Heilahristingur

Tónlistarhérinn - Annar þáttur

Tónlistarhérinn heldur áfram í dag, föstudaginn langa og eru mætt tvö eldspræk lið. Við sögu í keppni dagsins koma meðal annars Karaeoke-neglur, Íslenskir ,,nineties" hittarar, Bob Dylan, Taylor Swift og þá reyna liðin bregða fæti fyrir hvort annað með því velja svínslegan lagalista fyrir andstæðinga sína. Það eru lið Tvöfalda vaffsins, þeirra Vigdísar Hafliðadóttur og Villa Netó sem mæta liði KVals þeim Einari Erni Jónssyni og Kjartani Guðmundssyni í fjörlegri og spennandi keppni.

Frumflutt

7. apríl 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Heilahristingur

Heilahristingur

Heilahristingur er léttur og skemmtilegur spurningaþáttur þar sem tvö lið svara spurningum um allt milli himins og jarðar. Þetta misserið mun nýr gestaspyrill vikunnar sitja með Jóhanni Alfreð um hverja helgi og ákveða þemu þáttarins.

Þættir

,