Vínil plata úr safninu dregin fram og spiluð í heild.
Vínill vikunnar í þetta sinn var fjórða hljómplata hljómsveitarinnar Beirut og heitir No No No sem kom út árið 2015.
A-hlið:
Gibraltar
No No No
At Once
August Holland
og As Needed
B-hlið:
Perth
Pacheco
Fener
So Allowed
aukalög í lok þáttar:
Nantes af plötunni The Flying Club Cup (2007)
Elephant Gun af samnefndri smáskífu (2007)
East Harlem af plötunni The Rip Tide (2011)
Veðurstofa Íslands.
Í þáttunum rannsökum við reiðina, hvernig hún birtist og hvernig eigi að túlka hana. Er reiðin alltaf slæm, getur hún gert gott og verður pláss fyrir reiði í framtíðarsamfélaginu?
Umsjón: Rósa María Hjörvar.
Í þessum þætti skoðum við hverjir mega reiðast, hverjir mega það ekki og hvernig þessi reiði birtist og nýtist mönnum.
Útvarpsfréttir.
Útvarpsfréttir.
Það stefnir í mest spennandi forsetakosningar í rúmlega fjörtíu ár, segir prófessor í stjórnmálafræði. Samkvæmt nýjustu skoðanakönnunum eru fjögur efstu samanlagt með hátt í 90 prósent atkvæða.
Bandaríkin ætla að veita Úkraínu viðbótar hernaðaraðstoð til að styrkja loftvarnir. Forseti Úkraínu segir biðina hafa verið dýrkeypta.
Hrauntunga úr eldgosinu við Sundhnjúksgíga er farin að teygja sig yfir varnargarð norðan við Grindavík. Lítil hætta stafar af henni. Annað eldgos gæti hafist á hverri stundu.
Hamas-samtökin fara yfir tillögur Ísraelsstjórnar að skilmálum vopnahlés á Gaza. Fulltrúar Egypta eru komnir til Ísraels til viðræðna við stjórnvöld þar.
Stuðlagil í Jökuldal og Múlagljúfur í Öræfasveit fá hvort um sig 90 milljónir króna til uppbyggingar úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða. Fjöldi þeirra sem fara um Múlagljúfur hefur á fáeinum árum farið úr nokkrum þúsundum í yfir hundrað þúsund.
Þingmaður Sannra Finna hefur verið handtekinn, grunaður um að hafa hleypt skoti úr byssu við skemmtistað eftir að hópslagsmál brutust út. Hann er einnig grunaður um að hafa beint byssunni að fólki.
Landeigandi í Stöðvarfirði segir til greina koma að höfða skaðabótamál gegn Fjarðabyggð sem ekki hafi sinnt skyldu sinni að smala ágangsfé af landi hans. Innviðaráðuneytið hefur úrskurðað að sveitarfélagið hefði átt að láta smala eins fljótt og hægt var.
Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi.
Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.
Við fylgdumst mörg með hinni sögufrægu bygginguBørsen brenna í fréttum á dögunum. Byggingin sem fæst okkar hafa líklega komið inn í nema við höfum átt erindi við viðskiptaráð Danmerkur undanfarin ár, eða þar áður lagt leið okkar í kauphöll landsins. En bygginguna hafa flest sem hafa rölt um stræti Kaupmannahafnar séð. Hún skar sig úr, ekki síst vegna drekaturnspíru sem teygði sig upp af húsþakinu, en er nú hruninn. Oddur Þórðarson segir okkur allt um Børsen.
Það verða kosningar í Suður Afríku eftir tæpan mánuð. Og það er útlit fyrir að þær verði spennandi og jafnvel sögulegar. Það gæti gerst í fyrsta sinn frá afnámi aðskilnaðarstefnunnar að afríska þjóðaráðrið missi meirihluta á þingi. Í ár verða þrjátíu ár liðin frá afnámi aðskilnaðarstefnunnar þar í landi. Og þrjátíu ár frá því að Nelson Mandela tók við völdum sem forseti landsins. En af hverju er flokkur frelsishetjunnar Nelsons Mandela ekki lengur flokkur fólksins í Suður Afríku? Það eru fyrst og fremst efnahagsmálin sem þar vega þyngst. Þrátt fyrir að Suður-afrískt efnahagslíf sé nokkuð stöðugt þá mælist atvinnuleysi hvergi hærra. Hjá ungu fólki, 25 ára yngri, er það meira en 60% og sú staðreynd vegur auðvitað þungt í huga kjósenda. Bjarni Pétur fjallar um málið.
Gestur úr Mannlega þættinum talar um bækur.
Lesandi vikunnar í Mannlega þættinum í þetta sinn var Heiðar Ingi Svansson, formaður Félags bókaútgefenda. Á morgun er alþjóðlegur dagur bókarinnar, og af því tilefni sagði hann okkur frá félaginu og bókaútgáfu á Íslandi. En svo sagði hann okkur auðvitað frá því hvaða bækur hann hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Heiðar Ingi talaði um eftirfarandi bækur og höfunda:
Einmana – tengsl og tilgangur í heimi vaxandi einsemdar e. Aðalbjörgu Stefaníu Helgadóttur.
Gegnumtrekkur e. Einar Lövdahl.
Sápufuglinn e. María Elísabetu Bragadóttur.
Haugalygi e. Sigtrygg Baldursson
Náttúrulögmálin e. Eirík Örn Norðdahl.
og svo um höfundana Indriða Úlfsson, Diddu, Hallgrím Helgason, Tryggva Emilsson og Pedro Gunnlaug Garcia.
Tónlistarstraumar frá ýmsum löndum, úr ýmsum áttum og frá ýmsum tímum. Umsjón: Árni Matthíasson
Benedikt Hermann Hermannsson, Benni Hemm Hemm, setti upp útvarpsstöð sem sendir út hljóðskúlptúr byggðan á sólarhringsferðlagi hans um Ísland, með umhverfisupptökum víða að og skældum og beygluðum hljóðupptökum. Afraksturinn gaf hann síðan út á plötunni MUSIC FROM 24 HOURS AT THE END OF THE WORLD, 74 laga plata sem er rúmlega 12 klukkustunda löng.
Sjá einnig https://www.fiveradiostations.com/24hours
Lagalisti - lög af MUSIC FROM 24 HOURS AT THE END OF THE WORLD
Á morgun þá mætum við deginum
Garcon!
Rounds
Playground
Fávitar (Reverse Remix)
Stulli Fugue
Old young boy
Final Statement Music
Í Kúrs gerast nemendur við Háskóla Íslands dagskrárgerðarmenn; segja sögur, kafa í fræðin og spyrja spurninga.
Brynja Valdimarsdóttir hefur alltaf verið næm. Hún er um þessar mundir að læra á samskiptin við framliðna og segir frá þeirri upplifun. Fyrir sautján árum fékk hún að sjá Garðar Jónsson, transmiðil, á miðilsfundi með hópi af fólki sem hún lýsir sem ógleymanlegri upplifun.
Umsjón: Sylvía Dröfn Jónsdóttir
Fyrir 20 árum lét Atli Fannar Bjarkason sig dreyma um að starfa á fjölmiðlum. Hann flutti til Reykjavíkur með báðar hendur tómar og fékk tækifæri til að skrifa í dagblöð, ritstýra tímaritinu Monitor og koma fram í útvarpi og sjónvarpi. Hann flutti líka fréttainnslög í Vikunni með Gísla Marteini og stofnaði sinn eigin fjölmiðil, Nútímann sem hann tengist ekkert í dag.
Draumurinn rættist sem sagt en þegar hann horfir til baka sér hann að á þessum tíma hafi hann oft verið með bölvuð leiðindi við fólk sem átti það ekkert endilega skilið. Í þessum þáttum hittir hann þetta fólk og leggur spilin á borðið.
Umsjón: Atli Fannar Bjarkason.
Það er óhætt að segja að samband Jóns Ásgeirs Jóhannessonar og þeirra fjölmiðla sem hann átti á sínum tíma hafi verið flókið. Árið 2009 hóf ég störf hjá Fréttablaðinu og í fyrstu vikunni minni í starfi tókst mér að fara verulega í taugarnar á honum með færslu á Facebook. Við Jón Ásgeir höfum aldrei talað saman um skrifin sem urðu til þess að hann vildi að ég yrði rekinn. Þar til nú.
Útvarpsfréttir.
Þáttur um bókmenntir, bæði hér heima og úti í heimi. Hlustendum er fylgt í gegnum lestur athyglisverðra bókmenntaverka og rætt við höfunda, útgefendur og fræðimenn um stefnur, strauma, tákn og tilvísanir.
Umsjón: Jóhannes Ólafsson.
Ilmhúsið Fischersund og myndlistarmaðurinn Jón Albert báru saman bækur sínar á Hönnunarmars í nýju verkefni. Þar veltir Jón fyrir sér bókunum sem hlut, bókum sem minningum og í samstarfi hans við Fischersund fanga þau lykt af gömlum bókum.
Við flettum líka í nýrri þýðingu Helgu Soffíu Einarsdóttur á Fóstri eftir írska rithöfundinn Claire Keegan. Og í lokin fáum við Benedikt Hjartarson í heimsókn til okkar. Hann hefur verið að velta fyrir sér Rauðum heimsbókmenntum síðustu misseri og segir frá þeim og gróskumikilli útgáfu þýðinga á millistríðsárunum á Íslandi.
Viðmælendur: Benedikt Hjartarson, Helga Soffía Einarsdóttir, Ingibjörg Birgisdóttir, Jón Albert Guðrúnar-Carlosson.
Umsjón: Jóhannes Ólafsson.
Vernharður Linnet fjallar í níu þáttum um flestar stórbrotnustu söngkonur svingtímans, allt frá stórdjasssöngkonunni Mildred O'Bailey til Anitu O'Day. Söngdjassdívur á borð við Jo Stafford og Kay Starr og þrjár helstu söngkonur Evrópudjassins er fæddar voru fyrir 1931: Alice Babs, Ritu Reys og Annie Ross. Í þáttum má heyra leik stórsveita manna á borð við Benny Goodman, Gene Krupa, Woody Herman, Stan Kenton og Duke Ellington og er þá ekki allt talið.
(Áður á dagskrá 2007)
Vernharður Linnet fjallar í níu þáttum um flestar stórbrotnustu söngkonur svingtímans. Í þessum þætti fjallar hann um sveifludrottningu norðursins, Alice Babs.
Kvöldfréttir útvarps
Í þættinum eru atburðir og málefni líðandi stundar skoðaðir í ljósi sögunnar. Umsjón: Vera Illugadóttir.
Í þættinum er fjallað um Rafherbergið, glæsilegan sal klæddan rafi sem Friðrik 1. Prússakonungur gaf Pétri mikla Rússakeisara í byrjun 18. aldar. Klæðningarnar og aðrir munir úr herberginu hurfu í seinni heimsstyrjöld og hafa aldrei fundist, þrátt fyrir mikla leit.
Veðurstofa Íslands.
Sveiflutónlist og söngdansar að hætti hússins.
Norska söngkonan Magni Wentzel syngur sjö lög með hljómsveit sinni. Lögin heita Lush Life, Speak Low, I Should Care, New York Nights, Lucky To Be With Me, How Deep Is The Ocean og Yesterday I Heard The Rain. Bud Powell og félagar leika lögin Blue Pearl, Some Soul, Frantic Francies, Moose The Mooche, Don't Blame Me og Idaho. Stan Gets og Bill Evans flytja lögin Night And Day, My Heart Stood Still, Grandfather's Waltz og Melinda.
Guðlaugur Rúnar Guðmundsson fjallar um skóla fyrri alda á Íslandi.
Fjallað um barnafræðslu á Íslandi á 18. öld og stofnanda fyrsta barnaskóla á Íslandi, Ólaf Gíslason. Einnig rætt um hina miklu frumkvöðla fræðslumála á Íslandi þá Jón Þorkelsson og Ludvig Harboe.
Umsjón: Guðlaugur R. Guðmundsson cand.mag.
Fjallað er um Sturlungasögu og rætt við leika og lærða um söguna, sögusviðið og einstakar persónur frá ýmsum sjónarhornum.
Umsjón: Einar Karl Haraldsson.
(Áður á dagksrá 1984-85)
Í þættinum er rætt um grein Ólafs Guðmundssonar í Morgunblaðinu 29. nóv. 1984: Apavatnsför og Sighvatur Sturluson. Einnig er fjallað um tilgang Sturlu Sighvatssonar með herför Siður á Rangárvelli.
Samtal við Skjöld Eiríksson og Ólaf Guðmundsson.
Kynningar og lestur úr Íslendingasögu: Kristbjörg Kjeld.
Umsjón: Einar Karl Haraldsson.
Útvarpsfréttir.
Veðurstofa Íslands.
Í Litlu flugunni er leikin gamaldags tónlist frá öldinni sem leið: dægurlög, harmóníkutónlist, djass og danslög, með flytjendum á borð við Tónakvartettinn frá Húsavík, danshljómsveit Victors Sylvester, Caterinu Valente og Hauk Morthens.
Gömlu góðu hljómplöturnar eru í heiðri hafðar, bæði litlar og stórar, að ógleymdum segulböndum úr safni útvarpsins en í segulbandasafninu leynast margar ófáanlegar hljóðritanir með íslenskum tónlistarmönnum.
Umsjón: Lana Kolbrún Eddudóttir.
Litla flugan er í sólskinsskapi og flögrar milli blóma; verður sér úti um fáeina sæta kossa í sveitunum fyrir vestan, og bregður á fóninn lögum af þeirri tegund sem stundum er kennd er við sveitina, þeas. það sem þeir kalla kántrímúsík vestanhafs. Jim Reeves, Eddy Arnold, Slim Whitman, Faron Young o.fl. leika og syngja lög frá árunum 1948-1966.
Útvarpsfréttir.
Tónlist af ýmsu tagi.
Kristján Freyr stekkur í skó Felix Bergssonar, rabbar við hlustendur í morgunsárið og spilar huggulega tóna sem hæfa laugardagsmorgnum. Hin bráðskemmtilega Fimma er á sínum stað þar sem góðir gestir segja frá fimm skemmtilegum atriðum sem hafa breytt lífi þeirra
Í Fram og til baka þennan morguninn var boðið upp á matarumfjöllun frá og með fyrsta kaffibolla en gestur þáttarins í Fimmunni bauð upp á eftirminnilegar matarupplifanir frá sinni leifsleið. Það var tónlistarmaðurinn og upptökustjórinn Árni Hjörvar, sem hefur ferðast um heiminn þvert og endilangt með hljómsveit sinni The Vaccines, sem bauð okkur upp á fimmu dagsins. Frá grásleppu á Grýtubakka í Eyjafirði, til framandi mexíkókrydda, lífsbjargandi baunarétts við rætur Himalayafjalla í tímamótasúpu dagsins á Stofunni í Reykjavík.
Í seinni hluta þáttar heyrðum við í Ólafi Björnssyni fosprakka Hammond hátíðar á Djúpavogi sem var í fullum gangi.
Loks var nú tónlistin vitanlega í forgrunni og þar var farið fram og til baka.
Lou Reed - Walk On The Wild Side.
Vilhjálmur Vilhjálmsson - Lítill Drengur.
Ólafur Kram - Silkiþræðir.
Elín Hall - Manndráp af gáleysi.
The Vaccines - I Always Knew.
Aldous Harding - Tick Tock.
Mugison - É Dúdda Mía.
Prins Póló - Tipp Topp.
Paul McCartney & Wings - Band On The Run.
Nýdönsk - Styr.
Crowded House - Weather With You.
Lights On The Highway - Ólgusjór.
Umsjón: Salka Sól Eyfeld.
Útvarpsfréttir.
Það stefnir í mest spennandi forsetakosningar í rúmlega fjörtíu ár, segir prófessor í stjórnmálafræði. Samkvæmt nýjustu skoðanakönnunum eru fjögur efstu samanlagt með hátt í 90 prósent atkvæða.
Bandaríkin ætla að veita Úkraínu viðbótar hernaðaraðstoð til að styrkja loftvarnir. Forseti Úkraínu segir biðina hafa verið dýrkeypta.
Hrauntunga úr eldgosinu við Sundhnjúksgíga er farin að teygja sig yfir varnargarð norðan við Grindavík. Lítil hætta stafar af henni. Annað eldgos gæti hafist á hverri stundu.
Hamas-samtökin fara yfir tillögur Ísraelsstjórnar að skilmálum vopnahlés á Gaza. Fulltrúar Egypta eru komnir til Ísraels til viðræðna við stjórnvöld þar.
Stuðlagil í Jökuldal og Múlagljúfur í Öræfasveit fá hvort um sig 90 milljónir króna til uppbyggingar úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða. Fjöldi þeirra sem fara um Múlagljúfur hefur á fáeinum árum farið úr nokkrum þúsundum í yfir hundrað þúsund.
Þingmaður Sannra Finna hefur verið handtekinn, grunaður um að hafa hleypt skoti úr byssu við skemmtistað eftir að hópslagsmál brutust út. Hann er einnig grunaður um að hafa beint byssunni að fólki.
Landeigandi í Stöðvarfirði segir til greina koma að höfða skaðabótamál gegn Fjarðabyggð sem ekki hafi sinnt skyldu sinni að smala ágangsfé af landi hans. Innviðaráðuneytið hefur úrskurðað að sveitarfélagið hefði átt að láta smala eins fljótt og hægt var.
Atli Már Steinarsson rabbar við hlustendur og leikur létta tónlist.
Er vorið komið? Er jafnvel sumarið komið? Það eru þessar spurningar sem við ætlum ekki að velta fyrir okkur í þætti dagsins, heldur hlustum við frekar á góða tónlist sem við þekkjum. Rifjum jafnvel upp afmælisdaga og útgáfudaga sem tengjast vikunni sem leið, minnumst þeirra sem féllu frá á dögum í kringum þátt eins og til dæmis Prince og Nina Simone. Algjör nammipoki fullur af góðgæti í tilefni dagsins!
Lagalisti:
Útvarpsfréttir.
Íslensk dægurlagasaga í tali og tónum. Í þáttunum er eitt ár í íslenskri dægurlagtónlistarasögu tekið fyrir í einu frá árinu 1980 til 2020. Umsjónarmenn: Ásgeir Eyþórsson og Gunnlaugur Jónsson.
Hjálmar fara til Jamaica, Ragnheiður Gröndal syngur íslensk þjóðlög og Ingó og Veðurguðirnir bjóða á gestalista. Á móti sól sér þig kannski seinna, Jógvan og Friðrik Ómar syngja vinalög og Lára Rúnars kemur á óvart. Lights On The Highway siglir um á pappírsbát, Ljótu hálfvitarnir finna lukkutroll og Dr. Gunni er með mörg járn í eldinum. Sindri Már Sigfússon er Sin Fang Bous, Litla hafmeyjan léttir lund landsmanna og Sykur er með stuð í eyrum. Ourlives tapar kapphlaupinu, Prins Póló er einn heima, Worm is Green nýtir sér þjónustu tónlistarveitunnar Bandcamp en Egill Sæbjörnsson er brjálaður eins og býfluga.
Í þáttunum, Árið er.... Íslensk dægurlagasaga í tali og tónum, eru helstu straumar og stefnur í íslenskri tónlist til umfjöllunar og eitt ár tekið fyrir í einu.
Meðal viðmælenda í 40. þættinum, í þriðja hluta umfjöllunar um íslenska tónlistarárið 2009, eru Guðmundur Kristinn Jónsson, Jón Björn Árnason, Leifur Kristinsson, Eiður Ágúst Kristjánsson, Magni Ásgeirsson, Lára Rúnarsdóttir, Sindri Már Sigfússon, Arngrímur Arnarson, Ármann Guðmundsson, Baldur Ragnarsson, Snæbjörn Ragnarsson, Eggert Hilmarsson, Guðmundur Svafarsson, Oddur Bjarni Þorkelsson, Sævar Sigurgeirsson, Þorgeir Tryggvason, Friðrik Ómar Hjörleifsson, Jógvan Hansen, Ingólfur Þórarinsson, Agnar Eldberg, Gunnar Hjálmarsson, Pétur Örn Guðmundsson, Hannes Friðbjörnsson og Erpur Eyvindarson.
Umsjón: Ásgeir Eyþórsson og Gunnlaugur Jónsson.
Lagalisti:
Hjálmar - Það sýnir sig
Hjálmar - Heyrist hverjum
Hjálmar - Manstu
Hjálmar - Hvert sem ég fer
Hjálmar - Taktu þessa trommu
Ourlives - We Lost The Race
Ourlives - Out Of Place
Á Móti Sól - Sé þig seinna
Á Móti Sól - Dagarnir
Á Móti Sól - Ef þú ert ein
Lára Rúnars - Surprise
Lára Rúnars - I wanna be
Lára Rúnars - Honey You’re Gay!
Lára Rúnars - In Between
Egill Sæbjörnsson - Crazy Like A Bee
Prins Póló - Átján og Hundrað
Lay Low - Sorgin
Sigríður Thorlacius & Heiðurspiltar - Í hjarta þér
Sin Fang Bous - Catch The Light
Sin Fang Bous - Clangour & Flutes
Jógvan Hansen & Friðrik Ómar - Eros
Jógvan Hansen & Friðrik Ómar - Romeo og Julia
Ingó & Veðurguðirnir - Vinurinn
Ingó & Veðurguðirnir - Bara brosa
Ingó & Veðurguðirnir - Nóttin er liðin
Ingó & Veðurguðirnir - Gestalistinn
Ingó - Hemmi
Lights on the Highway - Paperboat
Lights on the highway - A little bit of everything
Dr Gunni - Satan konungur apanna
Dr Gunni - Bubbi Morthens
Dr Gunni - Prinsessan mín
Buff - Prinsessan mín
Birgir Ísleifur & Lay Low - Heppinn
Greifarnir + Laddi & Stefán Karl - Jóhannes
Worm is green - The Darkness
Worm is green - March On (Roger O’Donnel remix)
Worm is green - The Politician
Ljótu hálfvitarnir - Lukkutroll
Ljótu hálfvitarnir - Stjáni
Ljótu hálfvitarnir - Paradísarmissir
Sykur og Katrína Mogensen - Með stuð í eyrum
Sykur - Bite me (Rakel Mjöll Leifsdóttir)
Sykur ft. Blaz Roca - Viltu Dick
Morðingjarnir - Airwaves
Kings of Convenience - Boat Behind
Ragnheiður Gröndal - Ei er andvakan góð
Ragnheiður Gröndal - Nú glæðast lífsins gæði
Útvarpsfréttir.
Kvöldfréttir útvarps
Umsjón: Atli Már Steinarsson.
Fréttastofa RÚV.
Lovísa Rut Kristjánsdóttir tekur á móti gesti sem fer í gegnum uppáhaldslög frá mismunandi tímum.
Söngkonan Nanna Bryndís Hilmarsdóttir var gestur Lovísu í Lagalistanum.
Spjallað við landann og leikin tónlist úr öllum áttum á laugardagskvöldum. Ljúfir tónar, brjálað rokk og óskalög úr öllum landshornum.
Útvarpsfréttir.