Þrælað út

Birt

1. maí 2024

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Þrælað út

Í þættinum er skyggnst inn í veruleika aðflutts launafólks á íslenskum vinnumarkaði. Nauðungarvinna og félagsleg undirboð á vinnumarkaði eru í örum vexti á Íslandi og veruleiki margra. Erlendir ríkisborgarar eru berskjaldaðri fyrir slíkri misbeitingu og hafa oft ekki tækifæri til segja frá aðstæðum sínum. ASÍ hefur vakið athygli á þessu vandamáli árum saman. Rætt er við Sögu Kjartansdóttur, sem starfar hjá vinnustaðaeftirliti ASÍ, um viðhorf almennings og stjórnvalda í baráttunni gegn vinnumansali. Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, viðurkennir stjórnvöld þurfi gera betur og boðar aðgerðir í málaflokknum.

Umsjón: Urður Örlygsdóttir.

,