Fram undan

Eiður Smári um HM, korter í ESB, sirkus í sumar, Vestri í Bakú, framboð Le Pen og þorláksmessa að sumri.

Sirkustjaldið Jökla rís á í Vatnsmýrinni á morgun. Þar verða sirkussýningar fyrir alla aldurshópa og eins og síðustu ár verður sérstakur fullorðinssirkus sem er bannaður yngri en 20 ára. Sirrý Fjóla Þórarinsdóttir sviðslistakona sagði okkur frá töfrunum í sirkustjaldinu.

Meistaraflokkur karla í knattspyrnu hjá Vestra á Ísafirði leikur sinn fyrsta Evrópuleik í sögu félagsins síðdegis í dag þegar þeir mæta liði Quarabag frá Aserbaídsjan. Völlurinn í Bakú hýsir um 30 þúsund áhorfendur í stúkunni og von er á inni í þeim fjölda verði alla vega 16 stuðningsmenn Vestra þar á meðal. Lið heimamanna er geysisterkt og Vestri á erfitt verk fyrir höndum en við höfum fulla trú á okkar mönnum. Við heyrðum af ferðalaginu og ævintýrinu fram þessu hjá Samúel Samúelssyni stjórnarmanni Vestra.

Það er ekki á hverjum degi sem stjórnmálamaður stígur út úr dómsal með ökklaband sem hluta af refsingu og tilkynnir svo sama dag hann ætli bjóða sig fram til forseta. En það er einmitt staðan í Frakklandi. Marine Le Pen, leiðtogi og stofnandi frönsku Þjóðfylkingarinnar, Rassemblement National, var sakfelld í fyrra fyrir misnota styrki frá Evrópuþinginu til fjármagna starf flokksins í Frakklandi. Áfrýjunardómstóll staðfesti dóminn í byrjun vikunnar en stytti refsinguna og einnig framboðsbann úr fimm árum í fimmtán mánuði sem opnaði á möguleika hennar bjóða sig fram til forseta 2027. Torfi Tulinius, prófessor við Háskóla Íslands, þekkir vel til í Frakklandi og ræddi við okkur um framboð hennar og komandi forsetakosningar í Frakklandi.

Þeir Magnús Sigurbjörnsson og Pétur Ólafsson, fóru af stað með hlaðvarpið Korter í kosningar fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor og er önnur þáttaröð farin í loftið undir yfiskriftinni Korter í ESB. Þeir hafa báðir unnið á bak við tjöldin í kosningabaráttu. Magnús var framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins í borginni á sínum tíma og Pétur var lengi aðstoðarmaður Dags B. Eggertssonar þegar hann var borgarstjóri og oddviti Samfyllkingarinnar í Reykjavík. Þeir eru góðir vinir en á öndverðum meiði í pólitík, og það verður áhugavert heyra hvernig þeir nálgast Evrópusambandsmálin. Magnús og Pétur litu við í Fram undan.

Það vissu eflaust margir ekki hvað þeir ættu gera við sig í gær í hléi heimsmeistaramóts karla í fótbolta. En örvæntið ekki, átta liða úrslitin hefjast á viðureign Frakklands og Marokkó klukkan átta í kvöld. Mótið hefur verið æsispennandi hingað til en það hefur líka gengið mikið á og FIFA sætt gagnrýni. Við ætlum fara yfir mótið hingað til og hvað er fram undan með einum af stjörnum mótsins hér á landi, Eiði Smára Guðjohnsen sem hefur hlotið mikið lof fyrir lýsa leikjum og framkomu sinni í HM stofunni.

Í samkomuhúsinu í Ögri við Ísafjarðardjúp er í sumar starfrækt kaffihús sem kallast Þjóðlegt með kaffinu. Eins og nafnið gefur til kynna þá er þar helst boðið upp á ýmis góðgæti úr íslensku eldhúsi; pönnukökur, hnallþórur og gamaldags brauðtertur svo dæmi séu tekin. Gestir kaffihússins í hnallþóruhugleiðingum gætu þó orðið vonsviknir í næstu viku þegar boðið verður upp á annan ilm, nefnilega skötuveislu á þorláksmessu sumri. auki er fram undan partí ársins Ögri, nefnilega Ögurballið svokallað. Við heyrðum í Guðfinnu Hreiðarsdóttur, vert kaffihússins.

Birt

9. júlí 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Fram undan

Þau Urður Örlygsdóttir og Kristján Freyr Halldórsson líta yfir allt það helsta sem fram undan er í fréttum, mannlífi og menningu í sumar.

Þættir

,