Morgunútvarpið

Leyft öllum aldurshópum

Messi messa,Rubio,dagbók úr Grindavík og umdeildur hægri vasi

Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, fundaði með Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, utanríkisráðherra og Kristrúnu Frostadóttur, forsætisráðherra í gær. Þorgerður Katrín tók á móti Rubio í Höfða og þaðan lá leiðin í Safnahúsið við Hverfisgötu þar sem fundurinn fór fram. Stefna Bandaríkjanna í utanríkismálum virðist tilviljanakennd undir stjórn Donalds Trump og það er því eðlileg að velta fyrir sér hvað býr raunverulega að baki heimsókn Marco Rubio, sem virtist á yfirborðinu vera kurteisisheimsókn. Sveinn Máni Jóhannesson, doktor í sagnfræði, ætlar að rýna með okkur í heimsóknina.

Karitas Nína Viðarsdóttir er Grindvíkingur í húð og hár. Hún hefur sent frá sér bókina Neyðarástand, Dagbók móður úr Grindavík þar sem hún fjallar um skyndilegt heimilisleysi og sorgina sem fylgdi því að sjá bæinn sinn verða náttúruöflunum að bráð. Hún fjallar líka um öryggisleysið og óvissuna sem fylgir þvílíkum hremmingum og angist þess að vera gjörsamlega máttvana og bjargarlaus þegar heimili þitt, æskuslóðir, líf þitt allt og samastaður í heiminum riðar til falls. Karitas Nína kemur til okkar.

Lionel Messi, af mörgum talinn besti fótboltamaður sögunnar, lét síðasta landsleikinn sinn fyrir Argentínu í gærkvöldi gegn ...Benín? Dáðasti fótboltamaður samtímans lék sem sagt kveðjuleikinn sinn við lið sem er í 93. Sæti á heimslistanum. Eitthvað sem sagnfræðingurinn og sparkspekingurinn Stefán Pálsson kallar aðdáunarverða vanhæfni í skipulagi. Stefán rýnir með okkur í magnaða arfleifð geitarinnar.

Umdeildar breytingar voru gerðar á gatnamótum Bæjarháls og Höfðabakka í fyrrasumar þegar tvö hægribeygjuframhjáhlaup voru fjarlægð og akreinaskipan breytt. Nú stendur til að breyta gatnamótunum á ný; lengja akreinar, sem er tillaga úr skýrslu verkfræðistofunnar Cowi um gatnamótinog bæta við einu framhjáhlaupi sem umrædd verkfræðistofa mæli gegn. Brynhildur Bolladóttir, formaður Samtaka um bíllausan lífstíl, gagnrýnir það að bæta við framhjáhlaupinu þvert á ráðleggingar í skýrslunni og ætlar að koma til okkar í spjall.

Birt
Aðgengilegt til
Rennur ekki út
Lengd

Morgunútvarpið

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Þættir

,