PartyZone: Dansþáttur þjóðarinnar á RÚV

Party Zone listinn fyrir júlí og ágúst

Dansþáttur þjóðarinnar gramsar í plötukössum plötusnúðana og grúska í helstu kreðsum danstónlistarinnar og úr verður glænýr PartyZone listi - Topp 30 sem við kynnum og flytjum í þessum þætti. Danstónlist úr ýmsum áttum og allt það heitasta þessa dagana. Listinn gildir fyrir júlí og ágúst.

Frumflutt

18. ágúst 2023

Aðgengilegt til

17. ágúst 2024
PartyZone:  Dansþáttur þjóðarinnar á RÚV

PartyZone: Dansþáttur þjóðarinnar á RÚV

PartyZone, oft nefndur Dansþáttur þjóðarinnar, er kominn aftur heim á RÚV eftir nokkura ára fjarveru en þátturinn var á dagskrá Rásar 2 á laugardagskvöldum í

16 ár (1999-2014).

Þátturinn er líklega elsti starfandi útvarpsþátturinn á Íslandi en hann hóf göngu sína á framhaldsskólaútvarpsstöðinni Útrás haustið 1990.

Sem fyrr er PartyZone útvarpsþáttur danssenunnar og plötusnúðanna á Íslandi. Í þættinum er farið yfir allt það nýjasta og heitasta í danstónlistinni í bland við klassikar perlur danstónlistarinnar sem heita þá múmíur kvöldsins. PartyZone listinn Topp 30 er fyrirferðamikill dagskrárliður þar sem við fáum plötusnúðana til liðs við okkur við val listans.

Við munum betri plötusnúða þjóðarinnar í heimsókn í þáttinn þar sem þeir taka Dj sett. Þátturinn er ávalt nálægt skemmtanalífinu og flytur fréttir af því helsta sem er gerast í danslífi landsmanna.

Umsjónarmenn: Helgi Már Bjarnason og Kristján Helgi Stefánsson ásamt reglulegri aðstoð frá Símoni Guðmundssyni (Simon FKNHNDSM).

Þættir

,