Samfélag og samfélagsmiðlar

Líðan ungs fólks í netheimum

Í rannsókn Fjölmiðlanefndar og Menntavísindasviðs Háskóla Íslands um börn og netmiðla kemur ýmislegt fram sem vakið hefur fólk til umhugsunar, til dæmis hve miklum tíma börn og unglingar verja á samfélagsmiðlunum, neteinelti, óviðeigandi myndasendingar, áhorf á klám og fleira. Í þættinum er rætt Ingibjörg Eva Þórisdóttir doktor í sálfræði og sérfræðing hjá Planet Youth um niðurstöður rannsókna um líðan barna og unglinga í netheimum. Umsjónarmaður: Þorgeir Ólafsson.

Frumflutt

1. des. 2022

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Samfélag og samfélagsmiðlar

Samfélag og samfélagsmiðlar

Í þáttunum er rætt um samfélagsmiðlana út frá mörgum sjónarhornum: Hvað er jákvætt eða neikvætt við þessa miðla, hvaða úrlausnarefni, áskoranir og hugsanlegar hættur stafa af þeim. Komið er inn á hatursorðræðu, öfgahópa, samsæris- og afneitunarsinna, áhrif á kosningar, skautun og traust í samfélaginu. Einnig um áhrif á líðan barna og unglinga, niðurstöður helstu rannsókna um notkun á samfélagsmiðlum og hlutverk fjölmiðla í almannaþágu á tímum upplýsingaóreiðu.

Umsjón: Þorgeir Ólafsson.

,