Samfélag og samfélagsmiðlar

Lýðræðið og traustið

margra mati hefur umræða á samfélagsmiðlum stuðlað aukinni skautun í samfélögum víða um heim og grafið undan trausti almennings á stofnunum þeirra. Margvíslegar rannsóknir hafa verið gerðar um þessa hluti og fleiri sem snerta áhrif samfélagsmiðlana á stjórnmál, traust og lýðræðiskerfi. Í þættinum er rætt við Jón Gunnar Ólafsson nýdoktor við Háskóla Íslands. Umsjónarmaður: Þorgeir Ólafsson.

Frumflutt

1. des. 2022

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Samfélag og samfélagsmiðlar

Samfélag og samfélagsmiðlar

Í þáttunum er rætt um samfélagsmiðlana út frá mörgum sjónarhornum: Hvað er jákvætt eða neikvætt við þessa miðla, hvaða úrlausnarefni, áskoranir og hugsanlegar hættur stafa af þeim. Komið er inn á hatursorðræðu, öfgahópa, samsæris- og afneitunarsinna, áhrif á kosningar, skautun og traust í samfélaginu. Einnig um áhrif á líðan barna og unglinga, niðurstöður helstu rannsókna um notkun á samfélagsmiðlum og hlutverk fjölmiðla í almannaþágu á tímum upplýsingaóreiðu.

Umsjón: Þorgeir Ólafsson.

Þættir

,