Kammermúsíkklúbburinn

Kvartettferðalag: Austurríki til Jamaíka

Flytjendur á þessum tónleikum Kammermúsíkklúbbsins eru sannarlega glæsilegir fulltrúar yngri kynslóðar íslenskra hljóðfæraleikara; fiðluleikararnir Rannveig Marta Sarc og Herdís Mjöll Guðmundsdóttir og sellóleikarinn Geirþrúður Anna Guðmundsdóttir. fjórði í strengjakvartettinum er kóresk-bandaríski víóluleikarinn Brian Hong. Öll eru þau búsett erlendis en komu sérstaklega til landsins til spila fyrir Kammermúsíkklúbbinn á tónleikum sem báru yfirskriftina Kvartettferðalag: Austurríki til Jamaíka og fram fóru í Norðurljósum, Hörpu fyrr á þessu ári.

Á efnisskrá:

- Strengjakvartett í f-moll, op. 20 nr. 5 eftir Josef Haydn.

- Strengjakvartett nr. 2 eftir Eleanor Alberga.

- Strengjakvartett í f-moll, op. 80, nr. 6 eftir Felix Mendelssohn.

Umsjón: Arndís Björk Ásgeirsdóttir.

Birt

24. maí 2026

Aðgengilegt til

Rennur ekki út

Kammermúsíkklúbburinn

Þættir

,