Umsjónarmenn eru Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir.
Við fjölluðum um stöðuna í stjórnmálunum og forsetakosningarnar fram undan í þættinum í dag. Ríkisstjórnin nýja hefur nú starfað í rúmar tvær vikur og segja má að kosningabaráttan um forsetaembættið hefjist formlega í dag þegar framboðsfrestur rennur út og endanlega er ljóst hver verða í framboði. Hjá okkur voru stjórnmálafræðingarnir Magnús Skjöld og Hjörtur J. Guðmundsson, þeir spáðu hér í spilin fyrir þremur vikum og gerðu það aftur í dag.
Umræða um gjörunnin matvæli hefur farið vaxandi undanfarin ár, og niðurstöður rannsókna frá öðrum löndum sýna að stór hluti mataræðis fólks sé mjög mikið unnin vara. En hvernig ætli þessu sé farið hér á landi? Nú er verið að kortleggja það, Steina Gunnarsdóttir doktorsnemi í heilbrigðisvísindum við Matvæla- og næringarfræðideild Háskóla Íslands, vinnur að því og hún kom til okkar.
Svo spiluðum við nokkur lög í tilefni sumardagsins fyrsta í gær sem einmitt heita Sumardagurinn fyrsti. Við heyrðum líka ljóð með sama heiti og rifjuðum upp skrif kúabónda í Reykjahlíðinni um daginn.
Tónlist:
Thomas, Michael Tilson - The swan.
Upplyfting - Traustur vinur.
Martha Mwaipaja - Nifundishe kunyamaza.
Sigríður Níelsdóttir - Sumardagurinn fyrsti.
Hjónabandið - Sumardagurinn fyrsti.
Sigurður Pálsson - Sumardagurinn fyrsti.
Hrekkjusvín - Sumardagurinn fyrsti.
Í þættinum eru atburðir og málefni líðandi stundar skoðaðir í ljósi sögunnar. Umsjón: Vera Illugadóttir.
Í þættinum er fjallað um Rafherbergið, glæsilegan sal klæddan rafi sem Friðrik 1. Prússakonungur gaf Pétri mikla Rússakeisara í byrjun 18. aldar. Klæðningarnar og aðrir munir úr herberginu hurfu í seinni heimsstyrjöld og hafa aldrei fundist, þrátt fyrir mikla leit.
Veðurstofa Íslands.
Um litróf mannlífsins.
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var leikarinn Hallgrímur Ólafsson, eða Halli melló eins og hann er oft kallaður. Hann er fæddur og uppalinn á Akranesi, hann starfaði meðal annars á Akraborginni og fór á sjóinn með pabba sínum. Hann byrjaði ungur að spila tónlist og syngja, fluttist um tvítugt til Reykjavíkur, fór í Leiklistarskólann, þar sem hann tengdi misvel við það sem þar var kennt og hefur svo meira og minna verið að leika í leikhúsunum frá því hann útskrifaðist. Við fórum með Hallgrími á handahlaupum í gegnum lífið til dagsins í dag.
Og svo sat Hallgrímur óvænt áfram með okkur og Sigurlaugu Margréti í matarspjallinu. Þar talaði hann um sinn uppáhaldsmat, purusteik, kjötfars, saltfisk og fleira.
Útvarpsfréttir.
Útvarpsfréttir.
Kvikuhólfið undir Svartsengi er komið að þolmörkum, segir jarðeðlisfræðingur. Óvissa um framhaldið sé meiri en áður enda mjög óvenjulegt að land rísi á sama tíma og gýs.
Tólf skiluðu listum yfir meðmælendur í morgun vegna framboðs til embættis forseta Íslands. Það skýrist eftir helgi hversu mörg þeirra verða í framboði.
Kínverjar og Bandaríkjamenn eiga að vera félagar, ekki fjendur. Þetta sagði forseti Kína við utanríkisráðherra Bandaríkjanna sem heimsótti hann í morgun. Samband ríkjanna tveggja fer batnandi, þótt stöðugt reyni á það.
Formaður Stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur vonar að hægt veðri að birta tilteknar upplýsingar úr skýrslu Innri endurskoðunar borgarinnar um Ljósleiðarann. Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins segir skýrsluna innihalda upplýsingar um trúnaðarbrot og eiga erindi við almenning.
Hátt í fjögur hundruð lík hafa verið grafin upp úr þremur fjöldagröfum við Nasser-sjúkrahúsið í Khan Younis á Gaza. Sameinuðu þjóðirnar og Evrópusambandið kalla eftir óháðri alþjóðlegri rannsókn á málinu.
Enn eru engar lausnir í sjónmáli fyrir eldri borgara frá Grindavík. Forstöðumaður heimaþjónustudeildar segir tíma til kominn að ríkið beiti sér fyrir þennan hóp fólks. Á næstu mánuðum munu hátt í fimmtíu þeirra missa húsnæði sín.
Daglegur fréttaskýringaþáttur sem varpar nýju ljósi á það sem efst er á baugi og stundum það sem verðskuldar meiri athygli.
Umsjón: Sunna Valgerðardóttir og Þóra Tómasdóttir
Töluverður fjöldi fólks kemur hingað á hverju ári til að njóta þess sem landið okkar hefur upp á að bjóða: skoða hvali og kindur, borða hvali og kindur, baða sig í heitu vatni, horfa á norðurljós og eldgos, taka selfie við Hallgrímskirkju, fara varlega í Reynisfjöru og valhoppa á milli mathalla. En inn á milli venjulegu ferðamannanna leynast auðkýfingar sem vilja eitthvað örlítið extra. Ísland er vinsæll áfangastaður ríka og misfræga fólksins í heiminum sem hefur vanist því að fá aðeins það besta, dýrasta og flottasta þegar það er að ferðast. En hvar sefur þetta fólk þegar það kemur til Íslands? Hvar eru velmegunargististaðirnir og hvað þarf til að fá þessar miseftirsóttu fimm stjörnur? Hvað er í kortunum í lúxushótelbransanum? Sunna Valgerðardóttir skoðaði stjörnuhótel landsins í þætti dagsins, sem var upphaflega á dagskrá í janúar 2023.
Upplýst og gagnrýnin umræða um samfélagsmál. Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir og Guðmundur Pálsson.
Stóri plokkdagurinn er á sunnudaginn. Þá flykkjast plokkarar víða um land út á götur, út í móa og í fjörur þessa lands með ruslapokana sína og plokktangir og tína rusl. Mikið rusl. Fleiri, fleiri tonn af rusli. Fyrir suma er plokk hluti af lífsstíl. Að gera samfélaginu gagn, njóta þess að vera úti og sjá árangur erfiðis síns. Það er Rótarý hreyfingin á Íslandi sem skipuleggur stóra plokkdaginn. Þar er verðandi umdæmisstjóri Jón Karl Ólafsson. við ræðum við hann.
Við höldum áfram að fjalla um almannarými. og ætlum að fjalla um torg, Edda ívarsdóttir, borgarhönnuður ætlar að ræða við okkur um hugsunina á bak við þau, hvernig torg eru hönnuð og hvernig fólk notar þau.
Sumarið er komið, farið að hlýna og plöntulíf og mannlíf að glæðast víða um land, í Austurstræti eru sölutjöldin komin upp, svört og í laginu eins og lítil hús og svo eru furðuverur á stjá í búningum, framhaldsskólanemar að dimmitera.
Við heyrum líka eina málfarsmínútu í umsjón Önnu Sigríðar Þráinsdóttur - um orðið einmitt.
Tónlist:
ÞURSAFLOKKURINN - Nútíminn.
TRAVIS - Sing.
Musgraves, Kacey - Deeper Well.
Veraldarvefur tónlistarinnar. Lagasyrpur héðan og þaðan úr víðri veröld.
Tónlist frá útsendingarlogg 2024-04-26
Uwaifo, Victor - Do lelezi.
Taylor, Ebo - Love and death.
Gnahoré, Dobet - Bété djili.
Bulgarian Voices Angelite, The - Dyulmano dyulbero.
Cannibals, The, Mpharanyana - Thakane.
Jaojoby, Eusèbe - Velono.
Lindsay, Arto - Pele De Perto.
Santtana, Lucas - Errare Humanum Est.
Wisnik, José Miguel - Madre Deus.
Gilberto, Joao Trio, Getz, Stan Orchestra - Meditacao.
Fjallað er um skáldsöguna Hlébarðann eftir ítalska höfundinn Giuseppe di Lampedusa. Sagan gerist á Sikiley á seinni hluta nítjándu aldar og hefst árið 1860 þegar Garibaldi steig þar á land með sveit sína, en það leiddi til sameiningar Ítalíu í eitt ríki. Aðalpersónan er Fabrizio fursti og lýsir sagan viðbrögðum hans og fjölskyldunnar við miklum þjóðfélagsbreytingum sem gjörbreyta stöðu hennar. Giuseppe di Lampedusa var af aðalsætt. Hann hugsaði um efni sögunnar í aldarfjórðung, en Hlébarðinn kom fyrst út 1958, að höfundi látnum. Vakti sagan mikla athygli og var þýdd á mörg tungumál, á íslensku af Tómasi Guðmundssyni 1963. Leikstjórinn Visconti gerði fræga kvikmynd eftir Hlébarðanum með Burt Lancaster í aðalhlutverki.
Umsjón hefur Gunnar Stefánsson, en lesari er Þór Tulinius.
Vínil plata úr safninu dregin fram og spiluð í heild.
Vínill vikunnar í þetta sinn var fjórða hljómplata hljómsveitarinnar Beirut og heitir No No No sem kom út árið 2015.
A-hlið:
Gibraltar
No No No
At Once
August Holland
og As Needed
B-hlið:
Perth
Pacheco
Fener
So Allowed
aukalög í lok þáttar:
Nantes af plötunni The Flying Club Cup (2007)
Elephant Gun af samnefndri smáskífu (2007)
East Harlem af plötunni The Rip Tide (2011)
Rætt um menningarvikuna sem er að líða og það sem er efst á baugi og framundan um helgina.
Rætt um menningarvikuna sem er að líða, það sem er efst á baugi og framundan um helgina.
Gestir þáttarins eru: Helena Sif Gunnarsdóttir hjá Tónlistarmiðstöð, Aude Busson framkvæmdastjóri Klúbbs Listahátíðar í Reykjavík, Arnljótur Sigurðsson tónlistarmaður og útgefandi.
Umsjón: Bjarni Daníel Þorvaldsson.
Kvöldfréttir útvarps
Landsréttur ómerkti sýknudóm yfir hjúkrunarfræðingi sem varð sjúklingi að bana árið 2021. Lögmaður hjúkrunarfræðingsins segir niðurstöðuna vega að sjálfstæði ákæruvaldsins.
Eigandi Sauðárkróksbakarís segir það hafa verið ákveðið lán í óláni að keyrt var inn í afgreiðslusal bakarísins. Ökumaðurinn var undir áhrifum áfengis, fíkniefna og slævandi lyfja.
Tíu opinberar heimsóknir innanlands, fjórar erlendis og 20 vinnuferðir eru meðal verkefna Guðna Th. Jóhannessonar á þessu kjörtímabili. Hann flytur að meðaltali tvö ávörp og situr fimm til tíu fundi á viku.
Fréttir af slæmum aðbúnaði sauðfjár á búi í Borgarfirði valda íbúum og sveitarstjórnaryfirvöldum í Borgarbyggð áhyggjum segir sveitarstjóri, það sé hins vegar ekki sveitarfélagsins að grípa til aðgerða.
Joe Biden Bandaríkjaforseti kveðst reiðubúinn að takast á við Donald Trump mótframbjóðanda sinn í kappræðum fyrir forsetakosningarnar í nóvember. Hann hefur til þessa lítið vilja segja um mögulega þátttöku.
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Hulda Þórisdóttir, stjórnmálasálfræðingur, fer yfir stöðuna í komandi forsetakosningum sem metfjöldi frambjóðenda ætlar að taka þátt í. Fyrst verður hins vegar skyggnst á bakvið tjöldin og skoðað hvernig það er að vera forseti Íslands og hvað það er sem hann gerir.
Veðurstofa Íslands.
Dægurflugur og söngvar frá ýmsum tímum.
Umsjón: Jónatan Garðarsson.
Leikin er tónlist sem gítarleikarinn Mick Taylor hljóðritaði á sínum tíma með Bluesbreakers annarsvegar og Rolling Stones hinsvegar. Lögin sem hann leikur í með Bluesbreakers heita Oh Pretty Woman, No Reply, Hartley Quits og Ready to Ride. Lögin sem hann leikur með Rolling Stones heita Live With Me, Honky Tonk Women, Sway, Vertation Blues og Time Waits for No One.
Umsjón: Jónatan Garðarsson.
Fjallað er um skáldsöguna Hlébarðann eftir ítalska höfundinn Giuseppe di Lampedusa. Sagan gerist á Sikiley á seinni hluta nítjándu aldar og hefst árið 1860 þegar Garibaldi steig þar á land með sveit sína, en það leiddi til sameiningar Ítalíu í eitt ríki. Aðalpersónan er Fabrizio fursti og lýsir sagan viðbrögðum hans og fjölskyldunnar við miklum þjóðfélagsbreytingum sem gjörbreyta stöðu hennar. Giuseppe di Lampedusa var af aðalsætt. Hann hugsaði um efni sögunnar í aldarfjórðung, en Hlébarðinn kom fyrst út 1958, að höfundi látnum. Vakti sagan mikla athygli og var þýdd á mörg tungumál, á íslensku af Tómasi Guðmundssyni 1963. Leikstjórinn Visconti gerði fræga kvikmynd eftir Hlébarðanum með Burt Lancaster í aðalhlutverki.
Umsjón hefur Gunnar Stefánsson, en lesari er Þór Tulinius.
Upplýst og gagnrýnin umræða um samfélagsmál. Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir og Guðmundur Pálsson.
Stóri plokkdagurinn er á sunnudaginn. Þá flykkjast plokkarar víða um land út á götur, út í móa og í fjörur þessa lands með ruslapokana sína og plokktangir og tína rusl. Mikið rusl. Fleiri, fleiri tonn af rusli. Fyrir suma er plokk hluti af lífsstíl. Að gera samfélaginu gagn, njóta þess að vera úti og sjá árangur erfiðis síns. Það er Rótarý hreyfingin á Íslandi sem skipuleggur stóra plokkdaginn. Þar er verðandi umdæmisstjóri Jón Karl Ólafsson. við ræðum við hann.
Við höldum áfram að fjalla um almannarými. og ætlum að fjalla um torg, Edda ívarsdóttir, borgarhönnuður ætlar að ræða við okkur um hugsunina á bak við þau, hvernig torg eru hönnuð og hvernig fólk notar þau.
Sumarið er komið, farið að hlýna og plöntulíf og mannlíf að glæðast víða um land, í Austurstræti eru sölutjöldin komin upp, svört og í laginu eins og lítil hús og svo eru furðuverur á stjá í búningum, framhaldsskólanemar að dimmitera.
Við heyrum líka eina málfarsmínútu í umsjón Önnu Sigríðar Þráinsdóttur - um orðið einmitt.
Tónlist:
ÞURSAFLOKKURINN - Nútíminn.
TRAVIS - Sing.
Musgraves, Kacey - Deeper Well.
Heimildaskáldsaga eftir Björn Th. Björnsson. Guðmundur Ólafsson les.
Sagan gerist í Þingvallasveit á fyrri hluta nítjándu aldar, áður en tekið var að upphefja Þingvöll sem mesta helgistað landsins af skáldum og þjóðskörungum. Þá var Snorrabúð stekkur, eins og Jónas kvað.
Páll Þorláksson var prestur í Þingvallasókn. Hann þykist sjá að ekki sé allt samkvæmt kristilegum skikk á bænum Skógarkoti þar sem Kristján Magnússon fer með húsbóndavald. Ljóst þykir að eiginkona Kristjáns getur ekki verið móðir allra þeirra barna sem hann feðrar í sínum ranni. Hefjast út af þessu nokkrar væringar milli hins knáa húsbónda og Þingvallaklerks og má hið geistlega vald sín lengi vel næsta lítils í þeim viðskiptum.
Veðurstofa Íslands.
Um litróf mannlífsins.
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var leikarinn Hallgrímur Ólafsson, eða Halli melló eins og hann er oft kallaður. Hann er fæddur og uppalinn á Akranesi, hann starfaði meðal annars á Akraborginni og fór á sjóinn með pabba sínum. Hann byrjaði ungur að spila tónlist og syngja, fluttist um tvítugt til Reykjavíkur, fór í Leiklistarskólann, þar sem hann tengdi misvel við það sem þar var kennt og hefur svo meira og minna verið að leika í leikhúsunum frá því hann útskrifaðist. Við fórum með Hallgrími á handahlaupum í gegnum lífið til dagsins í dag.
Og svo sat Hallgrímur óvænt áfram með okkur og Sigurlaugu Margréti í matarspjallinu. Þar talaði hann um sinn uppáhaldsmat, purusteik, kjötfars, saltfisk og fleira.
Rætt um menningarvikuna sem er að líða og það sem er efst á baugi og framundan um helgina.
Rætt um menningarvikuna sem er að líða, það sem er efst á baugi og framundan um helgina.
Gestir þáttarins eru: Helena Sif Gunnarsdóttir hjá Tónlistarmiðstöð, Aude Busson framkvæmdastjóri Klúbbs Listahátíðar í Reykjavík, Arnljótur Sigurðsson tónlistarmaður og útgefandi.
Umsjón: Bjarni Daníel Þorvaldsson.
Útvarpsfréttir.
Matthías Már Magnússon og Hulda Geirsdóttir fylgja hlustendum inn í daginn með ljúfum tónum sem fara vel með fyrsta kaffibollanum.
Hulda fór um víðan völl í tónlistarvali dagsins, spilaði t.d. lög um rigningu þó sólin hafi látið sjá sig undanfarið. Ástin, lífið og tilveran - alls konar íslenskt og erlent í bland.
Lagalisti:
Pálmi Gunnarsson - Vegurinn heim.
The Carpenters - Rainy days and Mondays.
Emilíana Torrini - Let's keep dancing.
St. Etienne - Hug my soul.
Wings - My love.
Adele - When we were young.
Svavar Knútur - Refur.
Otis Redding - Sittin' on the dock of the bay.
Magni og Ágústa Eva - Þar til að storminn hefur lægt.
John Grant - Caramel.
Brook Benton - Rainy night in Georgia.
Warmland - Further.
Black Crowes - She talks to angels.
Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjón: Hafdís Helga Helgadóttir, Rúnar Róbertsson og Hulda G. Geirsdóttir.
Heimsmeistaramótið í snóker stendur yfir í Crucible höllinni í Sheffield á Englandi. Mótið hófst þann 20 apríl og nýr heimsmeistari verður krýndur þann 6 maí. Íslandsmeistaramótið í snóker tekur svo við en það endar þann 18. maí. Brynjar Valdimarsson, sjöfaldur Íslandsmeistari og varaformaður í stjórn Billiards sambands Íslands kíkti til okkar.
Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumálaráðherra, kynnti nýtt frumvarp sem er nú í Samráðsgátt stjórnvalda, um endurskoðun örorkulífeyriskerfisins. Hann kom á Rás2 í vikunni og sagði frá því helsta sem þar er að finna. Nafni hans Guðmundur Ingi Kristinsson, formaður þingflokks Flokks fólksins kom í spjall um málið.
Í dag rennur framboðsfrestur til embættis forseta Íslands út. Það stefnir í að í það minnsta 10 framboð skili inn fullútfylltum undirskriftalistum til yfirkjörstjórnar. Þar með verður baráttan um Bessastaði formlega hafin og við ræddum hvers má vænta í taktík frambjóðenda á næstu misserum með Andrési Jónssyni hjá Góðum samskiptum.
Lundahlaupið í Vestmannaeyjum, The Puffin Run, fer fram laugardaginn 4. maí. Uppselt er í hlaupið sem virðist alltaf vera jafn vinsælt hjá hlaupurum en það eru 1370 hlauparar skráðir, sem er mesti fjöldi sem hefur tekið þátt. Hvað er það sem gerir hlaupið svona vinsælt og hvað er það við útihlaup sem heillar fólk svona? Þær Katrín Laufey Rúnarsdóttir og brautarmethafinn Andrea Kolbeinsdóttir komu til okkar til að segja okkur aðeins frá hlaupinu og lífsstílnum
Fréttir vikunnar voru á sínum stað. Við ræddum það sem hæst bar á góma með alþingismönnunum Andrési Inga Jónssyni, Pírötum og Orra Páli Jóhannssyni, Vinstri grænum.
Hjartagosar á Rás 2 eru vinir í raun á besta tíma dagsins.
Tónlist, dægurmál, menning og íþróttir.
Hjartagosar á Rás 2, fyrir þig frá klukkan 9 alla virka daga.
Umsjón: Þórður Helgi Þórðarson og Andri Freyr Viðarsson.
Kvartettinn Barbari er á leið erlendis á söngmót söngsveita og halda tónleika í Dómkirkjunni á morgun til að safna fyrir ferðinni.
Þeir sungu fyrir hlustendur í beinni útsendingu rétt eins og "kraftballsveitin" Gular Baunir en þeir verða með ball á Lemmy á morgun.
Gular Baunir spila ballrokk í þyngri kantinum og sungu og léku fyrir Gosa og þjóðina hressan smell frá hljómsveitinni Korn.
Fuglar flögruðu um lagalista fólksins og allir í stuði.
Tónlist frá útsendingarlogg 2024-04-26
MANNAKORN - Garún.
ECHO AND THE BUNNYMEN - Bring On The Dancing Horses.
Kravitz, Lenny - Human.
DUSTY SPRINGFIELD - Son Of A Preacher Man.
Jóipé x Króli, USSEL, JóiPé, Króli - Í Fullri Hreinskilni.
Ice Cube, Ms Toi, Mack 10 - You can do it.
Lorde - Take Me to the River.
TERENCE TRENT D'ARBY - Wishing Well.
BJÖRG PÉ - Timabært.
HIPSUMHAPS - Hjarta.
10 CC - Dreadlock Holiday.
Djo - End of Beginning.
PRIMAL SCREAM - Country Girl.
Steingrímur Karl Teague, Una Stefánsdóttir - The Force.
CHIC - Le Freak.
Kristín Sesselja - Exit Plan.
BLUR - Girls And Boys.
GusGus - Breaking Down (Radio Edit).
Utangarðsmenn - Fuglinn er floginn.
Trashmen, the - Surfin' bird.
THE BEATLES - Blackbird.
BOB MARLEY & THE WAILERS - Three Little Birds.
Helena Eyjólfsdóttir, Lange, Walter - Hvítu mávar.
A Flock Of Seagulls - Space Age Love Song.
PRINCE - When doves cry.
Fatboy Slim - Sunset (Bird Of Prey) (SÓNAR 2017).
ANOUK - Birds.
Alessi Brothers - Seabird.
Póló og Erla - Lóan er komin.
Ljótu hálfvitarnir - Þegiðu Lóa!.
FLEETWOOD MAC - Albatross.
ALBATROSS - Ég ætla að skemmta mér.
NELLY FURTADO - I'm Like A Bird.
HÖRÐUR TORFA - Litli Fugl.
Elly Vilhjálms - Lítill fugl.
200.000 NAGLBÍTAR - Lítill Fugl.
LYNYRD SKYNYRD - Freebird.
Útvarpsfréttir.
Útvarpsfréttir.
Kvikuhólfið undir Svartsengi er komið að þolmörkum, segir jarðeðlisfræðingur. Óvissa um framhaldið sé meiri en áður enda mjög óvenjulegt að land rísi á sama tíma og gýs.
Tólf skiluðu listum yfir meðmælendur í morgun vegna framboðs til embættis forseta Íslands. Það skýrist eftir helgi hversu mörg þeirra verða í framboði.
Kínverjar og Bandaríkjamenn eiga að vera félagar, ekki fjendur. Þetta sagði forseti Kína við utanríkisráðherra Bandaríkjanna sem heimsótti hann í morgun. Samband ríkjanna tveggja fer batnandi, þótt stöðugt reyni á það.
Formaður Stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur vonar að hægt veðri að birta tilteknar upplýsingar úr skýrslu Innri endurskoðunar borgarinnar um Ljósleiðarann. Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins segir skýrsluna innihalda upplýsingar um trúnaðarbrot og eiga erindi við almenning.
Hátt í fjögur hundruð lík hafa verið grafin upp úr þremur fjöldagröfum við Nasser-sjúkrahúsið í Khan Younis á Gaza. Sameinuðu þjóðirnar og Evrópusambandið kalla eftir óháðri alþjóðlegri rannsókn á málinu.
Enn eru engar lausnir í sjónmáli fyrir eldri borgara frá Grindavík. Forstöðumaður heimaþjónustudeildar segir tíma til kominn að ríkið beiti sér fyrir þennan hóp fólks. Á næstu mánuðum munu hátt í fimmtíu þeirra missa húsnæði sín.
Poppland er vinur í raun og land án landamæra. Poppland er einn elsti og dáðasti tónlistarþáttur landsins. Umsjón: Sigurður Þorri Gunnarsson, Lovísa Rut Kristjánsdóttir og Matthías Már Magnússon.
Matthías Már og Siggi Gunnars stýrðu Popplandi dagsins, fullu af allskonar tónlist.
Spiluð lög:
12.40 til 14.00
HELGI BJÖRNS - Besta útgáfan af mér.
FUTURE ISLANDS - Seasons (Waiting On You).
UNDERTONES - Teenage kicks.
ÁSGEIR TRAUSTI - Nýfallið regn.
WARREN G - Regulate ft. Nate Dogg.
TAYLOR SWIFT OG POST MALONE - Fortnight.
CAKE - The Distance.
AMABADAMA - HossaHossa.
KASPER B OG SYSTUR - Conversations.
KINGS OF LEAON - Nothing To Do.
ENSÍMI - Arpeggiator.
EMMSJÉ GAUTI - Taka mig í gegn.
BIRKIR BLÆR - Leaders.
LYNYRD SKYNYRD - Sweet Home Alabama.
PRINS PÓLÓ - Átján og hundrað.
MUMFORD AND SONS OG PHARREL WILLIAMS - Good People.
THE DECEMBERISTS - Burial Ground.
THE MARIAS - Run Your Mouth.
ROLLING STONES - (I Can't Get No) Satisfaction.
14.00 til 16.00
GDRN - Þú sagðir.
GDRN - Háspenna.
LENNY KRAVITZ - Human.
LENNY KRAVITZ - I belong to you.
SAM FENDER - Seventeen Going Under.
PÍLA - Nobody.
TEARS FOR FEARS - Mad World.
NIA ARCHIVES - Cards On The Table.
JOHN MAYER - New Light.
CELEBS - Spyrja eftir þér.
HREKKJUSVÍN- Gagn og gaman.
HURRAY FOR THE RIFF RAFF- Alibi.
TEITUR MAGNÚSSON - Sjalið.
JELLY ROLL - Need A Favor.
HELGI BJÖRNS - Strax í dag.
SLY & THE FAMILY STONE - Dance To The Music.
SIGUR RÓS - Við spilum endalaust.
BENSON BOONE - Beautiful Things.
ARTEMAS - I like the way you kiss me.
KALEO - No Good.
OLIVIA RODRIGO - Obsessed.
ÞÚ OG ÉG - Dans, Dans, Dans.
Þau Valur Grettisson, Guðrún Dís Emilsdóttir og Hrafnhildur Halldórsdóttir halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu á daginn. Þau fylgjast vel með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.
13 skiluðu listum áður en framboðsfrestur til embættis forseta Íslands rann út á hádegi í dag. Framundan er spennandi kosningabarátta og má gera ráð fyrir að um fátt annað verði fjallað í fjölmiðlum næstu misserin. Mogginn ætlar að vera með skemmtilega nýjung í umfjöllun sinni í aðdraganda kosninganna og hingað til mín á eftir kemur Andrés Magnússon blaðamaður og fulltrúi ristjóra til að segja okkur frá því sem í boði verður á Morgunblaðinu en auk þess ætlum við að ræða frambjóðendurna og baráttuna sem framundan er.
Fyrir skömmu kom Kjartan Þórsson læknir til okkar til að segja okkur frá Prescriby en Prescriby er hugbúnaðarkerfi sem að gerir heilbrigðisstarfsfólki kleift að veita öruggari meðferðir og eftirfylgd með sterkum verkjalyfjum, róandi og svefnlyfjum. Kerfið var þróað á Íslandi af læknum og forriturum og er nú komið í notkun á nokkrum stöðum á Íslandi auk þess sem að kerfið á að vera farið í loftið í Kanada og er á leið í loftið í Danmörku síðar á þessu ári. Nú eru nýjar og ánægjulegar fréttir að berast af þessu sprotafyrirtæki sem vinnur að ópíóíða forvörnum en Prescriby var að ljúka 300 milljón króna hlutafjárútboði. Við sláum á þráðinn til Kjartans Þórssonar á eftir og fáum að heyra betur af þessu.
Síðasta laugardag í apríl, tileinka Slow Food samtökin um heim allan baráttunni við matarsóun en um þriðjungur allra framleiddra matvæla fara í ruslið á heimsvísu, talið er að matarsóun ein og sér sé ábyrg fyrir losun 8 - 10% allra gróðurhúslofttegunda. Hér í Reykjavík verða um helgina haldnir Diskósúpudagar Slow Food og sú sem veit allt um málið heitir Dóra Svavarsdóttir matreiðslumeistari og kennari og hún ætlar að segja okkur betur frá Diskósúpunni á eftir auk þess sem við ræðum við hana um mikilvægi þess að minnka matarsóun.
Í gær var sumardagurinn fyrsti og því náðum við ekki að koma MEME-i vikunnar að eins og alla fimmtudaga þannig að Atli Fannar Bjarkason kemur til okkar á eftir með sjóðandi heitt MEME.
Nú í apríl stendur yfir hönnunar mars og við ætlum að beina sjónum okkar að hönnun í þættinum. Við ætlum að heyra í Erni Smára Gíslsyni hönnuði en hann hefur verið heltekin af þeim formum sem hægt er að finna í auðlindinni sem er allt í kringum landið, sjónum. Hann er með sýningu sem opnaði í gær í Sjávarklasanum og hefur yfirskriftina Sæ:flúr. Meira um það á eftir.
Bergur Vilhjálmsson starfar hjá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins sem slökkviliðs-, og sjúkraflutningamaður en hann er í þessum töluðu orðum að ganga frá Akranesi, inn og út Hvalfjörðinn og til Reykjavíkur alls 100 kílómetra með sleða hlaðinn 100 kílóum. Þetta gerir hann allt til að heiðra minningu mömmu besta vinar síns, en hún lést fyrir einu og hálfi ári síðan eftir mikil andleg veikindi og er þetta söfnunarganga fyrir Píeta en Píeta eru eins og allir vita samtök sem sinna forvarnarstarfi gegn sjálfsvígum og sjálfsskaða og styðja við aðstandendur. Við ætlum að heyra í Bergi eftir smá stund og heyra hvernig ferðalaginu miðar og hvernig hann hafi það á þessari erfiðu göngu.
Kvöldfréttir útvarps
Landsréttur ómerkti sýknudóm yfir hjúkrunarfræðingi sem varð sjúklingi að bana árið 2021. Lögmaður hjúkrunarfræðingsins segir niðurstöðuna vega að sjálfstæði ákæruvaldsins.
Eigandi Sauðárkróksbakarís segir það hafa verið ákveðið lán í óláni að keyrt var inn í afgreiðslusal bakarísins. Ökumaðurinn var undir áhrifum áfengis, fíkniefna og slævandi lyfja.
Tíu opinberar heimsóknir innanlands, fjórar erlendis og 20 vinnuferðir eru meðal verkefna Guðna Th. Jóhannessonar á þessu kjörtímabili. Hann flytur að meðaltali tvö ávörp og situr fimm til tíu fundi á viku.
Fréttir af slæmum aðbúnaði sauðfjár á búi í Borgarfirði valda íbúum og sveitarstjórnaryfirvöldum í Borgarbyggð áhyggjum segir sveitarstjóri, það sé hins vegar ekki sveitarfélagsins að grípa til aðgerða.
Joe Biden Bandaríkjaforseti kveðst reiðubúinn að takast á við Donald Trump mótframbjóðanda sinn í kappræðum fyrir forsetakosningarnar í nóvember. Hann hefur til þessa lítið vilja segja um mögulega þátttöku.
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Hulda Þórisdóttir, stjórnmálasálfræðingur, fer yfir stöðuna í komandi forsetakosningum sem metfjöldi frambjóðenda ætlar að taka þátt í. Fyrst verður hins vegar skyggnst á bakvið tjöldin og skoðað hvernig það er að vera forseti Íslands og hvað það er sem hann gerir.
Sultan er 30 mínútna lagalisti settur saman fyrir þig í hverri viku. Hlustaðu á Sultuna í útvarpinu eða í spilaranum þegar þér hentar. Á föstudögum er sulta dagsins indie disco.
Fréttastofa RÚV.
Lykilorð þáttarins Fuzz er Rokk! Það er Fuzztudagskvöld og þá er Rokk á Rás 2. Hér verður allskonar rokk; nýtt rokk, kántrí-rokk, 70´s, 60´s, 80´s 50´s, 90´s rokk og þungarokk. Rokkið fær sjálft að tala og syngja og maður á að hlusta hátt.
Joey Jordison hefði orðið 49 ára í dag og hans var minnst í þætti kvöldsins með því að spila nóg af Slipkno í bland við nóg af öðrum metal og nóg af rokki.
Gluggagægir (2023) - Purrkur Pillnikk
Sæglópur - Sigur Rós
Eyeless - Slipknot
Be Quiet and Drive (Far Away) - Deftones
Here comes the night - Mínus
Sick, sick, sick - Queens of The Stone Age
The Heretic Anthem - Slipknot
Would? - Alice In Chains
Good Samiritan - The Hives
Deer Dance - System of a Down
My Plague - Slipknot
First It Giveth - Slipknot
Svuntuþeysir - Botnleðja
They Say - Scars On Broadway
Duality - Slipknot
Enfilade - At the Drive In
Be Quick Or Be Dead - Iron Maiden
Left Behind - Slipknot
Eye Of The Beholder - Metallica
Between The Hammer and The Anvil - Judas Priest
Nonsense - Jan Mayen
Siva - Smashing Pumpkins
Pure Morning - Placebo
Never Fight A Man With A Perm - Idles
Violet - Hole
I Hope You Die - Bloodhound Gang
Fuckin' In The Bushes - Oasis
Dope - Debonaire
Career Opportunities - The Clash
Ég og þú - Fræbbblarnir
Happy Idiot - TV On The Radio
Love Will Tear Us Apart - Joy Division
Flotkví - Ensími
Nr. 13 Baby - Pixies
What You Isn't - The Brian Jonestown Massacre
Underdog - Kasabian
Wild Horses - Rolling Stones
Blönduð tónlist frá því í kringum aldamótin.