Sjálfbærnisstefna

Umhverfi og

loftslag

Félagsleg

sjálfbærni

Ábyrgir

stjórnunarhættir

Umhverfi og loftslag

RÚV mætir auknum kröfum um sjálfbærni með því að lágmarka neikvæð umhverfisáhrif af starfseminni með markvissum aðgerðum og leitast við að vera öðrum til fyrirmyndar í umhverfis- og loftslagsmálum.

 

Átak hefur verið gert í að flokka sorp og draga úr pappírsnotkun og matarsóun. Í byrjun árs 2022 var ný loftslagsstefna RÚV samþykkt og var það gert samkvæmt lögum um loftlagsmál. Stefnan inniheldur meðal annars skilgreind markmið um samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda og kolefnisjöfnun starfseminnar ásamt aðgerðum svo að þeim markmiðum verði náð. Tilgangurinn er að draga markvisst úr áhrifum losunar gróðurhúsalofttegunda af starfseminni og vera til fyrirmyndar með því að hafa bein og óbein áhrif á loftslagsskuldbindingar Íslands.

 

Frá 2021 hefur Ríkisútvarpið haldið grænt bókhald þar sem teknir eru saman þýðingarmestu umhverfisþættirnir í starfseminni. Niðurstöður bókhaldsins eru notaðar til að móta stefnu og aðgerðir í umhverfis- og loftslagsmálum. Fyrir 1. apríl ár hvert er grænt bókhald fyrra árs tekið saman og því skilað í gagnagátt Umhverfisstofnunar. Niðurstöður græns bókhalds birtast einnig á vef Grænna skrefa ásamt niðurstöðum annarra ríkisstofnana.

 

Hjá RÚV er í gildi samgöngustefna sem hefur það að markmiði að gera starfsfólki auðveldara að fara til og frá vinnu með því að sameinast í bíla eða nota almenningssamgöngur og aðra valmöguleika en að fara um á einkabíl. Samgöngustyrkur er veittur starfsfólki á grundvelli samgöngusamninga við hvern og einn.

 

Skoða umhverfis- og loftslagsstefnu RÚV

Félagsleg sjálfbærni

RÚV styrkir félagslega sjálfbærni með ábyrgri umfjöllun og skýrri stefnu um fjölbreytileika, jafnræði og þátttöku í starfseminni allri. Kynjajafnrétti er sem fyrr hornsteinninn í ytra og innra starfi RÚV.

 

RÚV ohf. starfar í samræmi við lög um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna nr. 150/2020. Jafnréttisáætlun RÚV miðar að því að jafna stöðu kynja og nær einnig yfir jafnrétti óháð kynþætti, þjóðernisuppruna, trú, lífsskoðun, fötlun, starfsgetu, aldri, kynhneigð, kynvitund, kyneinkennum eða kyntjáningu, í samræmi við lög nr. 86/2018 um jafna meðferð á vinnumarkaði. Jafnréttisáætlunin og viðbragðsáætlun vegna eineltis og áreitni eru aðgengilegar á RÚV.is. Þar er einnig að finna reglur um ráðningar hjá RÚV, samninga við verktaka og reglur um meðferð athugasemda og ábendinga sem tóku gildi vorið 2022.

 

Jafnréttisnefnd hefur starfað frá hausti 2021 í samræmi við aðgerð í jafnréttisáætlun um aukið samráð starfsfólks um jafnréttismál. Hlutverk nefndarinnar er að fylgjast með stöðu og þróun jafnréttismála hjá RÚV, framvindu þeirra aðgerða sem skilgreindar eru í jafnréttisáætlun og endurskoða umrædda áætlun og aðgerðir eftir því sem þörf krefur. Nefndin fundar reglulega og miðlar upplýsingum um störf sín til útvarpsstjóra og starfsfólks RÚV. Nefndin hefur rýnt vel niðurstöður árlegrar vinnustaðargreiningar m.t.t. viðhorfa kynjanna til ýmissa þátta í innra starfi. Þróuð hefur verið jafnréttis- og fjölbreytileikaskimun fyrir einstök verkefni og lögð hefur verið áhersla á að fræðsludagskrá endurspegli þessar áherslur.

 

RÚV fékk jafnlaunavottun 2019 og jafnlaunakerfið hefur verið vottað árlega síðan. Launaákvarðanir byggjast á málefnalegum forsendum og greiða skal sömu laun fyrir sambærileg og jafnverðmæt störf.

 

Starfsfólk á vegum RÚV tekur virkan þátt í jafnréttis-, aðgengis- og fjölbreytileikastarfi innan EBU þar sem árlega er gefið út gagnlegt efni og fundað reglulega um þróun þessarra mála hjá almannaþjónustumiðlum í Evrópu.

 

Skoða aðgengisstefnu RÚV

Skoða jafnréttisáætlun RÚV

Ábyrgir stjórnunar­hættir

Stjórn RÚV leggur áherslu á að viðhalda góðum stjórnarháttum og að þeir samræmist því regluverki sem um starfsemina gildir, alþjóðlega viðurkenndum viðmiðum og bestu framkvæmd á sviði stjórnarhátta. Stjórnin hefur sett sér ítarlegar starfsreglur og er þar meðal annars að finna reglur um fundarsköp, reglur um hæfi stjórnarmanna, upplýsingagjöf útvarpsstjóra gagnvart stjórn og fleira. Fundargerðir stjórnar eru birtar á vef RÚV.

 

Í stjórn RÚV sitja níu manns, fjórir karlar og fimm konur. Ein kona situr stjórnarfundi og er áheyrnarfulltrúi starfsmanna. Stjórn hefur skipað endurskoðunarnefnd og starfskjaranefnd. Í endurskoðunarnefnd sitja tveir stjórnarmenn og einn starfsmaður RÚV. Meginhlutverk og ábyrgð nefndarinnar er að hafa eftirlit með vinnuferlum við gerð reikningsskila og aðrar eftirlitsaðgerðir, sbr. IX. kafla A. í lögum um ársreikninga nr. 3/2006. Endurskoðunarnefnd skal skila skýrslu um störf sín eigi sjaldnar en árlega. Í starfskjaranefnd sitja þrír stjórnarmenn. Meginhlutverk og ábyrgð nefndarinnar er að yfirfara gildandi starfskjarastefnu og endurskoða hana.

 

Til að tryggja að reikningsskil félagsins séu í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla hefur félagið lagt áherslu á vel skilgreind ábyrgðarsvið, eðlilega aðgreiningu starfa, ásamt reglubundnum fundum og gagnsæi í starfseminni. Ferli mánaðarlegrar skýrslugjafar ásamt rýni fyrir einstakar deildir er mikilvægur þáttur í eftirliti með afkomu og öðrum lykilþáttum starfseminnar. Mánaðarleg uppgjör eru unnin og lögð fyrir stjórn félagsins. Til staðar eru ferlar til að tryggja eftirlit með tekjuskráningu, rekstrarkostnaði og fleiri liðum sem hafa áhrif á rekstur félagsins. Með þjálfun starfsfólks og starfsreglum stefnir félagið að öguðu eftirliti þar sem allir starfsmenn eru meðvitaðir um hlutverk sitt og skyldur.

 

Í þjónustusamningi er kveðið á um að RÚV skuli viðhafa innra eftirlit og fylgja gæðaferlum auk þess sem upplýst skal á gagnsæjan hátt með hvaða hætti það er gert á hverjum tíma, í þeim tilgangi að stuðla að faglegum vinnubrögðum og tryggja gæði frétta- og dagskrárefnis. Aðilar samningsins halda fundi eigi sjaldnar en tvisvar á ári til að fjalla um framkvæmd samningsins, þróun hans, fyrirhugaðar breytingar og markmið.

 

Fjölmiðlanefnd leggur árlega mat á almannaþjónustuhlutverk Ríkisútvarpsins, en nefndinni var falið það hlutverk með 15. gr. laga um Ríkisútvarpið, fjölmiðil í almannaþágu, nr. 23/2013. Árlega gefur Fjölmiðlanefnd skýrslu þar sem nefndin leggur mat á það hvort Ríkisútvarpið hafi uppfyllt þær gæðakröfur sem gerðar eru til starfseminnar og þar með sinnt almannaþjónustuhlutverki sínu.

Græna bókhaldið*

77,2%

Eldsneyti fyrirtækja

52,2

Rafmagn

66,0

Heitt vatn

98,2

Flug

*Mælieining í t CO2í