Allir í leik

Einn sjómaður fór í Hallgrímskirkju.

Þáttur um leikjasöngva.

Á síðustu áratugum hafa klappleikir með texta orðið vinsælir meðal íslenskra barna. Um þá verður fjallað í þessum þætti, m.a. leikina „Einn sjómaður“, „Þegar Systa var í maganum“ og „Anna Díana“. Aðrar þjóðir koma einnig við sögu,og fluttar verða hljóðritanir sem gerðar voru í Þórshöfn í Færeyjum, Kulusuk á Grænlandi og Harlem í New York 2004.

Umsjón: Una Margrét Jónsdóttir.

Frumflutt

18. ágúst 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Allir í leik

Allir í leik

Allir í leik er þáttaröð í umsjón Unu Margrétar Jónsdóttur um íslenska leikjasöngva, gamla og nýja. Umsjónarmaður hefur rannsakað viðfangsefnið undanfarin ár og komið í barnaskóla víða á landinu til þess hljóðrita leiki með söngvum. Einnig hefur verið rætt við eldra fólk um leiki sem það man eftir. Í fyrsta þættinum verður fjallað um leikinn „Fram, fram fylking" og fleiri leikjasöngva sem hafa verið vinsælir í frímínútum og á leikvöllum. Þá hafa verið hljóðritaðir leikjasöngvar í Færeyjum og á Grænlandi og fékk umsjónarmaður til þess styrki frá Sumargjafasjóði og Grænlandssjóði. Þær hljóðritanir verða einnig fluttar í þáttunum.

Þættir

,