Allir í leik

Eninga meninga súkkana dí

Þáttur um íslenska leikjasöngva.

Fjallað er um úrtalningarromsur: rím sem börn nota til velja hver á „ver´ann“ í leik. Alþekktar eru romsurnar „Ugla sat á kvisti“ og „Úllen dúllen doff“, en áður fyrr var romsan „Eninga meninga súkkana dí“ svo vinsæl Laxness minnist á hana í skáldsögunni „Sölku Völku“.

Lesarar eru Eiríkur Guðmundsson og Helga Vala Helgadóttir, starfsmenn hjá RÚV.

Helga Vala les úr skáldsögunni Salka Valka, eftir Halldór Laxness og úr smásögunni Ragna, eftir Arnrúnu frá Felli.

Eiríkur les úr Æviminningum, eftir Sigfús Blöndal.

Umsjón: Una margrét Jónsdóttir.

Frumflutt

18. ágúst 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Allir í leik

Allir í leik

Allir í leik er þáttaröð í umsjón Unu Margrétar Jónsdóttur um íslenska leikjasöngva, gamla og nýja. Umsjónarmaður hefur rannsakað viðfangsefnið undanfarin ár og komið í barnaskóla víða á landinu til þess hljóðrita leiki með söngvum. Einnig hefur verið rætt við eldra fólk um leiki sem það man eftir. Í fyrsta þættinum verður fjallað um leikinn „Fram, fram fylking" og fleiri leikjasöngva sem hafa verið vinsælir í frímínútum og á leikvöllum. Þá hafa verið hljóðritaðir leikjasöngvar í Færeyjum og á Grænlandi og fékk umsjónarmaður til þess styrki frá Sumargjafasjóði og Grænlandssjóði. Þær hljóðritanir verða einnig fluttar í þáttunum.

Þættir

,