Samtíminn

Samtíminn - umræður um samfélagsbreytingar á liðnum áratugum. Jafnréttismál

Í þættinum verður rætt um jafnréttismál og þróun í þeim efnum frá miðri síðustu öld fram til okkar daga. Rætt verður um hvernig atvinnuþátttaka kvenna breyttist, helstu baráttumál kvenahreyfinga fyrr og nú, Kvennaverkföllin og fleira. Þá var velt upp spurningunni hvort bakslag hafi orðið í jafnréttismálum. Þátttakendur: Ingólfur V. Gíslason prófessor í félagsfræði við Háskóla Íslands og Valgerður Pálmadóttir lektor við Háskólann á Akureyti.

Birt

15. feb. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Samtíminn

Í þáttunum er rætt um þær miklu breytingar sem orðið hafa á íslensku samfélagi frá miðri síðustu öld og fram á okkar daga. Reynt er gefa hlustendum innsýn í þróun samfélags okkar á þessu tímabili, helstu orsakir og afleiðingar þeirra breytinga sem átt hafa sér stað. Rætt verður um réttarfar, skólamál, skipulagsmál, jafnréttismál og fleira. Í hverjum þætti eru tveir sérfræðingar sem þekkja vel til viðfangsefnisins hverju sinni.

Umsjón: Þorgeir Ólafsson

Þættir

,