Samfélag og samfélagsmiðlar

Hvernig aflar fólk sér upplýsinga?

Fjölmiðlanefnd hefur staðið fyrir rannsóknum á fjölmiðlanotkun fólks og einnig hvernig það notar samfélagsmiðlana. Lykilspurningin er hvernig fólk aflar sér upplýsinga, bæði á hefðbundnum fjölmiðlum og á samfélagsmiðlum. Skúli B. Geirdal verkefnastjóri hjá fjölmiðlanefnd segir frá helstu niðurstöðum þessara rannsókna. Umsjónarmaður: Þorgeir Ólafsson.

Frumflutt

1. des. 2022

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Samfélag og samfélagsmiðlar

Samfélag og samfélagsmiðlar

Í þáttunum er rætt um samfélagsmiðlana út frá mörgum sjónarhornum: Hvað er jákvætt eða neikvætt við þessa miðla, hvaða úrlausnarefni, áskoranir og hugsanlegar hættur stafa af þeim. Komið er inn á hatursorðræðu, öfgahópa, samsæris- og afneitunarsinna, áhrif á kosningar, skautun og traust í samfélaginu. Einnig um áhrif á líðan barna og unglinga, niðurstöður helstu rannsókna um notkun á samfélagsmiðlum og hlutverk fjölmiðla í almannaþágu á tímum upplýsingaóreiðu.

Umsjón: Þorgeir Ólafsson.

Þættir

,