Samtíminn

Samtíminn - umræður um samfélagsbreytingar á liðnum áratugum.

Samtíminn - umræður um samfélagsbreytingar á liðnum áratugum: Réttarfar.

Í þættinum verður rætt um réttarfar á Íslandi á undanförnum áratugum. Meðal annar er rætt um miklar breytingar á rannsóknum lögreglu vegna framfara í tæknimálum, breytingar á réttarkerfinu þegar lokið var við aðskilnað dómsvalds og framkvæmdavalds, þróun löggjafar um persónuvernd og fleira. Viðmælendur eru Davíð Þór Björgvinsson deildarforseti lagadeildar Háskólans á Akureyri og fyrrverandi dómari við Mannréttindadómstól Evrópu og Landsrétt og Ingibjörg Þorsteinsdóttir dómstjóri Héraðsdóms Reykjavíkur.

Frumflutt

18. jan. 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Samtíminn

Í þáttunum er rætt um þær miklu breytingar sem orðið hafa á íslensku samfélagi frá miðri síðustu öld og fram á okkar daga. Reynt er gefa hlustendum innsýn í þróun samfélags okkar á þessu tímabili, helstu orsakir og afleiðingar þeirra breytinga sem átt hafa sér stað. Rætt verður um réttarfar, skólamál, skipulagsmál, jafnréttismál og fleira. Í hverjum þætti eru tveir sérfræðingar sem þekkja vel til viðfangsefnisins hverju sinni.

Umsjón: Þorgeir Ólafsson

Þættir

,