07:03
Morgunútvarpið
Framhjáhald í Danmörku næstum tvöfalt algengara og er skóli í skýjunum lausn við skólaforðun

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Foreldrar barna sem eiga í erfiðleikum með að mæta í skóla hafa bent á að það þurfi fjölbreyttari úrræði og lausnir til þess að hægt sé að koma til móts við ólíka nemendur, stuðla að bættri líðan þeirra og draga úr skólasóknarvanda. Á dögunum var haldið málþing um skólaforðun á vegum Menntafléttunnar. Þar flutti Kristrún Lind Birgisdóttir, skólastjóri Ásgarðsskóla - skóla í skýjunum, áhugaverðan fyrirlestur um að mæta nemendum heima, sem er að hennar mati raunveruleg lausn við skólaforðun. Kristrún var á línunni og sagði okkur frá þessum áhugaverða skóla, þar sem börn hafa öðlast sjálfstraust, námsgleði og félagsleg tengsl – oft í fyrsta sinn í langan tíma.

Tæknihornið var að sjálfsögðu á sínum stað. Guðmundur Jóhannsson mætti eldhress og sagði okkur frá því allra nýjasta.

Að­finnslur Snorra Más­sonar, vara­for­manns Mið­flokksins, um að regn­bogafáninn fái sess í grunnskólum landsins vöktu hörð viðbrögð um helgina. Á samfélagsmiðlum lýsti fjöldi fólks yfir stuðningi við hinsegin fólk og meira að segja flokksfélagar Snorra víða um land höfnuðu málflutningi hans. Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra benti á það hafi verið forgangsmál að banna regnbogafána í skólum í Rússlandi Pútíns, Bandaríkjum Trumps og Ungverjalandi Orbán. Sandra Karen Árnadóttir þekkir það en hún bjó í Ungverjalandi þegar Viktor Orbán „lá hvað mest á hjarta að fjarlægja réttindi hinsegin fólks“, eins og hún orðar það sjálf. Hún upplifði bakslagið bæði á eigin skinni sem nemandi og starfsmaður í skóla og fann hvaða áhrif það hafði á líf hennar og nemenda sinna. Sandra Karen var á línunni.

Listin að blekkja er leynileg glærukenning unnin af samskiptadeild bresku leyniþjónustunnar sem komst í dreifingu árið 2014. Halldóra Mogensen, stofnmeðlimur Samtaka um mannvæna tækni, birti grein á Vísi á dögunum þar sem hún setti kynninguna í samhengi við umræðuna um væntanlega þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna við ESB. Sagði hún ljóst að lýðræðisleg ákvarðanataka verði sífellt berskjaldaðri fyrir þeim sem ná best að virkja ótta, reiði og sjálfsmynd kjósenda. Áhugaverður punktur sem Halldóra ræddi við okkur í Morgunútvarpinu.

Stefnumótaappið Smitten hefur tekið saman gögn frá hundruð þúsundum notenda á Íslandi og á Norðurlöndunum og birt á vefsíðunni smitteninsights.com. Þar má finna skemmtilega innsýn í stefnumótaheiminn og ýmislegt áhugavert kemur fram. T.d. að framhjáhald í Danmörku og Noregi sé næstum tvöfalt algengara en á Íslandi og að yfirgnæfandi meirihluti fólks hafi prófað svokallað „dirty talk“ og að hlutfallið aukist með hækkandi aldri. Ásgeir Vísir og Sverrir Ingi Sigþórsson frá Smitten komu í heimsókn með sjóðandi heit gögn.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 1 klst. 50 mín.
,