Sirkustjaldið Jökla rís á ný í Vatnsmýrinni á morgun. Þar verða sirkussýningar fyrir alla aldurshópa og eins og síðustu ár verður sérstakur fullorðinssirkus sem er bannaður yngri en 20 ára. Sirrý Fjóla Þórarinsdóttir sviðslistakona sagði okkur frá töfrunum í sirkustjaldinu.
Meistaraflokkur karla í knattspyrnu hjá Vestra á Ísafirði leikur sinn fyrsta Evrópuleik í sögu félagsins síðdegis í dag þegar þeir mæta liði Quarabag frá Aserbaídsjan. Völlurinn í Bakú hýsir um 30 þúsund áhorfendur í stúkunni og von er á að inni í þeim fjölda verði alla vega 16 stuðningsmenn Vestra þar á meðal. Lið heimamanna er geysisterkt og Vestri á erfitt verk fyrir höndum en við höfum fulla trú á okkar mönnum. Við heyrðum af ferðalaginu og ævintýrinu fram að þessu hjá Samúel Samúelssyni stjórnarmanni Vestra.
Það er ekki á hverjum degi sem stjórnmálamaður stígur út úr dómsal með ökklaband sem hluta af refsingu – og tilkynnir svo sama dag að hann ætli að bjóða sig fram til forseta. En það er einmitt staðan í Frakklandi. Marine Le Pen, leiðtogi og stofnandi frönsku Þjóðfylkingarinnar, Rassemblement National, var sakfelld í fyrra fyrir að misnota styrki frá Evrópuþinginu til að fjármagna starf flokksins í Frakklandi. Áfrýjunardómstóll staðfesti dóminn í byrjun vikunnar en stytti refsinguna og einnig framboðsbann úr fimm árum í fimmtán mánuði sem opnaði á möguleika hennar að bjóða sig fram til forseta 2027. Torfi Tulinius, prófessor við Háskóla Íslands, þekkir vel til í Frakklandi og ræddi við okkur um framboð hennar og komandi forsetakosningar í Frakklandi.
Þeir Magnús Sigurbjörnsson og Pétur Ólafsson, fóru af stað með hlaðvarpið Korter í kosningar fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor og nú er önnur þáttaröð farin í loftið undir yfiskriftinni Korter í ESB. Þeir hafa báðir unnið á bak við tjöldin í kosningabaráttu. Magnús var framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins í borginni á sínum tíma og Pétur var lengi aðstoðarmaður Dags B. Eggertssonar þegar hann var borgarstjóri og oddviti Samfyllkingarinnar í Reykjavík. Þeir eru góðir vinir en á öndverðum meiði í pólitík, og það verður áhugavert að heyra hvernig þeir nálgast Evrópusambandsmálin. Magnús og Pétur litu við í Fram undan.
Það vissu eflaust margir ekki hvað þeir ættu að gera við sig í gær í hléi heimsmeistaramóts karla í fótbolta. En örvæntið ekki, átta liða úrslitin hefjast á viðureign Frakklands og Marokkó klukkan átta í kvöld. Mótið hefur verið æsispennandi hingað til en það hefur líka gengið mikið á og FIFA sætt gagnrýni. Við ætlum að fara yfir mótið hingað til og hvað er fram undan með einum af stjörnum mótsins hér á landi, Eiði Smára Guðjohnsen sem hefur hlotið mikið lof fyrir að lýsa leikjum og framkomu sinni í HM stofunni.
Í samkomuhúsinu í Ögri við Ísafjarðardjúp er nú í sumar starfrækt kaffihús sem kallast Þjóðlegt með kaffinu. Eins og nafnið gefur til kynna þá er þar helst boðið upp á ýmis góðgæti úr íslensku eldhúsi; pönnukökur, hnallþórur og gamaldags brauðtertur svo dæmi séu tekin. Gestir kaffihússins í hnallþóruhugleiðingum gætu þó orðið vonsviknir í næstu viku þegar boðið verður upp á annan ilm, nefnilega skötuveislu á þorláksmessu að sumri. Að auki er fram undan partí ársins að Ögri, nefnilega Ögurballið svokallað. Við heyrðum í Guðfinnu Hreiðarsdóttur, vert kaffihússins.