Það verða eflaust fjölmörg á faraldsfæti um helgina og kannski freistast til að elta veðrið með tjald og útilegubúnað - og þá skiptir nú máli að vera vel búin. Róbert Marshall er flestum landsmönnum kunnur fyrir störf sín í fjölmiðlum en honum líður þó hvergi betur en á fjöllum, í tjaldi eða úti í guðsgrænni náttúrunni. Róbert kom til okkar með eiginlegan gátlista um hvað ber helst að hafa í huga áður en lagt er af stað, hvort veðrið aftraði okkur í útiveru og ítrekaði þá að versta veðrið væri iðulega í forstofunni heima hjá okkur.
Við litum yfir dagskrá helgarinnar í menningu og mannlífi og töldum upp helstu bæjarhátíðir sem verða um allt land þessa helgina. Miðaldahátíð á Gásum, Franskir dagar, Mannfólkið breytist í slím og Bryggjuhátíð á Drangsnesi eru nokkur dæmi um rétti á menningarhlaðborði helgarinnar.
Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum er vafalaust ein vinsælasta útihátíðin sem haldin er um Verslunarmannahelgina á ári hverju og hefur skipað sér stóran sess hjá þjóðinni í árafjöld. Þjóðhátíð hefur ávallt að skipa landsfrægu tónlistarfólki og skemmtikröftum og býður upp á skemmtilega dagskrá fyrir alla fjölskylduna. Í vikunni kom fram í fréttum að miðasala á Þjóðhátíð væri með lakara móti og stefni í fámennari hátíð en áður. Jónas Guðbjörn Jónsson er formaður þjóðhátíðarnefndar og hann var á línunni.
Og það er gervigreindin sem er allt í öllu og nú í stjórnarráðinu því á dögunum tók til starfa starfshópur um nálgun stjórnvalda í málefnum gervigreindar. Hlutverk hópsins er að meta stefnu, aðgerðir og áherslur stjórnvalda í málaflokknum heildstætt í ljósi hraðrar þróunar gervigreindar og gera tillögur um aðgerðir, forgangsröðun og úrbætur. Hópinn skipa fimm sérfræðingar á sviði gervigreindar. Þeirra á meðal er Hjálmar Gíslason, framkvæmdastjóri GRID en hann er jafnframt formaður hópsins og hann sagði okkur nánar frá þessari vinnu.
Við fórum vitaskuld yfir fréttir vikunnar í enda þáttar, eins og endranær á föstudögum. Það var fjölbreytt fréttavika að baki og það sem stóð hvað helst upp úr hjá viðmælendum okkar þessa vikuna var koma viðartittlings til Íslands, fótboltaforeldrar, ferðaveðrið og að sjálfsögðu HM í fótbolta. Gestir okkar voru Stefán Pálsson sagnfræðingur og varaborgarfulltrúi og Björt Ólafsdóttir fyrrum ráðherra og nú fasteignamógúll.