PartyZone: Dansþáttur þjóðarinnar á RÚV

Topp 30 - Apríl/maí

PartyZone - Dansþáttur þjóðarinnar kynnir glænýjan Topp 30 lista fyrir apríl/maí.

Öll nýjasta og heitasta danstónlistin sem er trylla fólkið á dansgóflunum. Sem fyrr eru það plötusnúðarnir sem hálpa þáttastjórnendum koma listanum saman. Við læðum múmíu kvöldsins sömuleiðis í loftið, en þessu sinni er það lag sem var á PZ listanum um mitt ár 2002.

Frumflutt

26. maí 2023

Aðgengilegt til

25. maí 2024
PartyZone:  Dansþáttur þjóðarinnar á RÚV

PartyZone: Dansþáttur þjóðarinnar á RÚV

PartyZone, oft nefndur Dansþáttur þjóðarinnar, er kominn aftur heim á RÚV eftir nokkura ára fjarveru en þátturinn var á dagskrá Rásar 2 á laugardagskvöldum í

16 ár (1999-2014).

Þátturinn er líklega elsti starfandi útvarpsþátturinn á Íslandi en hann hóf göngu sína á framhaldsskólaútvarpsstöðinni Útrás haustið 1990.

Sem fyrr er PartyZone útvarpsþáttur danssenunnar og plötusnúðanna á Íslandi. Í þættinum er farið yfir allt það nýjasta og heitasta í danstónlistinni í bland við klassikar perlur danstónlistarinnar sem heita þá múmíur kvöldsins. PartyZone listinn Topp 30 er fyrirferðamikill dagskrárliður þar sem við fáum plötusnúðana til liðs við okkur við val listans.

Við munum betri plötusnúða þjóðarinnar í heimsókn í þáttinn þar sem þeir taka Dj sett. Þátturinn er ávalt nálægt skemmtanalífinu og flytur fréttir af því helsta sem er gerast í danslífi landsmanna.

Umsjónarmenn: Helgi Már Bjarnason og Kristján Helgi Stefánsson ásamt reglulegri aðstoð frá Símoni Guðmundssyni (Simon FKNHNDSM).

Þættir

,