Útvarpsfréttir.
Pétur Halldórsson ræðir við Hrefnu Kristmannsdóttur, prófessor í jarðhitafræðum við Háskólann á Akureyri. Viðtalið fer fram í Glerárgili og Hrefna byrjar á því að viðnámsmæla ána. Svo er rætt um rannsóknir á heitu og köldu vatni vítt og breitt um landið. Hrefna segir frá rannsóknum sínum við Kröflu á sínum tíma, vinnu hjá Orkustofnun og ÍSOR og svo hjá Háskólanum á Akureyri. Sömuleiðis ræðir hún um föður sinn, Kristmann Guðmundsson skáld.
(Áður á dagskrá 2006)
Þáttur um stöðu húsmæðraorlofsins í samtímanum.
Umsjónarmaður: Gígja Hólmgeirsdóttir.
Lokaverkefni í Hagnýtri menningarmiðlun í H.Í.
(Áður á dagskrá 2018)
Þáttur um stöðu húsmæðraorlofsins í samtímanum.
Umsjónarmaður: Gígja Hólmgeirsdóttir.
(Áður á dagskrá í ágúst sl.)
Veðurstofa Íslands.
Fuglasöngur er flókið tungumál sem fuglar nota til að tjá ýmsar mikilvægar upplýsingar um sig sjálfa. Í þessari þáttaröð er fjallað um fuglasöng frá bæði líffræðilegum og menningarlegum hliðum. Hvað hafa fuglar að segja og hvað eigum við manneskjur sameiginlegt með fuglum þegar kemur að samskiptum?
Umsjón: Hlynur Steinsson.
Ritstjórn og samsetning: Gígja Hólmgeirsdóttir.
Tæknimaður: Lydía Grétarsdóttir
Er menning algjörlega mannlegt fyrirbæri eða hafa fuglar líka einhver menningareinkenni? Við veltum fyrir okkur menningareinkennum meðal fugla í gegnum þróun söngs, tónlistarsmekk og hreiðurgerð og fjöllum um menningarnám og jafnrétti kynjanna – allt út frá sjónarhorni fugla.
Umsjón: Hlynur Steinsson.
Ritstjórn og samsetning: Gígja Hólmgeirsdóttir.
Tæknimaður: Lydía Grétarsdóttir.
Útvarpsfréttir.
Mótmæli bandarískra stúdenta stigmagnast enn. Lögregla beitti piparúða gegn mótmælendum í gær og til átaka kom milli stúdenta sem styðja Palestínu og þeirra sem eru hliðhollir Ísrael.
Skoðað er hvort þurfi að reisa nýja varnargarða innan syðstu varnargarðanna við Grindavík. Mikil óvissa er um framvindu gossins við Sundhnúksgíga.
Baráttudagur verkalýðsins er haldinn hátíðlegur um allt land. Kröfugöngur, kaffi og skemmtiatriði einkenna hátíðarhöldin.
Samtökin '78 segja bæði almenna borgara og jafnvel fjölmiðlafólk gera lítið úr hæfni Baldurs Þórhallssonar forsetaframbjóðanda vegna kynhneigðar hans.
Hátt í fimmtíu lundar fundust dauðir í fjöru á Dalvík. Yfirdýralæknir Matvælastofnunar segir óvíst hvað veldur, en grunsemdir vakni um fuglaflensu.
Líklega deyr einhver á endanum, segja filippseysk stjórnvöld um það að Kínverjar beiti vatnsbyssum gegn strandgæslu Filippseyja. Spennan á Suðurkínahafi fer vaxandi.
Varptímabilið er að ganga í garð og í Garðabæ búa íbúar og bæjaryfirvöld sig undir að verjast ágangi mávsins.
Miðvikudaginn 7. febrúar s.l. voru 120 ár liðin frá fæðingu Einars Ragnars Jónssonar, sem er betur þekktur undir nafninu Ragnar í Smára. Hann var þjósagnapersóna í lifanda lífi; kraftmikill sveitastrákur úr Flóanum sem gerðist iðnrekandi, bókaútgefandi, málverkasafnari og lífið og sálin í tónlistarlífinu í Reykjavík um áratugaskeið. Í þættinum rifjar Jón Karl Helgason upp ýmsar sögur af Ragnari sem varpa ljósi á margþættan persónuleika hans en afhjúpa um leið að góð saga má ekki gjalda fyrir sannleikann. Jón Karl er sjálfur alinn upp við sögur af Ragnari en sendi líka frá sér skáldævisöguna Mynd af Ragnari í Smára árið 2009.
Ásamt Jóni Karli annast Marteinn Sindri Jónsson framleiðslu þáttarins en efni hans var áður flutt sem lifandi afmæli.
Bein útsending frá útihátíðarhöldum á Ingólfstorgi.
Fundarstjóri er Arna Jakobína Björnsdóttir, formaður Kjalar.
Ræður flytja Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar og Þórarinn Eyfjörð, formaður Sameykis.
Bríet og Úlfur Úlfur taka lagið og í lok fundar syngur fundarfólk og tónlistarfólk.
Í þættinum er skyggnst inn í veruleika aðflutts launafólks á íslenskum vinnumarkaði. Nauðungarvinna og félagsleg undirboð á vinnumarkaði eru í örum vexti á Íslandi og veruleiki margra. Erlendir ríkisborgarar eru berskjaldaðri fyrir slíkri misbeitingu og hafa oft ekki tækifæri til að segja frá aðstæðum sínum. ASÍ hefur vakið athygli á þessu vandamáli árum saman. Rætt er við Sögu Kjartansdóttur, sem starfar hjá vinnustaðaeftirliti ASÍ, um viðhorf almennings og stjórnvalda í baráttunni gegn vinnumansali. Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, viðurkennir að stjórnvöld þurfi að gera betur og boðar aðgerðir í málaflokknum.
Umsjón: Urður Örlygsdóttir.
Nýlega kom það fram í fréttum að ræstingafólk byggi við einna verst kjör allra á íslenskum vinnumarkaði. Ræstingar voru öldum saman að mestu kvennastarf og í þættinum verða lesnar tilvitnanir í ræstingakonur fyrri tíma um leið og fjallað verður um líf þeirra og starf. Meðal þeirra sem koma við sögu er indverska vinnukonan Janabai sem uppi var á 14. öld og orti ljóð, hin enska Bridget Holmes sem uppi var á 17. öld og hvílir í Westminster Abbey, og 20. aldar ræstingakonurnar Elka Björnsdóttir og Maja Ekelöf. Elka vann við ræstingar í Reykjavík á árunum 1917-1922 og lýsir lífi sínu í merkri dagbók sem gefin var út árið 2012. Maja Ekelöf var sænsk og samdi upp úr dagbók sinni bókina „Skýrsla úr skúringafötu" (Rapport från en skurhink) sem fékk verðlaun í samkeppni hjá forlaginu Rabén & Sjögren árið 1970. Einnig verður flutt viðtal við Jóhönnu Þ. Guðjónsdóttur sem starfar nú við ræstingar í Reykjavík. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir og lesari er Ragnheiður Steindórsdóttir.
Skyggnst inn í líf ferjumannsins Jóns Ósmanns sem ferjaði við Héraðsvötn fyrir botni Skagafjarðar í hátt í 40 ár. Jón var kynlegur kvistur og annálað hraustmenni á sinni tíð.
Rætt er við Svein Guðmundsson, hrossaræktanda, Stefán Guðmundsson, Árna Ragnarsson, arkitekt og Hjalta Pálsson, sagnfræðing.
Umsjón: Íris Gyða Guðbjargardóttir.
Veðurstofa Íslands.
Hljóðritun frá tónleikum portúgölsku fado-söngkonunnar Marizu á Proms-hátíðinni í London í júlí í fyrra.
Með Marizu koma fram gítarleikararnir Luis Guerreiro og Phelipe Ferreira, harmóníkuleikarinn João Frade, Adriano Alves “Dinga“ bassagítarleikari og slagverksleikarinn João Freitas ásamt strengjasveit hljómsveitarinnar London Contemporary Orchestra.
Umsjón: Jónatan Garðarsson.
Fjallað um viðbrögð reykvískra verkamanna við atvinnuleysi á öðrum og þriðja tug síðustu aldar. Inn í frásögnina er skotið samtímafrásögnum úr Morgunblaðinu, Alþýðublaðinu og gerðabókum Dagsbrúnar.
Umsjón: Þorleifur Friðriksson.
Lesari: Viðar Eggertsson.
(Áður á dagskrá 1993)
Heimildaskáldsaga eftir Björn Th. Björnsson. Guðmundur Ólafsson les.
Sagan gerist í Þingvallasveit á fyrri hluta nítjándu aldar, áður en tekið var að upphefja Þingvöll sem mesta helgistað landsins af skáldum og þjóðskörungum. Þá var Snorrabúð stekkur, eins og Jónas kvað.
Páll Þorláksson var prestur í Þingvallasókn. Hann þykist sjá að ekki sé allt samkvæmt kristilegum skikk á bænum Skógarkoti þar sem Kristján Magnússon fer með húsbóndavald. Ljóst þykir að eiginkona Kristjáns getur ekki verið móðir allra þeirra barna sem hann feðrar í sínum ranni. Hefjast út af þessu nokkrar væringar milli hins knáa húsbónda og Þingvallaklerks og má hið geistlega vald sín lengi vel næsta lítils í þeim viðskiptum.
Veðurstofa Íslands.
Ljóð Halldórs Laxness „Maístjarnan“ hefur með tíð og tíma orðið þjóðareign. Í þættinum Maísólin okkar, maísólin hans verður ljóðið skoðað í þeim ólíku samhengjum sem það hefur birst í. Leikin verða ólík lög sem til eru við ljóðið auk þess sem í þættinum hljómar fræg upptaka Péturs Péturssonar þular frá 1. maí 1986 þar sem Halldór Laxness syngur ljóðið við þýskan slagara í tangó-stíl.
Umsjónarmaður: Haukur Ingvarsson
Fjallað um Pétur Sigurðsson tónskáld, söngstjóra og verkalýðsleiðtoga á Sauðárkróki. Hann fæddist 14. apríl 1899, fyrir 125 árum, og lést 25. ágúst 1931 aðeins 32 ára. Sagt er frá Skagfirska bændakórnum og Friðriki Hansen, skáldi og kennara, sem var vinur og samstarfsmaður Péturs.
Lesari í þættinum er Sigríður Kristín Jónsdóttir.
Umsjón: Jón Ormur Ormsson.
Útvarpsfréttir.
Útvarpsfréttir.
Förum á fætur með Steineyju þó þið gætuð kannski sofið lengur því það er frídagur. Hlustum á skemmtilega tónlist og heyrum í öðru fólki sem er vaknað.
Umsjón: Steiney Skúladóttir.
Steiney fer yfir bestu morgunlögin, fer yfir dagskrá 1.maí um allt land og opnar fyrir óskalög frá hlustendum. Rannveig Rós Bjarnadóttir kíkti í spjall en hún er formaður Lúðrasveitar verkalýðsins.
Útvarpsfréttir.
Mótmæli bandarískra stúdenta stigmagnast enn. Lögregla beitti piparúða gegn mótmælendum í gær og til átaka kom milli stúdenta sem styðja Palestínu og þeirra sem eru hliðhollir Ísrael.
Skoðað er hvort þurfi að reisa nýja varnargarða innan syðstu varnargarðanna við Grindavík. Mikil óvissa er um framvindu gossins við Sundhnúksgíga.
Baráttudagur verkalýðsins er haldinn hátíðlegur um allt land. Kröfugöngur, kaffi og skemmtiatriði einkenna hátíðarhöldin.
Samtökin '78 segja bæði almenna borgara og jafnvel fjölmiðlafólk gera lítið úr hæfni Baldurs Þórhallssonar forsetaframbjóðanda vegna kynhneigðar hans.
Hátt í fimmtíu lundar fundust dauðir í fjöru á Dalvík. Yfirdýralæknir Matvælastofnunar segir óvíst hvað veldur, en grunsemdir vakni um fuglaflensu.
Líklega deyr einhver á endanum, segja filippseysk stjórnvöld um það að Kínverjar beiti vatnsbyssum gegn strandgæslu Filippseyja. Spennan á Suðurkínahafi fer vaxandi.
Varptímabilið er að ganga í garð og í Garðabæ búa íbúar og bæjaryfirvöld sig undir að verjast ágangi mávsins.
Andrea Jónsdóttir leikur baráttusöngva í tilefni verkalýðsdagsins.
Á baráttudegi verkalýðsins er vert að minnast á hinar ýmsu orrustur þar sem fólk berst fyrir bættum heimi í formi laga og texta. Iðulega er þá sungið til góðs málefnis, handa hungruðum heimi, fyrir byggingu ráðhúss og/eða til áminningar um að eftir einn eigi aki neinn eða að blautþurrkur eigi ekki að rata í salernisskálar. Kristján Freyr Halldórsson fer yfir nokkur eftirminnileg stuðningslög.
Jóhann Alfreð situr með hlustendum á milli fjögur og sex á frídegi verkalýðsins. Tónlist úr öllum áttum þar sem baráttuandinn verður ekki langt undan. Silja Úlfarsdóttir, hlaupadrottning mætti í stúdíó og hitaði upp fyrir hlaupasumarið framundan og sagði okkur frá nýju hlaðvarpi sem hún var að setja á laggirnar. Þá fluttum við innslag þar sem rætt var við Baldvin Jón Hallgrímsson, málara sem gaf okkur góð ráð fyrir vorverkin framundan meðal annars við palla áburð.
Umsjón: Jóhann Alfreð Kristinsson.
Siggi Gunnars spilar soul og jazz sem lyftir andanum á hátíðardögum.
Umsjón: Sigurður Þorri Gunnarsson
Fjölbreytt tónlist, ný og gömul, en alltaf full af grúví í þættinum að þessu sinni. Siggi fjallaði meðal annars um lagið sem hafði mikil áhrif á tónlistarstefnuna sem síðar varð hip hop, tónlistarborgina Chicago og nýja sálar og jazztónlist frá skandinavíu í þættinum að þessu sinni.
Spiluð lög:
Babies flokkurinn - Í-Æ-Ó
Young Gun Silver Fox - Still Got It Going On
Sly and the Family Stone - Family Affair
Dina Ögon - Jag vill ha allt
Khruangbin - May Ninth
Gill Scott-Heron - It's Your World
Gill Scott-Heron - The Revolution Will Not Be Televised
Astrud Gilberto - Light My Fire
Michael Kiwanuka - Beautiful Life
Clothing Club - Hott Stoff
Bobby Caldwell - What You Won't Do For Love
Oscar Brown - Mr. Kicks
Lou Rawls - You'll Never find another love like mine
The Staple Singers - Respect Yourself
Fréttastofa RÚV.
Á Kvöldvaktinni heyrir þú nýjustu slagarana og útgáfurnar frá upprennandi og uppáhalds tónlistarfólki þínu í fjölbreyttum kokteil af tónlist, tungum, straumum og stefnum sem þykja endurspegla tíðaranda dagsins í dag. Umsjónarmaður: Þorsteinn Hreggviðsson.
Það var rík ástæða til þess að fagna í dag enda verklýðsdagurinn og nýr mánuður genginn í garð, það var þó ekki í brennidepli í þætti kvöldsins en frídagsgleðin var þó alls ráðandi og spilað var nýtt efni frá nýtt efni spilað frá Cell7, Hozier, Thom Yorke, Justice & Tame Impala, Rachel Chinouriri, Drake, Kings of Leon og Kasabian.
All my friends - Cell7
The Door - Teddy Swims
Changes - Empire of the Sun
Robot Lovers - Willow Kayne
Lightenup - Parcels
Spyrja eftir þér - CELEBS
i like the way you kiss me - Artemas
Seeing it now - Swim School
Everyday - ASAP Rocky, Rod Stewart & Mark Ronson
Why Would You Be Loved - Hozier
Yfir strikið - Una Torfa
Knife Edge - Thom Yorke
Baddy On The Floor - Jamie XX & Honey Dijon
Illusions - Jalen Ngonda
Góðir hlutir gerast hææægt - Hipsumhaps
Like I Say (I Runaway) - Nilufer Yanya
Moments Die - Joe Goodard & barrie
Neon Pill - Cage The Elephant
Don't Ask (Lapsley Remix) - Kaeto
Ice Cream (Pay Phone) - Black Pumas
Neverender - Justice & Tame Impala
Greatest Gift (Reimagined) - Jorja Smith
Why Is Everyone a DJ? - Laundry Day
Cry No More - Headie One, Stormzy & Tay Keith
It Is What It Is - Rachel Chinouriri
Obsessed - Olivia Rodrigo
Missing Out - Maya Hawke
Scared Of Heights - Hera Björk
Pyramids - Bear The Ant
Berwyngesaffneighbours - Fred again..,
Only One - Cassandra Jenkins
Give It To Me Good - Sidepiece & Disco Lines
Davey Says - King Hannah
How You Feel - ANOTR
Illuminate - Grace Davies
Push Ups - Drake
Coming Back To Me Good - Kasabian
Friki dór 2012 - ClubDub
Nothing To Do - Kings of Leon
Starburster - Fontaines D.C.
22 - Hana Vu
Prep-School Gangsters - Vampire Weekend
On The Game - The Black Keys
Cards On The Table - Nia Archives
End Of Beginning - DJO
Working Class Hero - John Lennon
Tónlistinn er vinsældalisti Íslands. Listinn er samantekt á mest spiluðu lögunum á útvarpsstöðvunum Bylgjunni, FM957, X-inu 977, Rás 2 og K100, sem og á streymisveitum. Listinn er unninn af Félagi hljómplötuframleiðenda og er á dagskrá Rásar 2 alla sunnudaga.
Umsjón: Helga Margrét Höskuldsdóttir.
Vinsælustu lögin á Íslandi vikuna 21. - 28. apríl 2024.