Lokatónar: Mozart, Brahms, Britten og Veronique Vaka
Hljóðritun frá tónleikum Kammermúsíkklúbbsins sem fram fóru 3. maí í Norðurljósum, Hörpu.
Strokkvartettinn Siggi ásamt Emilíu Rós Sigfúsdóttur flautuleikara, óbóleikaranum Juliu Hantschel og píanóleikaranum Mathias Susaas Halvorsen fluttu verk eftir Wolfgang Amadeus Mozart, Veronique Vöku, Benjamin Britten og Johannes Brahms á lokatónleikum 69. starfsárs klúbbsins.
Á efnisskrá:
-Flautukvartett í D-dúr, K. 285 eftir Wolfgang Amadeus Mozart.
-ROF eftir Veronique Vöku - frumflutningur.
-Fantasíukvartett fyrir óbó og strengi eftir Benjamin Britten.
-Píanókvintett í f-moll op. 34 eftir Johannes Brahms.Flytjendur