölbreytni m.t.t. þjóðerna nýliða. Í hópi nýliða blandast reynt eldra fólk við yngra starfsfólk. Aldursdreifing starfsfólks er nokkuð jöfn og meðalaldurinn er 44 ár.

MÆLINGAR OG UMBÆTUR

Mannauðsteymi starfar í samræmi við stefnu RÚV um að byggja upp og viðhalda góðu
starfsumhverfi og vinnustaðarmenningu í því öfluga þekkingar- og nýsköpunarsamfélagi sem RÚV er. Það er stefna teymisins að starfa í þágu velferðar og árangurs á vinnustaðnum og leggja áherslu á góð samskipti, samstarf og gæði. Samtöl við starfsfólk, s.s. nýliða- og starfslokasamtöl, eru nýtt til umbóta allt árið. Mikill áhugi er á störfum hjá RÚV og alls bárust rúmlega 1300 umsóknir um auglýst störf.

Viðhorf starfsfólks til margra þátta í vinnuumhverfinu voru greind í viðhorfskönnun í lok árs. Undanfarin ár hefur náðst töluverður árangur á milli ára í ýmsum mikilvægum þáttum, svo sem í viðhorfi starfsfólks til stjórnunar og starfsþróunar. Starfsánægja og vellíðan í starfi mælist áfram sem mikill styrkleiki í starfseminni, einnig stolt af starfinu sem er einn af mikilvægustu styrkleikaþáttunum. Sem fyrr verður unnið að úrbótaverkefnum í framhaldi af niðurstöðunum kannana. Helstu umbótaþættir snúa að álagstengdum þáttum og samstarfi á milli sviða og eininga innan RÚV.

Viðhorf og heilsa

97%

Heilsuvísitala starfsfólks

4,0

Viðhorf til jafnréttismála

4,3

Starfsánægja

4,2

Stolt og ímynd

*Einkunn á bilinu 0-5 í viðhorfskönnun starfsmanna