Þau Urður Örlygsdóttir og Kristján Freyr Halldórsson líta yfir allt það helsta sem fram undan er í fréttum, mannlífi og menningu í sumar.
Við byrjuðum á að tala um eldsneytisverð á Íslandi. Í umræðuskjali sem Samkeppniseftirlitið birti í gær kemur fram að í aðdraganda þess að kílómetragjald var tekið upp hafi álagning á eldsneyti hækkað í samanburði við önnur Evrópulönd. Álagning á bæði díselolíu og bensín hefur hækkað mikið frá 2022. Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeiganda kom til okkar.
Á Akureyri stendur nú yfir Listasumar, sem er árlegur menningarviðburður drekkhlaðinn hvers konar viðburðum, tónleikum, listasýningum, gjörningum og ýmsu húllum-hæi um allan bæ. Og í dag, föstudag, er stór uppistandsdagur. Með yfirskriftinni „Á þetta að vera fyndið?“ hefur hópur heimafólks tekið hljóðnema í hönd og boðið gestum upp á að hlæja saman að lífinu, hversdagsleikanum, samböndum, samfélaginu síðustu mánuði og í þriðja sinn í kvöld. Sjúkraþjálfarinn Þórhallur Guðmundsson og Snæfríður Ingadóttir blaða- og leiðsögukona verða meðal uppistandara í kvöld og þau mættu í hljóðver okkar á Akureyri.
Hvað er í gangi um helgina? Hvert er fólk að fara og hvað á fólk að hafa í huga í umferðinni? Við rennum yfir það helsta sem er um að vera um helgina og fáum til okkar Árna Friðleifsson aðstoðaryfirlögregluþjón lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.
Við ætlum að snúa okkur að þjóðaratkvæðagreiðslunni um áframhaldandi aðildaviðræður Íslands að Evrópusambandinu sem verður 29. ágúst. Þorvaldur Gylfason doktor í hagfræði var gestur okkar. Hann hefur lengi verið já-megin, skrifaði sína fyrstu grein um mikilvægi þess að Íslendingar myndu ganga í Evrópusambandið árið 1987 og hefur verið óþreytandi síðan að skrifa og fjalla um þetta málefni. Hann skrifaði nýlega grein undir yfirskrifinni Stöndum saman þar sem hann hvetur landsmenn til að líta á þjóðarhag fremur en svæðisbunda hagsmuni þegar það kemur að atkvæðagreiðslunni. Við fórum með honum yfir hvers vegna hann ætlar að segja já í ágúst. Í næstu viku fáum við svo að heyra í fólki sem ætlar að segja nei.
Og við förum að sjálfsögðu yfir fréttir vikunnar. Það er þema hjá okkur í dag – fyrrum Rúvarar sem hafa gerst upplýsingafulltrúar. Þau Freyr Gígja Gunnarsson upplýsingafulltrúi dómsmálaráðuneytisins og Hafdís Helga Helgadóttir upplýsingafulltrúi Samorku mættu og ræddu m.a. hvalveiðar, stóra kókaínmálið og HM í knattspyrnu.
