Samtíminn

Samtíminn - umræður um samfélagsbreytingar á liðnum áratugum, náttúruvernd

Í þættinum verður rætt um ýmsar hliðar náttúruverndar og umhverfismála. Komið er inn á landgræðslu, skógrækt, virkjunarmál og sjókvíaeldi. Þróun og breytingar á áherslum í þessum málum eru einnig ræddar ásamt ýmsu öðru. Þátttakendur eru Björg Eva Erlendsdóttir framkvæmdastjóri Landverndrar og Skúli Skúlason prófessor í líffræði við Háskólann á Hólum og sérfræðingur hjá Náttúruminjasafni Íslands.

Birt

8. feb. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Samtíminn

Í þáttunum er rætt um þær miklu breytingar sem orðið hafa á íslensku samfélagi frá miðri síðustu öld og fram á okkar daga. Reynt er gefa hlustendum innsýn í þróun samfélags okkar á þessu tímabili, helstu orsakir og afleiðingar þeirra breytinga sem átt hafa sér stað. Rætt verður um réttarfar, skólamál, skipulagsmál, jafnréttismál og fleira. Í hverjum þætti eru tveir sérfræðingar sem þekkja vel til viðfangsefnisins hverju sinni.

Umsjón: Þorgeir Ólafsson

Þættir

,