Allir í leik

Tína ber í skessulandi

Þáttur um íslenska leikjasöngva.

Í eltingaleikjum, skollaleikjum og feluleikjum eru stundum sungin stef, oft til stríða þeim sem eltir. Nokkur dæmi um þau munu heyrast í þættinum í dag, svo sem „Tína ber í skessulandi“, „Grýla píla“ og „Ég er svöng, garnalöng.“

Lesarar eru Eiríkur Guðmundsson, ALexander Briem og Pétur Kristjánsson. Eiríkur les lýsingar á skessuleikjum og skollaleikjum úr bókinni Íslenskar skemmtanir, eftir Ólaf Davíðsson, útg. 1888-1892. Alexander og og Pétur lesa kafla úr sömu bók.

Umsjón: Una Margrét Jónsdóttir.

Frumflutt

18. ágúst 2023

Aðgengilegt til

Rennur ekki út
Allir í leik

Allir í leik

Allir í leik er þáttaröð í umsjón Unu Margrétar Jónsdóttur um íslenska leikjasöngva, gamla og nýja. Umsjónarmaður hefur rannsakað viðfangsefnið undanfarin ár og komið í barnaskóla víða á landinu til þess hljóðrita leiki með söngvum. Einnig hefur verið rætt við eldra fólk um leiki sem það man eftir. Í fyrsta þættinum verður fjallað um leikinn „Fram, fram fylking" og fleiri leikjasöngva sem hafa verið vinsælir í frímínútum og á leikvöllum. Þá hafa verið hljóðritaðir leikjasöngvar í Færeyjum og á Grænlandi og fékk umsjónarmaður til þess styrki frá Sumargjafasjóði og Grænlandssjóði. Þær hljóðritanir verða einnig fluttar í þáttunum.

Þættir

,