Fram undan

Starfshópur um málefni gervigreindar, stopul miðasala á Þjóðhátíð, snjallræðin í útileguna og fréttir vikunnar

Það verða eflaust fjölmörg á faraldsfæti um helgina og kannski freistast til elta veðrið með tjald og útilegubúnað - og þá skiptir máli vera vel búin. Róbert Marshall er flestum landsmönnum kunnur fyrir störf sín í fjölmiðlum en honum líður þó hvergi betur en á fjöllum, í tjaldi eða úti í guðsgrænni náttúrunni. Róbert kom til okkar með eiginlegan gátlista um hvað ber helst hafa í huga áður en lagt er af stað, hvort veðrið aftraði okkur í útiveru og ítrekaði þá versta veðrið væri iðulega í forstofunni heima hjá okkur.

Við litum yfir dagskrá helgarinnar í menningu og mannlífi og töldum upp helstu bæjarhátíðir sem verða um allt land þessa helgina. Miðaldahátíð á Gásum, Franskir dagar, Mannfólkið breytist í slím og Bryggjuhátíð á Drangsnesi eru nokkur dæmi um rétti á menningarhlaðborði helgarinnar.

Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum er vafalaust ein vinsælasta útihátíðin sem haldin er um Verslunarmannahelgina á ári hverju og hefur skipað sér stóran sess hjá þjóðinni í árafjöld. Þjóðhátíð hefur ávallt skipa landsfrægu tónlistarfólki og skemmtikröftum og býður upp á skemmtilega dagskrá fyrir alla fjölskylduna. Í vikunni kom fram í fréttum miðasala á Þjóðhátíð væri með lakara móti og stefni í fámennari hátíð en áður. Jónas Guðbjörn Jónsson er formaður þjóðhátíðarnefndar og hann var á línunni.

Og það er gervigreindin sem er allt í öllu og í stjórnarráðinu því á dögunum tók til starfa starfshópur um nálgun stjórnvalda í málefnum gervigreindar. Hlutverk hópsins er meta stefnu, aðgerðir og áherslur stjórnvalda í málaflokknum heildstætt í ljósi hraðrar þróunar gervigreindar og gera tillögur um aðgerðir, forgangsröðun og úrbætur. Hópinn skipa fimm sérfræðingar á sviði gervigreindar. Þeirra á meðal er Hjálmar Gíslason, framkvæmdastjóri GRID en hann er jafnframt formaður hópsins og hann sagði okkur nánar frá þessari vinnu.

Við fórum vitaskuld yfir fréttir vikunnar í enda þáttar, eins og endranær á föstudögum. Það var fjölbreytt fréttavika baki og það sem stóð hvað helst upp úr hjá viðmælendum okkar þessa vikuna var koma viðartittlings til Íslands, fótboltaforeldrar, ferðaveðrið og sjálfsögðu HM í fótbolta. Gestir okkar voru Stefán Pálsson sagnfræðingur og varaborgarfulltrúi og Björt Ólafsdóttir fyrrum ráðherra og fasteignamógúll.

Birt

17. júlí 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Fram undan

Þau Urður Örlygsdóttir og Kristján Freyr Halldórsson líta yfir allt það helsta sem fram undan er í fréttum, mannlífi og menningu í sumar.

Þættir

,