Bítlatíminn 2

Sextándi þáttur

Sérhver þáttur er óvissuferð með örsögum og minningum um Bítlatímann. Í þessum þætti er meðal annars fjallað um dapurlegustu breiðskífu Bítlanna, spiluð tóndæmi þar sem sama stefið kemur fyrir í þremur vinsælum lögum og sagt frá aðdraganda viðburðarins þegar Bítlarnir spiluðu á þaki Apple-byggingarinnar. Einnig verður brugðið upp mynd af sautján ára rafvirkjanema ára í Liverpool, Paul nafni, og leikið nær óþekkt meistaraverk eftir George Harrison.

Umsjón: Gunnar Salvarsson.

Frumflutt

31. júlí 2021

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Bítlatíminn 2

Bítlatíminn 2

Bítlarnir hristu upp í heiminum í upphafi sjöunda áratugar síðustu aldar, breyttu taktinum og gáfu ungu fólk rödd. Í síðari þáttaröð sinni flögrar Gunnar Salvarsson um bítlatímann og dregur fram eigin minningar og annarra, segir sögur og spilar ógleymanleg lög sem bítlakynslóðin dáði.

Umsjón: Gunnar Salvarsson.

Þættir

,