Allir í leik

Og mærin fer í dansinn

Þáttur um íslenska leikjasöngva.

Á fyrri hluta 20. aldar urðu rómantískir hringdansar vinsælir meðal barna, einkum stúlkna, og voru jafnvel dansaðir í frímínútum. þar nefna „Meyjanna mesta yndi,“ „Og mærin fer í dansinn“, „Hann Frímann fór á engi,“ og „Ég lonníetturnar lét á nefið.“

Hallmar Sigurðsson les brot úr tveimur bókum: Leikir í fjörunni, eftir Jón Óskar, og Sálminn um blómið eftir Þórberg Þórðarson.

Umsjón: Una Margrét Jónsdóttir.

Frumflutt

18. ágúst 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Allir í leik

Allir í leik

Allir í leik er þáttaröð í umsjón Unu Margrétar Jónsdóttur um íslenska leikjasöngva, gamla og nýja. Umsjónarmaður hefur rannsakað viðfangsefnið undanfarin ár og komið í barnaskóla víða á landinu til þess hljóðrita leiki með söngvum. Einnig hefur verið rætt við eldra fólk um leiki sem það man eftir. Í fyrsta þættinum verður fjallað um leikinn „Fram, fram fylking" og fleiri leikjasöngva sem hafa verið vinsælir í frímínútum og á leikvöllum. Þá hafa verið hljóðritaðir leikjasöngvar í Færeyjum og á Grænlandi og fékk umsjónarmaður til þess styrki frá Sumargjafasjóði og Grænlandssjóði. Þær hljóðritanir verða einnig fluttar í þáttunum.

Þættir

,