Bítlatíminn 2

Sautjándi þáttur

Sérhver þáttur er óvissuferð með örsögum og minningum um Bítlatímann. Í þessum þætti er meðal annars fjallað um lífsreglurnar sem Brian Epstein setti Bítlunum og fyrstu viðbrögðum George Martin þegar hann heyrði í hljómsveitinni. Einnig er sagt frá söngskemmtunum Rolling Stones vestan heims árið 1965, komu Liverpool hljómsveitar til Íslands sama ár og umfjöllun í íslensku tímariti um James Bond og Bítlana.

Umsjón: Gunnar Salvarsson.

Frumflutt

7. ágúst 2021

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Bítlatíminn 2

Bítlatíminn 2

Bítlarnir hristu upp í heiminum í upphafi sjöunda áratugar síðustu aldar, breyttu taktinum og gáfu ungu fólk rödd. Í síðari þáttaröð sinni flögrar Gunnar Salvarsson um bítlatímann og dregur fram eigin minningar og annarra, segir sögur og spilar ógleymanleg lög sem bítlakynslóðin dáði.

Umsjón: Gunnar Salvarsson.

Þættir

,