Sportrásin

Besta deild kvenna, Arsenal, Góð íþrótt Gulli betri og bestu Kanar körfunnar.

Jóhann Fjalar hitaði upp fyrir bestu deild kvenna sem byrjar á föstudaginn og við ræddum aðeins landsliðið í leiðinni. Sigurður Hilmar Guðjónsson formaður Arsenal klúbbsins og Atli Viðar Bragason frv stjórnarmaðurræddu stöðuna á liðinu og stórleikinn síðar í dag (Man City vs. Arsenal).

Gunnlaugur Jónsson mætti með sitt innslag, Góð íþrótt Gulli betri þar sem hann ræddi við Gylfa Tryggvason þjálfara nýliða ú Bestudeild kvenna, sameinaðs liðs Njarðvík/Grindavík um ótrúlegan uppgang liðsins.

Svali Björgvinsson valdi fimm eftirminnilegustu Bandaríkjamennina í körfuboltanum hér heima og Sigurbjörn Árni Arngrímsson sagði okkur frá 18 ára Ástrala sem á vera fljótari en Bolt þegar hann var 18 ára en nei..... auðvitað er grunur um maðk í mysu og fólk talar um þetta allt svindl.

Lagalisti dagsins

Júlí Heiðar Halldórsson, Ragga Holm - Líður vel.

James - Sit Down.

Warmland - All for All.

THE KILLERS - Mr.Brightside.

ROXY MUSIC - Let's stick together.

SILK SONIC - Smokin' Out The Window.

OASIS - Don't Look Back In Anger.

Sade - The Sweetest taboo.

Birnir - Alveg farinn.

KK - Lífið er.

THE CLASH - Should I Stay Or Should I Go.

PRINCE - Kiss.

Flott - Tuttugu og eitthvað.

Moses Hightower - Ráðahagur.

LEN - Steal My Sunshine.

Spoon - Taboo.

ABBA - The name of the game.

hOFFMAN - Fallbeygðu mig.

YELLO - Desire (80).

MT Jones - I Don't Understand.

Birt

19. apríl 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Sportrásin

Á Sportrásinni fylgist Doddi með því sem er gerast í íþróttalífinu hér heima og erlendis. Helstu íþróttafréttir vikunnar og hvað er framundan með góðri aðstoð íþróttadeildar RUV. Ásamt gæða sunnudags tónlist.

Sportrásin, ekki bara fyrir þá sem hafa gaman af sportinu!

Þættir

,