12:20
Hádegisfréttir
Hádegisfréttir 24. maí 2026

Útvarpsfréttir.

Vonir hafa vaknað um að samkomulag um frið við Persaflóa náist strax í dag og að opnað verði fyrir siglingar um Hormússund. Óvissa er um innihaldið.

Rússar skutu 600 drónum og 90 eldflaugum að Úkraínu í nótt. Meðal eldflauganna var ein sem getur borið kjarnorkusprengjur. Fjórir voru drepnir í árásunum og 60 særðust.

Samningaviðræðum við Icelandair miðar ágætlega, segir formaður atvinnuflugmanna. Hægt þokast hjá flugvirkjum.

Vegfarandi við Hvíta húsið særðist í gær þegar byssumaður gerði þar skotárás. Viðbúnaður var mikill og Bandaríkjaforseti hefur þakkað lögreglu fyrir skjót og góð viðbrögð.

Lokaumferð ensku úrvalsdeildar karla í fótbolta er í dag. Arsenal hefur þegar tryggt sér Englandsmeistaratitilinn en spennan er í baráttunni um Evrópusæti. West Ham eða Tottenham falla niður um deild.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 22 mín.
,