Umsjón: Una Margrét Jónsdóttir.
Mörg tónskáld hafa líkt eftir vindi í tónsmíðum sínum og í þessum þætti verða flutt nokkur slík verk. Þar á meðal er flautuverkið „Andvari I“ eftir Báru Grímsdóttur, sönglagið „The wind at dawn“ eða „Vindur í dögun“ eftir Edward Elgar, flautukonsertinn „La tempesta di mare“ – „Stormur á hafi“ – eftir Antonio Vivaldi og píanóverkið „Comme le vent“ – „Eins og vindurinn“ – eftir Charles Valentin Alkan.
Af hverju eru börn skírð, er fermingin skuldbinding, hver ræður hvaða tónlist er flutt við útfarir? Um þetta og margt fleira sem snertir athafnir á vegum Þjóðkirkjunnar er fjallað í tveimur þáttum sem verða sendir út um Hvítasunnuna.
Umsjón hefur Þorgeir Ólafsson.
Amen eftir efninu. Af hverju eru börn skírð, er fermingin skuldbinding, hver ræður hvaða tónlist er flutt við útfarir? Um þetta og margt fleira sem snertir athafnir á vegum Þjóðkirkjunnar er fjallað í tveimur þáttum sem verða sendir út um Hvítasunnuna. Rætt er við prestana Davíð Þór Jónsson og Maríu Guðrúnar Ágústsdóttur um skírnina, ferminguna, hjónavígslur og útfarir. Bjarki Sveinbjörnsson tónlistarfræðingur segir frá kirkjusöng áður en hljóðfæri komu til sögunnar, Bjartur Logi Guðnason organist ræðir um tónlistina við kirkjuathafnir og Sveinn Valgeirsson prestur um sálmana.

frá Veðurstofu Íslands.
Helgi Seljan kynnir sér lífið í öryggisfangelsinu Litla-Hrauni.
Í öðrum þætti Letigarðsins hittum við fanga sem verið hefur meira í fangelsi en utan þess í aldarfjórðung og annan sem á óstaðfest heimsmet í því að koma við sögu lögreglu. Hvers vegna er svona brjálað að gera í númeraplötudeildinni og af hverju er byssuturn á fangelsinu? Hvað er spice? Hvernig er að reka edrú-borð á bar? Af hverju kalla fangarnir prestinn Holy smoke og hvað myndi koma fyrir þann sem brotnaði niður og gréti í röðinni í Rimlakjöri? Hvers vegna ganga fangarnir alltaf réttsælis hringinn um fótboltavöllinn? 19 ára strákur sem skyndilega rankar við sér í fangelsi segir okkur frá því hversu skíthræddur hann var við staðinn og kvenfangaverðir segja fangana mun kurteisari við sig en karlana.
Umsjón Helgi Seljan
Tæknimaður Hrafnkell Sigurðsson.
Bein útsending úr hátíðarmessu í Hallgrímskirkju á hvítasunnudegi. Prestur er sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir. Organisti er Björn Steinar Sólbergsson. Kór Hallgrímskirkju syngur, stjórnandi er Steinar Logi Helgason. Eftir prédikun er flutt kórverkið„ Á hvítasunnudag“ eftir Finn Karlsson við ljóð Einars Sigurðssonar frá Eydölum. Verkið var samið vorið 2021 fyrir Kór Hallgrímskirkju, Steinar Loga Helgason og Björn Steinar Sólbergsson Messuþjónar lesa ritningarlestra og leiða almenna kirkjubæn.
Tónlistin í messunni:
Fyrir predikun
Forspil: Komm, Heiliger Geist, Herre Gott BuxWV 199 Dietrich Buxtehude
Sálmur 165 Skín á himni skír og fagur (1. vers) Philipp Nicolai / Valdimar Briem
Miskunnarbæn Kyrie eleison Missa de Angelis
Sálmur 474 Lofsyngið Drottni Georg F. Händel / Valdemar V. Snævarr
Kórsöngur Guð helgur andi, heyr oss nú úts. Róbert A. Ottóson / Luther – Helgi Hálfdánarson
Sálmur 170 Leiftra þú, sól Jón Ásgeirssson / Sigurbjörn Einarsson
Eftir predikun
Stólvers Á hvítasunnudag Finnur Karlsson / Einar Sigurðsson í Eydölum
496a Gegnum Jesú helgast hjarta John F. Wade / Hallgrímur Pétursson
Undir útdeilingu Adagio úr orgelsinfóníu nr. VI op. 42 Charles-Marie Widor
Sálmur 173 Kærleikseldur unaðsskæri William P. Roland / Þórir Jökull Þorsteinsson
Eftirspil: Toccata Jón Nordal
Útvarpsfréttir.
Vonir hafa vaknað um að samkomulag um frið við Persaflóa náist strax í dag og að opnað verði fyrir siglingar um Hormússund. Óvissa er um innihaldið.
Rússar skutu 600 drónum og 90 eldflaugum að Úkraínu í nótt. Meðal eldflauganna var ein sem getur borið kjarnorkusprengjur. Fjórir voru drepnir í árásunum og 60 særðust.
Samningaviðræðum við Icelandair miðar ágætlega, segir formaður atvinnuflugmanna. Hægt þokast hjá flugvirkjum.
Vegfarandi við Hvíta húsið særðist í gær þegar byssumaður gerði þar skotárás. Viðbúnaður var mikill og Bandaríkjaforseti hefur þakkað lögreglu fyrir skjót og góð viðbrögð.
Lokaumferð ensku úrvalsdeildar karla í fótbolta er í dag. Arsenal hefur þegar tryggt sér Englandsmeistaratitilinn en spennan er í baráttunni um Evrópusæti. West Ham eða Tottenham falla niður um deild.
Í Krakkaheimskviðum fjöllum við um fréttir af því sem gerist ekki á Íslandi, en tengist því samt stundum. Karitas kafar í heimsmálin ásamt góðum gestum og fjallar á einfaldan, skýran og skemmtilegan hátt um allt milli himins og jarðar.
Umsjón: Karitas M. Bjarkadóttir
Í þessum þætti Krakkaheimskviða dveljum við á Ítalíu þar sem Feneyjartvíæringurinn fer fram um þessar mundir. Dagskrárgerðarmaðurinn Kristján Guðjónsson veit allt um málið.
Umræður um alþjóðlegu myndlistarhátíðina í Feneyjum sem fer nú fram í sextugasta og fyrsta sinn. Mótmæli hafa sett sinn svip á Feneyjatvíæringinn í ár en yfirskrift hátíðarinnar er In Minor Keys, Í mollhljómum.
Myndlistarfólkið Hallgerður Hallgrímsdóttir, Hrafnkell Tumi Georgsson og Sigrún Inga Hrólfsdóttir ræða við Kristján Guðjónsson um stefnur, strauma og pólitísku hitamálin sem hafa litað hátíðina í ár.
Umsjón: Kristján Guðjónsson
Þættir um framlag þýsk-íslenska menntavísindamannsins Wolfgangs Edelsteins til íslenskrar skólasögu. Fjallað er um ævi og störf þýsk-íslenska uppeldis- og menntafrömuðarins, Wolfgangs Edelsteins, sem átti stóran þátt í leggja grunn að íslensku skólakerfi okkar daga. Wolfgang flúði með foreldrum sínum til Íslands undan ógnarstjórn nasista á þriðja áratug síðustu aldar. Eftir að hann lauk stúdentsprófi frá M.R. fór hann til náms í Frakklandi og síðar í sínu gamla heimalandi, þar sem hann gat sér orð sem menntafrömuður og frumkvöðull í skólamálum. Á sjöunda áratug síðustu aldar var hann fenginn til að vera ráðgjafi nýrrar skólarannsóknadeildar sem sett var á laggirnar í menntamálaráðuneytinu. Að þessu verkefni vann hann í tæpa tvo áratugi, eða þar til deildin var lögð niður á níunda áratugnum.
Farið yfir frumkvöðulsstarf Wolfgangs og framlag hans til íslenskrar skólasögu. Rætt við samverkafólk hans frá þessum árum, þau Sigrúnu Aðalbjarnardóttur og Ingvar Sigurgeirsson, auk þess sem prófessorarnir Berglind Rós Magnúsdóttir og Sigríður Þorgeirsdóttir leggja orð í belg. Jafnframt heyrist brot úr viðtali Ævars Kjartanssonar og Ágústs Þórs Árnasonar við Wolfgang frá árinu 2010.
Umsjón: Arthúr Björgvin Bollason
Vasagangan er 90 km gönguskíðakeppni frá Sälen til þorpsins Mora í dölunum í Svíþjóð. Á milli Sälen og Mora er vegur sem er vel hægt að keyra á rúmlega einum klukkutíma en ég ásamt rúmlega 15.000 keppendunum hef ákveðið að borga fúlgur fjár fyrir og ganga þetta á gönguskíðum. Af hverju? Ég veit það ekki alveg.
Umsjón: Gerður Jónsdóttir.
Flytjendur á þessum tónleikum Kammermúsíkklúbbsins eru sannarlega glæsilegir fulltrúar yngri kynslóðar íslenskra hljóðfæraleikara; fiðluleikararnir Rannveig Marta Sarc og Herdís Mjöll Guðmundsdóttir og sellóleikarinn Geirþrúður Anna Guðmundsdóttir. Sá fjórði í strengjakvartettinum er kóresk-bandaríski víóluleikarinn Brian Hong. Öll eru þau búsett erlendis en komu sérstaklega til landsins til að spila fyrir Kammermúsíkklúbbinn á tónleikum sem báru yfirskriftina Kvartettferðalag: Austurríki til Jamaíka og fram fóru í Norðurljósum, Hörpu fyrr á þessu ári.
Á efnisskrá:
- Strengjakvartett í f-moll, op. 20 nr. 5 eftir Josef Haydn.
- Strengjakvartett nr. 2 eftir Eleanor Alberga.
- Strengjakvartett í f-moll, op. 80, nr. 6 eftir Felix Mendelssohn.
Umsjón: Arndís Björk Ásgeirsdóttir.
Þáttur um íslensku og önnur mál.
Umsjón: Anna Sigríður Þráinsdóttir og Guðrún Línberg Guðjónsdóttir
Eiríkur Rögnvaldsson boðaði minni einstrengingshátt og umvandanir þegar hann tók við umsjón með þættinum Daglegu máli árið 1984. Hann sagðist ekki andvígur því að fólk vandaði mál sitt heldur taldi hann að aukin fræðsla og þekking væri vænlegri leið en boð og bönn til að fá fólk til að vanda mál sitt.
Síðar sama sumar ræddi Eiríkur í Daglegu máli um orð sem venja er að séu höfð í eintölu fá fleirtölu. Um þetta hefur hann oft skrifað pistla eftir að hann gerðist uppgjafaprófessor og tók til við að fræða almenning.
Niels-Henning Ørsted Pedersen og tónlist hans. Umsjón: Vernharður Linnet.
Danski kontrabassaleikarinn Niels-Henning Ørsted Pedersen fæddist 27.maí árið 1946. Hann var mikill Íslandsvinur og hafði mikil áhrif á upprennandi tónlistarmenn með tónleikahaldi sínu hér á landi. Hann hélt hér fjölmarga tónleika með ýmsum hljómsveitum. Þar á meðal voru gítarleikarinn Philip Catherine og trommarinn Billy Hart sem spiluðu með honum í Háskólabíói árið 1978. Einnig lék hann hér á landi með löndum sínum Ole Kock Hansen píanóleikara og Alex Riel trommara, sem báðir áttu eftir að leika með íslenskum djasslistamönnum eins og bassajöfurinn sjálfur gerði líka.
Vernharður Linnet gerði þessa þætti árið 2006, en Niels Henning lést langt fyrir aldur fram árið 2005, 58 ára að aldri.

frá Veðurstofu Íslands

Hljóðritun frá sýningu Metrópólitan-óperunnar í New York, 18. okt. 2025.
Í aðalhlutverkum:
Amina: Nadine Sierra.
Elvino: Xabier Anduaga.
Lísa: Sydney Mancasola.
Rodolfo: Alexander Vinogradov.
Kór og hljómsveit Metrópólitan-óperunnar;
Riccardo Frizza stjórnar.
Umsjón: Una Margrét Jónsdóttir.

frá Veðurstofu Íslands
Sígild og samtímatónlist frá ýmsum tímum. Íslenskt og erlent í bland.
Tónlistin í þættinum:
Annar þáttur, Dumka - Andante con moto úr Píanókvintetti Nr. 2 í A-dúr, op. 81 (B. 155) eftir Antonin Dvorák. Pavel Haas kvartettinn leikur (Veronika Jarůšková,fiðla; Marek Zwiebel, fiðla; Radim Sedmidubský, víóla; Peter Jarůšek, selló); Boris Giltburg, píanó). Útgefið á plötunni Dvorak: Quintets Op. 81 & 97 árið 2023.
Fjórar Mazúrkur úr op. 50 eftir Karol Szymanowski. (nr. 13, 14, 15 og 16). Krystian Zimerman leikur á píanó. Upptökur fóru fram í tónlistarhúsinu í Fukuyama borgar í Japan. Útgefið á plötunni Karol Szymanowski - Piano Works árið 2022.
Tree line eftir Toru Takemitsu. Ísafold kammersveit leikur undir stjórn Daníels Bjarnasonar. Útgefið á plötunni Ísafold kammersveit árið 2006.
Erschüttre dich nur nicht verzagte Seele, aría úr kantötunni Was Gott tut das ist wohlgetan BWV 99 eftir Johann Sebastian Bach. Makato Sakurada tenór syngur með Bach Collegium í Japan, Masaaki Suzuki stjórnar. Útgefið á plötunni Cantatas - Vol. 25 árið 2004.
Fyrsti þáttur, Allegro molto úr Sinfóníu nr. 1 í D-dúr eftir Charles Gounod. Yan Pascal Tortelier stjórnar Sinfóníuhljómsveit Íslands sem leikur, leiðari er Sigrún Eðvaldsdóttir. Útgefið á plötunni Gounod symphonies árið 2019.
Umsjónarmaður spjallar um hvaðeina milli himins og jarðar, oft af sögulegu tagi, les forvitnilega texta úr ýmsum áttum, bæði íslenska og erlenda, og reynir af öllum mætti að hafa ofan af fyrir hlustendum þá klukkustund sem þátturinn stendur. Umsjón: Illugi Jökulsson.
Þetta er framhald af tveimur þáttum um páska þar sem fjallað var um trúarbrögð sem spámaðurinn Zaraþústra í Baktríu stóð á bak við um árið 1200 fyrir upphaf tímatals okkar. Persar tóku þessi trúarbrögð upp á sína arma og þegar þeir lögðu undir sig Babýlon á 6. öld FT höfðu þau djúp og varanleg áhrif á trúarbrögð Gyðinga sem þangað höfðu verið herleiddir.

Útvarpsfréttir.
Hulda Geirsdóttir er fyrst á fætur á sunnudagsmorgnum á Rás 2. Hún heyrir í fólki víða um land, fær til sín góða gesti og leikur fjölbreytta tónlist að sínum hætti. Notaleg morgunstund með hlustendum.
Hulda fór víða um tónlistarlendur þennan morguninn og sló á þráðinn til Sigríðar Ævarsdóttur á Gufuá í Borgarfirði sem sagði frá geitalabbi og fleiru skemmtilegu. Gestur þáttarins var Hlynur Jónasson verkefnastjóri á geðsviði Landspítalans sem sagði frá uppvexti í Fossvogi, náminu í nornabænum Salem og vinnunni sem hann brennur fyrir.
Lagalisti:
Stebbi og Eyfi - Leiddu mig í græna laut.
Laufey - Madwoman.
George Michael - Kissing a fool.
Magnús Kjartans - Helga.
Klassart - Þangað til það tekst.
Kacey Musgraves - Cardinal.
Ragnheiður Gröndal - Má ég?
Hall & Oates - Say it isn't so.
KISS - Hard luck woman.
Sigrún Stella - Sideways.
Pat Benatar - Fire and ice.
Amy Winehouse - Love is a losing game.
Suede - Saturday night.
Linda Ronstadt - Tracks of my tears.
Sigurður Guðmunsson og Memfismafían - Hún er leyndarmál.
Freyr Eyjólfsson mætir með kaffibollann sinn og grúskar í allskonar tónlist frá ýmsum tímum.
Ananas er ljúffengur og heilusbætandi ávöxtur sem á sér mergjaða sögu. Herra Dylan á afmæli á hvítasunnudegi og við hrærum í ananas kokteil og vefjum okkur í fjólublátt flauel.
Rebekka Blöndal - Kannski.
Kinks - Two sisters.
Fairport Convention - Who knows were time goes
Minnie Riperton - Les fleurs
Quincy Jones - Go down dying
James Taylor - Ananas.
PRINCE BUSTER - Whine & Grine.
Bubbi Morthens - Fjólublátt Flauel.
BOB DYLAN - Girl from the north country.
BOB DYLAN - I Threw It All Away
Bob Dylan - Isis
Lee Dorsey - Give it up
Nýdönsk - Ekkert mál.
Mugison - Kúrekinn (ég trúi á lygina).
Strokes, The - Going Shopping.
Frank Sintara & Bono - I've got you under my skin.

Útvarpsfréttir kl. 11:00 sun.
Útvarpsfréttir.
Vonir hafa vaknað um að samkomulag um frið við Persaflóa náist strax í dag og að opnað verði fyrir siglingar um Hormússund. Óvissa er um innihaldið.
Rússar skutu 600 drónum og 90 eldflaugum að Úkraínu í nótt. Meðal eldflauganna var ein sem getur borið kjarnorkusprengjur. Fjórir voru drepnir í árásunum og 60 særðust.
Samningaviðræðum við Icelandair miðar ágætlega, segir formaður atvinnuflugmanna. Hægt þokast hjá flugvirkjum.
Vegfarandi við Hvíta húsið særðist í gær þegar byssumaður gerði þar skotárás. Viðbúnaður var mikill og Bandaríkjaforseti hefur þakkað lögreglu fyrir skjót og góð viðbrögð.
Lokaumferð ensku úrvalsdeildar karla í fótbolta er í dag. Arsenal hefur þegar tryggt sér Englandsmeistaratitilinn en spennan er í baráttunni um Evrópusæti. West Ham eða Tottenham falla niður um deild.
Á Sportrásinni fylgist Doddi með því sem er að gerast í íþróttalífinu hér heima og erlendis. Helstu íþróttafréttir vikunnar og hvað er framundan með góðri aðstoð íþróttadeildar RUV. Ásamt gæða sunnudags tónlist.
Sportrásin, ekki bara fyrir þá sem hafa gaman af sportinu!
Sportrásin í dag, strax eftir hádegisfréttir á Rás 2.
Þóroddur Hjaltalín dómarastjóri KSÍ rýnir aðeins í kröfur Hearts í Skotlandi vegna loka leiksins gegn Celtic á dögunum og mögulega kíkir hann aðeins á stóra njósnamálið á Englandi.
Bragi Þórðarson (barabing) Skoðar Kanada formúluna og Íslandsmótið í Rallycross.
Davíð Eldur Baldursson frá karfan.is mætir með nýjasta slúðrið af götunni um leikmannamarkaðinn í körfunni.
Svali Björgvinsson fer yfir 5 bestu frammistöður leikmanna í mikilvægum leikjum körfunnar eftir að þjóðin horfði upp á ótrúlega frammistöðu Grindvíkingsins Jeremy Pargo gegn Tindastólum á dögunum. Er það besta frammistaða körfuboltamans á Íslandi?
Spurningastofan og Stefán Páls svarar hlustendum og margt fleira.
Tónlist frá útsendingarlogg 2026-05-24
Laufey - Madwoman.
THE LA'S - There She Goes.
MT Jones - I Don't Understand.
Issi - Bararara.
Fontaines D.C. - Favourite.
BEATS INTERNATIONAL - Dub Be Good To Me.
YELLO - The Race.
Ivar Klausen - Dreamer.
Lafourcade, Natalia, Byrne, David - ¿Cuál Es La Razón (bonus track).
KK - Lífið er.
VALDIMAR - Svartir hrafnar.
Ylja - Get Lucky (Live í Stúdíói 12 - 3. maí 2013).
GDRN - Vorið.
GUSTO - Let's All Chant.
HARRY STYLES - Sign Of The Times.
RADIOHEAD - Talk Show Host.
QUARASHI - Stars.
Nýdönsk - Ekkert mál.
Björgvin og Mugison - Minning
Rokkland er músík-magasín í útvarpi! Þar er fjallað um tónlist líðandi stundar, sögur sagðar af hljómsveitum og tónlistarmönnum og spjallað við óþekkta sem heimsþekkta tónlistarmenn. Þátturinn er aldursforseti Rásar 2 og hefur verið í loftinu í rúma þrjá áratugi.
Umsjónarmaður er Ólafur Páll Gunnarsson
Bob Dylan á afmæli - hann er 85 ára í dag og þess vegna er Rokkland vikunnar helgað honum og hans músík.
Bob Dylan er einn merkasti tónlistarmaður sögunnar og ég er búinn að vera aðdáandi síðan ég var 15 ára eða þar um bil.
Hann var hafinn upp til skýjanna af ungu fólki um allan heim þegar hann kom fram fyrst fyrir meira en 60 árum – rétt rúmlega tvítugur spámaður með gítar sem söng fyrst og fremst um óréttlæti heimsins og illsku mannanna. Hann olli mörgum miklum vonbrigðum þegar hann fór af þeirri braut nokkrum árum síðar og fór að spila einskonar Bítlarokk – syngja illskiljanlega texta – og líka um ástina. Síðan þá hefur margt gerst og Dylan hefur verið meira og minna á tónleikaferðalagi í næstum 40 ár – hann er t.d. að spila í allt suma í Bandaríkjunum.
Plöturnar eru margar eins og raddirnar og karekterarnir sem hann hefur sýnt okkur gegnum tíðina. Hver er hann eiginlega þessi maður?
Guðmundur Andri Thorsson er Dylan maður og hann er gestur Rokklands á morgun. Guðmundur þýddi sjálfsævisöguna Chronicles sem kom út fyrir nokkrum árum og þar er í bókarlok viðauki frá Guðmundi Andra – lagalisti sem hann setti saman. Við skoðum hann í Rokklandi og förum hingað og þangað.

Blönduð tónlist sem fer vel á meðan sunnudagssteikin mallar í ofninum.

Fréttastofa RÚV.
Á sunnudögum opnar Rósa Suðupottinn og býður hlustendum í fjölbreytt tónlistarferðalag þar sem jazz, trip hop, heimstónlist og fleiri stefnur mætast í nútímanum.
Laufey - Tough Luck
Henry Mancini - Lujon
Beck - Ride Lonesome
Nautilus - Lujon
Jack Johnson & Hermanos Gutiérrez - Drink the water
Los Mirlos - Llanto en la selva
Gitkin - Alter Ego
Cocanha -Au nòst' casalòt
Cut Capers - Running
ADHD - Síðasta bragð Geira
Moses Hightower - Ráðahagur
WONDERFULSOUND - disque bleu
Jordan Rakei - Problems
Moses Yoofee Trio - Chasing light
Charlie Hunter - Snake Pit
Ronald Langestraat - Then and forever
Damon Albarn - Mr. Tembo
Dana and Alden - Good kid
Gitkin - Call my name
Mukka - So clodse
Foxwarren - Strange ( Dan the automator remix)
Crackazat - Crouching tiger
Helado Tropical - Tocando
Pigeon - 117
Sjana Rut - Burn the matches
Midnight magic - Choreography
Rio Kosta - Follow the river vandelux remix
Crackazat - Set my sun
Daniela Lalita - Tiroteo
Nathy Peluso - Toddo Roto crrdr remix
Scam - Mentally Gone
Calibre - Fire & Water
Spoek Mathambo - I kept the shirt
Inland Shrines - April arp
Ibeyi - Aset
Brian Eno - Regiment
Yussef Dayes Chi ave / a love letter to Salvador
Skrattar feat. Bang Gang - Stressed
Spennandi tónar bergmála um göngugötuna í Mjóddinni. Indírokk, alternative, lo-fi, dreampop og margt annað áhugavert. Verið velkomin í Mjóddina, þar sem hjartað slær.
Umsjón: Björn Þór Björnsson
Allt lokað - en tónlistin ómar samt!
Lagalisti
Juno Paul - Dopeman’s Jurney
Whitney - See You Later, I’m Gone
Media Puzzle - Dead Dog!
Misty Coast - Honey & Cinnamon
Wished Bone - Pat
Houndstooth - New Illusion
Mac DeMarco - Home
Beaming - Slower
Widowspeak - Soft Cover
Carla dal Forno - Going Out
Aldous Harding - Coats
Duff Thompson - Up and Go
Dream Sitch - Deep Seat
Mildred - Green Car
Jeffrey Silverstein, William Tyler - Chet
Plata hverrar viku fyrir sig er kynnt í heild sinni.
Nokkrir meðlimir úr hljómsveitin Flott, Vigdís Hafliðadóttir og Ragnhildur Veigarsdóttir, mæta í Plötu vikunnar ásamt handritshöfundunum og leikurunum Arnóri Björnssyni og Óla Gunnar Gunnarssyni til að kynna tónlistina úr grínþáttaröðinni 20 og eitthvað sem er í sýningu á RÚV. Í stað þess að kaupa inn tónlist sömdu þau öll lögin sjálf og í viðtalinu kemur í ljós hvernig lög og handrit urðu til á sama tíma, hvernig Daði Freyr lenti á einu laginu og af hverju fjárhagsþrengsli urðu að listrænum vali.