Í þættinum er slegist í för með Kleppsfjölskyldunni í ferð á slóðir forfeðra þeirra í Frakklandi, Ítalíu og Þýskalandi sumarið 2006.
Lesari með umsjónarmanni er Ólafur Egill Egilsson.
Einnig heyrist í Þórði Harðarsyni, Sveini Agnarssyni, Unni Úlfarsdóttur, Kristínu Höllu Traustadóttur, Jóni Ingimarssyni, Sverri Þórðarsyni, Jóni Þórarni Þorvaldssyni, Hrafni Gunnlaugssyni og Sólrúnu Jensdóttur.
Umsjón: Nína Björk Jónsdóttir.
Útvarpsfréttir.
*Exsultate, jubilate K.165, mótetta fyrir sópran og hljómsveit eftir Wolfgang Amadeus Mozart.
Þóra Einarsdóttir syngur með Sinfóníuhljómsveit Íslands; Bernharður Wilkinson stjórnar.
*Strengjakvartett í D-dúr op. 64 nr. 5, Lævirkjakvartettinn, eftir Joseph Haydn.
Sigrún og Sigurlaug Eðvaldsdætur leika á fiðlur, Guðmundur Kristmundsson leikur á víólu og Richard Talkowsky leikur á selló.
*Sönglög eftir Joseph Haydn.
Arleen Augér syngur; Walter Olbertz leikur með á píanó.
Útvarpsfréttir.
Minningarþáttur um Róbert Abraham Ottósson, sem Ingibjörg Eyþórsdóttir gerði árið 2012 þegar 100 ár voru liðin frá fæðingu hans. Róbert fæddist 17. maí 1912 í Þýskalandi og lærði á píanó og hljómsveitarstjórn. Vegna uppgangs Nasista fór hann til Frakklands og Danmerkur en flutti til Íslands árið 1935. Róbert hafði mikil áhrif á íslenskt tónlistarlíf; var píanóleikari, tónlistarkennari, kórstjóri, hljómsveitarstjóri, tónskáld, fræðimaður, kórstjóri og háskólakennari.
Umsjón: Ingibjörg Eyþórsdóttir. Rætt er við Árna Heimi Ingólfsson, Jakob Benediktsson, Þorgerði Ingólfsdóttur og Þorkel Sigurbjörnsson. Einnig heyrast brot úr fréttatímum þar sem Magnús Bjarnfreðsson og Margrét Indriðadóttir ræða við Róbert og brot úr viðtali sem Þorkell Sigurbjörnsson átti við hann.
Þátturinn er endurfluttur í tilefni af því að 10. mars s.l. voru 50 ár liðin frá andláti hans.
(Áður á dagskrá 2012.)
Útvarpsfréttir.
Veðurstofa Íslands.
Fuglasöngur er flókið tungumál sem fuglar nota til að tjá ýmsar mikilvægar upplýsingar um sig sjálfa. Í þessari þáttaröð er fjallað um fuglasöng frá bæði líffræðilegum og menningarlegum hliðum. Hvað hafa fuglar að segja og hvað eigum við manneskjur sameiginlegt með fuglum þegar kemur að samskiptum?
Umsjón: Hlynur Steinsson.
Ritstjórn og samsetning: Gígja Hólmgeirsdóttir.
Tæknimaður: Lydía Grétarsdóttir
Í þessum þætti kynnumst við betur tveimur fuglategundum sem eru sérstaklega virkar í tónlistarsenu Íslands. Skógarþrestir fá orðið og við hlustum á mismunandi mállýskur skógarþrasta alls staðar af landinu. Við fjöllum um músarrindla, einn allra minnsta en á sama tíma háværasta söngvara landsins.
Umsjón: Hlynur Steinsson.
Ritstjórn og samsetning: Gígja Hólmgeirsdóttir.
Tæknimaður: Lydía Grétarsdóttir
Tónlist: Cosmo Sheldrake.
Guðsþjónusta.
Dagur aldraðra.
Séra Magnús Björn Björnsson predikar og þjónar fyrir altari.
Organisti og kórstjóri: Jóhann Baldvinsson.
Garðakórinn - kór eldri borgara í Garðabæ syngur.
Steinunn Þorbergsdóttir les ritningalestra og almenna kirkjubæn.
Fyrir predikun:
Forspil: Nú andar suðrið. Lag: Ingi T. Lárusson. Texti: Jónas Hallgrímsson.
Sálmur 770: Ó, blessuð vertu sumarsól. Lag: Ingi T. Lárusson. Texti: Páll Ólafsson.
Sálmur 265: Þig lofar, faðir, líf og önd. Lag frá 10. öld. Texti: Sigurbjörn Einarsson.
Sálmur 474: Lofsyngið Drottni. Lag: Georg F. Händel. Texti: Valdimar V. Snævarr.
Sálmur 467: Smávinir fagrir. Lag: Jón Nordal. Texti: Jónas Hallgrímsson.
Eftir predikun:
Kvæðið um fuglana (Snert hörpu mína). Lag: Atli Heimir Sveinsson. Texti: Davíð Stefánsson frá Fagraskógi.
Hver á sér fegra föðurland. Lag: Emil Thoroddsen. Texti: Hulda.
Eftirspil: Pomp and Circumstance - Mars nr. 4 eftir Edward Elgar.
Íslenskt lag eða tónverk.
Útvarpsfréttir.
Á höfuðborgarsvæðinu eru tæplega þúsund strætóskýli. Í Beðið eftir strætó er fjallað um þessar litlu byggingar sem eru hreint ekki allar eins. Strætóskýli eiga sviðið og eru jafnvel sviðið.
Í fyrri þætti er rætt um hönnun strætóskýla, útlit, aðbúnað og rekstrarform. Hvað er strætóskýli, af hverju þarf gott skýli að státa? Hvað er einkennandi, hvað er áhugavert og hvað er truflandi við strætóskýli?
Í seinni þættinum er rýnt í ummerki á veggjum strætóskýla, fjallað um tilfinningar sem tengjast þeim og samskipti fólks. Hafa samskipti milli ókunnugra aukist eða minnkað síðastliðin ár? Eru einhverjar óskrifaðar reglur sem gilda á meðan beðið er eftir strætó?
Umsjón: Arnhildur Hálfdánardóttir.
Kammerkórinn Cantoque Ensemble flutti efnisskrá tileinkaða Þorkeli Sigurbjörnssyni á tónleikum í Hallgrímskirkju 28. janúar s.l.á tónlistarhátíðinni Myrkum músíkdögum.
Flutt voru nokkur af ástsælustu verkum tónskáldsins í bland við önnur sem sjaldnar heyrast.
Stjórnandi: Steinar Logi Helgason.
Þórarinn Björnsson kennari fer víða og spjallar við fólk.
Þórarinn Björnsson heimsækir Aðlageir Egilsson, veðurathugunarmann og safnara á Mánárbakka á Tjörnesi.
Útvarpsfréttir.
Umsjón: Jónatan Garðarsson og Ásgeir Tómasson.
(Þáttaröð frá árunum 2001-2003)
Haukur Morthens lærði prentiðn og var söngvari í lausamennsku þar til hann var fastráðinn árið 1954, fyrstur allra íslenskra dægurlagasöngvara. Sama ár voru gefnar út plötur með söng hans sem seldust vel. Hann kom víða við á söngferli sínum og var í hópi dáðustu skemmtikrafta landsins. Þátturinn er endurfluttur í tilefni af því að 17. maí næstkomandi eru 100 ár liðin frá fæðingu hans. Rætt er við Hauk, Björn R. Einarsson og Skapta Ólafsson.
Úr þáttaöðinni Íslensk dægurtónlist í eina öld.
Umsjón: Jónatan Garðarsson og Ásgeir Tómasson.
(Áður á dagskrá 27. janúar 2002)
Þáttur um skáldsöguna Brestir í Brooklyn eftir bandaríska rithöfundinn Paul Auster. Sagan er sögð af Nathan Glass tæplega sextugum fráskyldum manni sem flytur á æskuslóðir sínar í New York til að bíða dauðans. Örlögin haga því þó svo að tilvera Nathans fyllist af lífi og óvæntum atburðum. Paul Auster hefur lýst bókinni sem óði til unaðssemda hversdagslífsins og lýsir það bókinni ágætlega. Í þættinum hljóma upptökur frá bókmenntahátíð árið 2005 annars vegar upplestur Austers úr skáldsögunni Brestir í Brooklyn sem þá var ekki enn komin út og hins vegar viðtal sem Torfi Túliníus tók við hann um ævi hans og störf. Einnig er rætt við Jón Karl Helgason bókmenntafræðing sem þýddi bókina á íslensku. Kristján Franklín Magnús ljær Paul Auster rödd sína en tónlist er af disknum The Soul of Ben Webster. Umsjón: Haukur Ingvarsson.
Kvöldfréttir útvarps
eftir Marie Louise Fleisser.
Þýðandi: María Kristjánsdóttir.
Lesari: Guðrún S. Gísladóttir.
Jórunn Sigurðardóttir flytur formálsorð.
eftir Marie Louise Fleisser.
Þýðandi: María Kristjánsdóttir.
Lesari: Guðrún S. Gísladóttir.
Jórunn Sigurðardóttir flytur formálsorð.
(Áður á dagskrá 2008)
Í þessum þáttum köfum við djúpt ofan í þjóðsögukistu heimsins. Sögurnar eru allskonar, sumar fyndnar, aðrar fróðlegar, sumar alveg út í hött og enn aðrar kannski svolítið hræðilegar eða draugalegar. Í hverjum þætti heyrum við tvær eða þrjár þjóðsögur frá ýmsum heimshornum.
Umsjón: Ingibjörg Fríða Helgadóttir.
Þjóðsögur þáttarins:
Djákninn á Myrká (Ísland)
Hvernig sögur urður til (Norður- Ameríka)
Leikraddir:
Birkir Blær Ingólfsson
Helgi Már Halldórsson
Regína Rögnvaldsdóttir
Sigurður Ingi Einarsson
Vala Kristín Eiríksdóttir
Sérfræðingur í þjóðsögum: Terry Gunnell, prófessor í þjóðfræði við Háskóla Íslands
Lestur og umsjón: Ingibjörg Fríða Helgadóttir
Veðurstofa Íslands.
Dánarfregnir.
Sígild tónlist.
Hljóðritun frá hátíðartónleikum hljómsveitarinnar Wiener Akademie sem fram fóru í Ráðhúsinu í Wuppertal hinn 7. maí s.l., en tónleikarnir voru haldnir til minnast þess að þann dag voru liðin 200 ár frá frumflutningi níundu sinfóníu Ludwigs van Beethovens.
Á tónleikunum var endurflutt, í fyrsta sinn, efnisskráin frá tónleikunum 7. maí 1824 þar sem flutt voru þrjú verk eftir Ludwig van Beethoven:
*Die Weihe des Hauses, forleikur op. 124.
*Þættir úr Missa Solemnis í D-dúr op. 123.
*Sinfónía nr. 9 í d-moll op. 125.
Einsöngvarar með Wiener Akademie hljómsveitinni og Kór Vestur-þýska útvarpsins eru Chen Reiss sópran, Sara Fulgoni alt, Michael Schade tenór og Florian Boesch bassi; Martin Haselbök stjórnar.
Umsjón: Guðni Tómasson.
Gunnar Stefánsson fjallar um listamanninn Guðmund Thorsteinsson, Mugg og les úr bókinni „Guðmundur Thorsteinsson, ævi hans og list" eftir Björn Th. Björnsson. Einnig les Vigdís Finnbogadóttir söguna „Dimmalimm" eftir Mugg.
Útvarpsfréttir.
Veðurstofa Íslands.
Sögur frá börnum sem dvöldust á fjölskylduheimili á vegum Reykjavíkurborgar á sjötta og áttunda áratug síðustu aldar. Jón Dalbú Hróbjartsson prestur segir frá upplifun sinni af heimilinu þar sem hann var tíður gestur. Umsjónarmaður er Ólöf Dómhildur Jóhannsdóttir.
Þáttur um armenska tónskáldið og spekinginn Goerge Ivanovich Gudjieff (1866-1949). Umsjón: Guðni Tómasson
Útvarpsfréttir.
Útvarpsfréttir.
Á uppstigningardegi ætlar Kristján Freyr að rísa á ról með hlustendum Rásar 2 og spila ljúfa tóna inn í morgunsárið. Lög sem helst rata undir nálina tengjast tónlistarfólki sem hefur átt einhvers konar endurkomu á ferli sínum eða þau lög sem tengjast upprisu á einhvern hátt.
Útvarpsfréttir.
Útvarpsfréttir.
Einar Örn Jónsson fær til sín góða gesti úr íþróttaheiminum.
Útvarpsfréttir.
Nú er vor í lofti og allt á uppleið. Hulda G. Geirsdóttir verður þess vegna á léttum nótum með hlustendum, leikur fjölbreytta tóna og spjallar við skemmtilegt fólk á þessum fína frídegi.
Útvarpsfréttir.
Í þessum þætti verður farið yfir ris og fall nu-metal tónlistarstefnunnar sem reis hvað hæst um aldamótin. Hvað orsakaði fall nu-metalsins og áratuga langa fyrirlitningu og vanvirðingu í framhaldinu? Nu-metallinn er þó á uppleið aftur núna, hvernig getur það verið? Afhverju allt þetta hatur og afhverju litu helstu tónlistarsérfræðingar heimsins niður á nu-metal? Sérfræðingar og þáttastjórnandi leitast við að svara þessum spurningum og mörgum öðrum.
Umsjón: Karl Sölvi Sigurðsson.
Kvöldfréttir útvarps
Siggi Gunnars spilar soul og jazz sem lyftir andanum á hátíðardögum.
Umsjón: Sigurður Þorri Gunnarsson
Siggi Gunnars spilaði sálartónlist um borgir og „ghetto“ ásamt ýmsu öðru í fjölbreyttum þætti af Upp, upp mín sál.
Spiluð lög:
Bill Withers - Harlem
Stevie Wonder - Living For The City
Gregory Porter - The World (Is Going Up In Flames)
Gabriels - Remember Me
Marlena Shaw - Woman of the Ghetto
Donny Hathaway - Little Ghetto Boy
Bill Withers - Who Is He? (And What Is He To You?)
Thundercat - Them Changes
Isley Brothers - Summer Breeze
Stevie Wonder - Hello Young Lovers
Snarky Puppy og Magda Giannikou - Amour T'es La
Fréttastofa RÚV.
Farið er yfir það nýjasta og ferskasta sem er að gerast í grasrót tónlistarsenunnar á Íslandi. Þátturinn leggur áherslu á vandaða umfjöllun um senuna og fólkið sem hana byggir í bland við nýútgefna tónlist.
Umsjón: Karl Sölvi Sigurðsson og Snæbjörn Helgi Arnarsson Jack.
Útvarpsfréttir.
Tónleikaupptökur víðsvegar að úr heiminum, frá ýmsum tímum og úr ólíkum tónlistaráttum. Nýjar og gamlar tónleikaupptökur úr safni Rásar 2 í bland við upptökur frá tónlistarhátíðum erlendis sem vinir Rásar 2 í EBU bjóða upp á.