Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.
Steinunn Þórðardóttir, formaður Læknafélags Íslands, ræddi um heilbrigðiskerfið og sérstaklega lyf og lyfjaþróun. Á morgun verður haldin ráðstefna um þau efni þar sem hún tekur til máls. Steinunn segir Ísland vera eftirbát annarra ríkja þegar kemur að innleiðingu nýrra lyfja, og að læknar þurfi að eiga við meiri skriffinsku í lyfjamálum en annars staðar.
Björn Malmquist fréttamaður fór yfir stöðu mála eftir kosningarnar í Ungverjalandi, nýafstaðnar kosningar í Búlgaríu og sitthvað fleira í spjalli um Evrópumál. Hann sagði líka frá eistnesku borginni Narva, sem á landamæri að Rússlandi og íbúar þar hafa þurft að taka á móti fjölda blaðamanna undanfarið vegna frétta af áróðri Rússa þar.
Íbúar í höfuðborginni leiða kannski ekki hugann að því á hverjum degi, en náttúra Reykjavíkur er merkileg og fáar borgir geta státað af öðru eins, að mati Sólrúnar Harðardóttur kennara og námsefnishöfundar. Hún heldur úti vef um náttúru Reykjavíkur og er óþreytandi að setja þangað inn upplýsingar og fréttir um allt sem tengist náttúrunni. Sólrún kom á Morgunvaktina.
Tónlist:
Una Stefánsdóttir, Stefán S. Stefánsson - Huldufólk.
Mugison - Sólin er komin.

07:30

08:30

Veðurstofa Íslands.
Dægurflugur og söngvar frá ýmsum tímum.
Umsjón: Jónatan Garðarsson.
Fjöldi laga hafa verið samin við ljóð Halldórs Laxness í gegnum tíðina og eru nokkur þeirra dregin fram í tveimur þáttum. Gunnar Þórðarson samdi lag við ljóðið Bráðum kemur betri tíð, sem kom út á Vísnaplötunni Einu sinni var. Önnur lög sem heyrast í þættinum eru Á þjóðveginum, lag Árna Johnsen, Kveðið eftir vin minn, lag Harðar Torfasonar, Þingvallavegurinn eftir Helga R. Einarsson sem Álafosskórinn syngur, Stóð ég við Öxará, þjóðlag sem Eddukórinn syngur, Hallormsstaðaskógur, sem er í tveim útgáfum, annarsvegar erlent lag og hinsvegar lag eftir Ómar Ragnarsson. Eiríkur Bóasson flytur eigið lag við ljóðið Stríðið, Ragnheiður Gröndal syngur lag Tómasar R. Einarssonar við ljóðið Hjarta mitt, SSSól flytur eigið lag við ljóðið Þú kysstir mína hönd, Sigrún Hjálmtýsdóttir syngur lag Heimis Sindrasonar við ljóðið Þótt form þín hjúpi grafir, Þokkabót syngur um Óla fígúru og Tjarnarkvartettin syngur Vorvísu, lagið er eftir Jón Ásgeirsson. Umsjón: Jónatan Garðarsson.
Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.
netfang: [email protected]
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
Það er mikil tónlistarveisla framundan hjá Karlakór Reykjavíkur sem fagnar 100 ára afmæli í ár. Frá árinu 1926 hefur kraftur og fallegur samhljómur einkennt kórinn og í tilefni afmælisins verður heil tónleikaröð í Langholtskirkju þar sem kynslóðabilið verður brúað með aðstoð vinakóra úr íslenska og færeyska karlakórssamfélaginu og stórvirki gömlu meistarana verða flutt auk léttari sönglaga. Stjórnandi kórsins Friðrik S Kristinsson og formaður kórsins Bóas Valdórsson komu í þáttinn í dag og sögðu okkur betur frá tónleikunum og kórstarfinu.
Við fórum svo í heimsókn á Þjóðskjalasafnið, en þar tók Helga Jóna Eiríksdóttir skjalavörður og sagnfræðingur á móti okkur. En hún deildi með okkur skjölum sem varðveitt hafa verið frá því að Friðrik 8. Danakonungur kom í heimsókn til Íslands árið 1907. Fyrir litla og fámenna þjóð þurfti að lyfta grettistaki, jafnvel mörgum, til þess að geta tekið á móti konungi og fylgdaliði svo sómi væri að. Helga Jóna fór með okkur yfir þessa heimsókn og sýndi okkur heilmargt merkilegt sem varðveist hefur frá henni.
Svo var það lesandi vikunnar sem var í þetta sinn Henning Emil Magnússon prestur í Mosfellsbæ. Hann sagði okkur frá því hvað hann hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Henning talaði um eftirfarandi bækur og höfunda:
Bread of Angels e. Patti Smith
Leðurblakan og perutréð e. Yosa Buson
Missing Person e. Patrick Modiano
Glerþræðirnir e. Magnús Sigurðsson
Dísa Ljósár
Íslandsklukkan
Gísla saga Súrssonar
Gyrðir Elíasson
Tónlist í þættinum á mánudaginn 20.apríl
Sólin er komin / Mugison (Mugison e. Örn Elías Guðmundsson)
Hraustir menn / Karlakór Reykjavíkur (Sigmund Romberg, texti Jakob Jóhannesson)
Allt ljómar / Helgi Björnsson (Helgi Björnsson)
UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.
Útvarpsfréttir.
Ekki er útlit fyrir friðarumleitanir milli Bandaríkjanna og Írans í dag, þótt Bandaríkjaforseti segi samningamenn sína á leiðinni til slíkra viðræðna. Gildandi vopnahlé rennur út á miðvikudag.
Atvinnuvegaráðherra segir fátt nýtt koma fram í umfjöllun Berlingske tidende um íslenskan sjávarútveg. Forstjóri Brims segir blaðagreinina draga upp ranga mynd.
Þúsundir manna deila á spjallþráðum á netinu upptökum af nauðgunum eftir að hafa byrlað mökum sínum ólyfjan. Slík mál koma upp á Íslandi eins og annars staðar, segir teymistýra í Bjarkarhlíð.
Heitavatnslaust er á stóru svæði í Kópavogi, frá Smiðjuvegi að Hamraborg vegna bilunar í brunni. Skrúfað var fyrir stofnæð til að tryggja aðstæður í brunninum og koma viðgerð af stað.
Flóðbylgjur hafa skollið á norðurhluta Japans í morgun eftir jarðskjálfta af stærðinni 7,7 við Kyrrahafsströnd landsins. Engar fregnir hafa borist af tjóni en líkur eru á frekari skjálftum.
Mörg af stærstu málunum sem liggja fyrir þinginu eru skammt á veg komin. Nærri tvö hundruð mál bíða afgreiðslu.
8-liða úrslitum í úrvalsdeilda körfubolta karla lauk í gærkvöld og undanúrslitin hefjast annað kvöld. Undanúrslit kvenna hófust í gærkvöld og halda áfram í kvöld.
Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.
Í þættinum í dag er rætt við Helenu Ósk Ævarsdóttur, móður drengs sem bjó á fósturheimilinu Gauksstöðum í Garði á Suðurnesjum sem unglingur.
Hann hét Daníel Snær Jónasson og bjó á Gauksstöðum þegar hann var 16 til 17 ára gamall á árunum 2013 til 2014.
Helena segir um að afleiðingar af búsetunni á Gauksstöðum fyrir son hennar hafi ekki verið góðar. Hún segir að Daníel hafi orðið fyrir andlegu ofbeldi, verið einangraður og að hann hafi þurft að eiga í samskiptum við hana í gegnum milliliði þar sem farsíminn hafi verið tekinn af honum.
Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
Anna Gyða Sigurgísladóttir ræðir við fólk um einstakar hugmyndir sem mótað hafa skilning okkar á heiminum. Trú, heimspeki og vísindi eru efst á baugi, og kann fortíð og samtíð að vera skeytt saman með hjálp hnýsilegs arkífs ríkisútvarpsins.
Frá siðaskiptum hafa fjórar íslenskar konur gerst kaþólskar nunnur. „Fleiri íslenskar stúlkur íhuguðu klausturlífið en höfðu ekki þá trúarlegu hugsjón eða köllun sem klausturvistin krefst,“ segir í endurminningum Sigurveigar Guðmundsdóttur sem hugsaði um að gerast nunna en hætti við vegna heilsubrests. Í þættinum er sagt frá Steinunni Björnsdóttur (Systur Mary Hildu), Halldóru Marteinsdóttur (Systur Jóhönnu af Krossi), Guðrúnu Unu Sigurveigu Gísladóttur (Systur Stanislaus) og Svanlaugu Guðmundsdóttur (Systur Clementiu yngri).
Ættfræðigrúsk, Guðrún Ósvífursdóttir, Hildur nunna á Hólum í Hjaltadal á 12. öld, ískyggilegar minningargreinar, eftirminnilegt Volkswagen rúgbrauð, rúlluskautar, grallarahegðun og ýmislegt fleira kemur við sögu í fyrri þættinum af tveimur um líf þeirra íslensku kvenna sem hafa gengið í klaustur frá því að kaþólskt trúboð hófst á ný hérlendis.
Rætt er við skyldmenni systur Clementiu yngri. Sigríður (Sirrý) Sigurðardóttir og Zíta Benediktsdóttir eru bræðradætur hennar, rætt er við þær í þætti dagsins ásamt Hilmari Hjartarsyni eiginmanni Sirrýjar. Guðfinna Ragnarsdóttir ættfræðingur segir einnig frá.
Sígild og samtímatónlist frá ýmsum tímum. Íslenskt og erlent í bland.
Tónlistin í þættinum:
Prélude úr La damoiselle élue, L. 62, eftir Claude Debussy. Víkingur Heiðar Ólafsson leikur á píanó. Útgefið á plötunni Debussy Rameau (2020).
Veröld fláa sýnir sig - íslenskt þjóðlag í útsetningu eftir Hafliða Hallgrímsson sem hann gerði fyrir kórinn árið 1988. VIlhjálmur Hulter samdi textann.
Hamrahlíðarkórinn syngur, Þorgerður Ingólfsdóttir stjórnar. Upptaka fór fram í Háteigskirkju í Reykjavík 22. og 23. júlí 2019 og 9. og 11. mars 2020.
Nú máttu hægt, lag eftir Heinrich Pfeil, ljóðið orti Þorsteinn Erlingsson. Karlakórinn Þrestir syngur. Stjórnandi: Jón Ísleifsson. Hljóðritað 21. apríl 1947. Afritað í janúar 2009, hljóðhreinsað í mars 2021 af Hreini Valdimarssyni. Lakkplata 80019: hljóðrituð 21. apríl 1947.
Quatuor en sol majeur op. 33 nr.5, Hob. III : 41 eftir Franz Joseph Haydn. Quatour Mosaïque leikur.
Verkið er í fjórum þáttum:
1. Vivace assai
2. Largo e cantabile
3. Allegro (scherzo)
4. Allegretto (final)
Útgefið á plötunni: Quatuors op.33 (1997).
I. Adagio sostenuto - Presto, Sonata nr. 9 in A major op. 47 "Kreutzer" eftir Ludwig van Beethoven. Flytjendur eru Isabelle Faust sem leikur á fiðlu og Alexander Melnikov píanóleikari. Útgefið á plötunni: Complete sonatas for piano and violin (2009).
Arabeske in C major op. 18 eftir Robert Schumann. Emil Gilels leikur einleik á píanó. Hljóðritað 13. mars 1965.
Tilbrigði 8 a 2 Clav. úr Goldbergtilbrigðunum eftir Johann Sebastian Bach. Útsett af kammerhópnum Nevermind sem leikur. Hópurinn er svo skipaður: Anna Besson, þverflauta; Louis Creac'H, fiðla; Robin Pharo, gamba (viola da gamba); Jean Rondeau, semall, orgel. Upptaka fór fram í ágúst 2024 í Salle de Musique de La Chaux-de-Fonds.
Þáttur um bókmenntir, bæði hér heima og úti í heimi. Hlustendum er fylgt í gegnum lestur athyglisverðra bókmenntaverka og rætt við höfunda, útgefendur og fræðimenn um stefnur, strauma, tákn og tilvísanir.
Umsjón: Jóhannes Ólafsson.
Pólskar bókmenntir á 20. öld eru í brennidepli í þættinum. Út er komin þýðing á ljóðum Papúszu, pólsku rómaskáldi sem nú er komin út í fyrsta sinn á íslensku í smáritaröð Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur. Maó Alheimsdóttir þýðir ljóðin og Sofiya Zahova skrifar ítarlega um ævi og verk Papúshu, sem er reyndar skáldanafn Bronislawa Wajs, og Sofiya staðsetur kveðskap hennar í samhengi við menningu rómafólks, sögu Póllands og heimsbókmenntir.
Svo hef ég verið að lesa aðrar pólskar bókmenntir sem hafa ekki verið þýddar á íslensku. Í dag segi ég frá bók frá 1928 eftir Bruno Jasienski sem heitir Ég brenni París, óbeisluð frásögn sem gerði allt vitlaust á sínum tíma ekkert síður en núna. Jasienski var sakaður um að boða niðurrif og glundroða og gerður brottrækur frá París í kjölfarið. Hann fór til Sovétríkjanna og var tekið vel á móti honum þar en innan við áratug síðar var hann drepinn í hreinsununum miklu í lok 4. áratugar.
Viðmælendur: Maó Alheimsdóttir, Sofiya Zahova og Kári Páll Óskarsson.
Umsjón: Jóhannes Ólafsson.
Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.
Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.
Í þætti dagsins ræðum við við Birgittu Björgu Guðmarsdóttur, rithöfund, um erindi sem hún flutti á aldarafmælismálþingi um rithöfundinn Indriða G. Þorsteinsson, þar sem hún greindi persónu Gógóar í skáldsögunni 79 af stöðinni sem tálkvenndi. Birgitti heimsækir þáttinn og skýrir frá greiningunni.
Haukur Þorgeirsson, málfræðingur, heldur áfram með sína vikulegu pistla um íslenska ljóðlist fyrri alda. Í dag segir hann frá refhvörfum og listrænni togstreitu í heimi síðustu hirðskáldanna.
Magnea Guðmundsdóttir, arkitekt, veltir fyrir sér staðaranda og steinsteypu í pistli sínum og þeim úrelta hugsunarhætti að rífa byggingu eftir að notkun hennar er hætt.
Popp og pólitík
Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.
Í nokkrar vikur hefur Lóa verið að ræða við fólk um ástina og ástarleit á stafrænum tímum, í innslögunum ástin á tímum Tinder. En hver voru lögmál ástarinnar í kringum aldarmótin 1900. Sigriður Kristín Þorgrímsdóttir sagnfræðingur, skrifaði bókina Piparmeyjar - Fröken Thora og saga einhleypra kvenna á Íslandi sem er að miklu leiti byggð á bréfaskriftum Thoru Friðriksson (1866 – 1958) til systur sinnar. Systirin Ida var gift og átti börn en Thora var yngsta systirin og hafði það hlutverk að annast aldraða foreldra sína, sem var algengt hlutskipti yngstu systra. Hennar draumar og þrár urðu að víkja fyrir hag stórfjölskyldunnar. Sigríður er gestur í 8. þætti af Ástinni á tímum Tinder, sem við gætum nú kallað Ástin fyrir tíma Tinder.
Svo pælum við í tónlist og tímanum. Bjarni Daníel færir okkur innslag þar sem um eitt þekktasta lag bandaríska trompetleikarans og djassöngvarans Chet Baker og hvernig það hefur haft mótandi áhrif hann á þremur ólíkum augnablikum á ævinni.
Og svo rifjum við upp goðsagnakennda tónleika Chets Baker í Reykjavík árið 1985. Við heyrum brot úr gömlum þætti eftir Vernharð Linnet þar sem hann ræðir við einn skipuleggjanda tónleikanna, Jónatan Garðarsson, og hljóðfæraleikarana þrjá sem léku með Baker: Kristján Magnússon, Svein Óla Jónsson og Tómas R. Einarsson.
Fréttir
Fréttir
Mikil óvissa er um friðarviðræður Bandaríkjanna og Íran sem fara áttu fram í Islamabad í Pakistan í dag. Samkvæmt heimildum fréttastofu AP er varaforseti Bandaríkjanna, sem átti að leiða viðræðurnar, enn í Washington.
Allt tiltækt slökkvilið var kallað út þegar eldur kviknaði í kjallaraíbúð fjölbýlishúss í Snælandshverfi í Kópavogi síðdegis í dag. Einn var fluttur á sjúkrahús.
Forsætisráðherra segir allt tal um að aðildarviðræður snúist um aðlögun að regluverki Evrópusambandsins þvælu og kallar eftir dæmum um slíka aðlögun frá fyrri aðildarviðræðum.
Nýjar strand-ratsjár Landhelgisgæslunnar, sem teknar verða í notkun í sumar, stórauka getuna til að fylgjast með umferð í hafi í kringum landið, einkum þeim sem reyna að leynast, segir yfirmaður greiningardeildar Ríkislögreglustjóra.
Upplýsingar um 45 börn sem flutt voru með valdi frá hernumdum svæðum í Úkraínu fundust í samræmdu rannsóknarátaki á vegum Europol í Hollandi í liðinni viku.
Umsjón: Ásta Hlín Magnúsdóttir
Tæknimaður: Mark Eldred
Stjórn útsendingar: Nanna Guðrún Sigurðardóttir
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Hvað eiga smyglarar og skuggaflotinn sameiginlegt? Að vilja ekki sjást, til dæmis á ratsjám, og að vera meðal þess sem nýjum tæknibúnaði Landhelgisgæslunnar verður beint gegn. Í sumar verða teknar í notkun fjórar ratsjár sem verða á völdum stöðum þar sem fylgjast á betur með skipaumferð í kringum landið. Ingólfur Bjarni Sigfússon ræðir við Finnboga Jónasson, yfirmann greiningardeildar ríkislögreglustjóra.
Miklar breytingar hafa orðið á verkefni því sem snýr að uppbyggingu stórskipahafnar og iðnaðar við Finnafjörð á Langanesi. Sveitarfélögin Langanesbyggð og Vopnafjarðarhreppur hafa frá árinu 2008 unnið að því að skapa þar tækifæri til atvinnu. Enn er unnið að uppbyggingu við Finnafjörð, eins og Björn S. Lárusson sveitarstjóri Langanesbyggðar rekur í samtali við Ágúst Ólafsson.
Öfugt við flest önnur Evrópuríki, sem leggja áherslu á að hindra för ólöglegra innflytjenda inn í landið og koma þeim sem þar eru úr landi, hyggjast Spánverjar veita rúmlega hálfri milljón innflytjenda sem þar eru án tilskilinna leyfa dvalar- og atvinnuleyfi til eins árs. Þetta er allt í senn skynsamlegt, gagnlegt og siðferðislega rétt, segir forsætisráðherrann. Ævar Örn Jósepsson segir frá.
Umsjón: Ævar Örn Jósepsson
Tæknimaður: Mark Eldred

frá Veðurstofu Íslands
Tónhjólið snýst og snýst og upp koma sögur af tónlist, nýrri og gamalli. Ólíkar stefnur og straumar skjóta upp kolli og líka hljóðfæri, hugtök og túlkunarmöguleikar. Hugað verður að einhverju því sem hæst ber á tónlistarsviðinu í heimi sígildrar tónlistar og djasstónlistar á hverjum tíma.
Tónhjólið hverfist að þessu sinni um nýleg tónverk sem samin hafa verið við ljóð íslenskra, og norrænna, stórskálda. Leiknar eru hljóðritanir frá tónleikum KIMA á tónlistarhátíðinni Seiglu þann 10. ágúst síðastliðinn, til heiðurs Thor Vilhjálmssyni, en auk þess leikið af tveimur nýlegum geislaplötum sem innihalda nýja íslenska ljóðasöngsflokka, plötu sópransöngkonunnar Hallveigar Rúnarsdóttur og danska píanistans Ulrich Stærk, Songs of longing and love, og Ó eilífi foss sem rambar á fossvegum guðs, plötu með tónverki Kolbeins Bjarnasonar við ljóð Steinunnar Sigurðardóttur.
Anna Gyða Sigurgísladóttir ræðir við fólk um einstakar hugmyndir sem mótað hafa skilning okkar á heiminum. Trú, heimspeki og vísindi eru efst á baugi, og kann fortíð og samtíð að vera skeytt saman með hjálp hnýsilegs arkífs ríkisútvarpsins.
Frá siðaskiptum hafa fjórar íslenskar konur gerst kaþólskar nunnur. „Fleiri íslenskar stúlkur íhuguðu klausturlífið en höfðu ekki þá trúarlegu hugsjón eða köllun sem klausturvistin krefst,“ segir í endurminningum Sigurveigar Guðmundsdóttur sem hugsaði um að gerast nunna en hætti við vegna heilsubrests. Í þættinum er sagt frá Steinunni Björnsdóttur (Systur Mary Hildu), Halldóru Marteinsdóttur (Systur Jóhönnu af Krossi), Guðrúnu Unu Sigurveigu Gísladóttur (Systur Stanislaus) og Svanlaugu Guðmundsdóttur (Systur Clementiu yngri).
Ættfræðigrúsk, Guðrún Ósvífursdóttir, Hildur nunna á Hólum í Hjaltadal á 12. öld, ískyggilegar minningargreinar, eftirminnilegt Volkswagen rúgbrauð, rúlluskautar, grallarahegðun og ýmislegt fleira kemur við sögu í fyrri þættinum af tveimur um líf þeirra íslensku kvenna sem hafa gengið í klaustur frá því að kaþólskt trúboð hófst á ný hérlendis.
Rætt er við skyldmenni systur Clementiu yngri. Sigríður (Sirrý) Sigurðardóttir og Zíta Benediktsdóttir eru bræðradætur hennar, rætt er við þær í þætti dagsins ásamt Hilmari Hjartarsyni eiginmanni Sirrýjar. Guðfinna Ragnarsdóttir ættfræðingur segir einnig frá.
Ævisaga Árna prófasts Þórarinssonar. Þórbergur Þórðarson skráði. Pétur Pétursson les í hljóðritun frá 1988
Ævisaga Árna prófasts Þórarinssonar. Fagurt mannlíf. Þórbergur Þórðarson skráði. Pétur Pétursson byrjar lesturinn.
Þátturinn var fyrst á dagskrá 25. mars 1988.

frá Veðurstofu Íslands
Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.
netfang: [email protected]
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
Það er mikil tónlistarveisla framundan hjá Karlakór Reykjavíkur sem fagnar 100 ára afmæli í ár. Frá árinu 1926 hefur kraftur og fallegur samhljómur einkennt kórinn og í tilefni afmælisins verður heil tónleikaröð í Langholtskirkju þar sem kynslóðabilið verður brúað með aðstoð vinakóra úr íslenska og færeyska karlakórssamfélaginu og stórvirki gömlu meistarana verða flutt auk léttari sönglaga. Stjórnandi kórsins Friðrik S Kristinsson og formaður kórsins Bóas Valdórsson komu í þáttinn í dag og sögðu okkur betur frá tónleikunum og kórstarfinu.
Við fórum svo í heimsókn á Þjóðskjalasafnið, en þar tók Helga Jóna Eiríksdóttir skjalavörður og sagnfræðingur á móti okkur. En hún deildi með okkur skjölum sem varðveitt hafa verið frá því að Friðrik 8. Danakonungur kom í heimsókn til Íslands árið 1907. Fyrir litla og fámenna þjóð þurfti að lyfta grettistaki, jafnvel mörgum, til þess að geta tekið á móti konungi og fylgdaliði svo sómi væri að. Helga Jóna fór með okkur yfir þessa heimsókn og sýndi okkur heilmargt merkilegt sem varðveist hefur frá henni.
Svo var það lesandi vikunnar sem var í þetta sinn Henning Emil Magnússon prestur í Mosfellsbæ. Hann sagði okkur frá því hvað hann hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Henning talaði um eftirfarandi bækur og höfunda:
Bread of Angels e. Patti Smith
Leðurblakan og perutréð e. Yosa Buson
Missing Person e. Patrick Modiano
Glerþræðirnir e. Magnús Sigurðsson
Dísa Ljósár
Íslandsklukkan
Gísla saga Súrssonar
Gyrðir Elíasson
Tónlist í þættinum á mánudaginn 20.apríl
Sólin er komin / Mugison (Mugison e. Örn Elías Guðmundsson)
Hraustir menn / Karlakór Reykjavíkur (Sigmund Romberg, texti Jakob Jóhannesson)
Allt ljómar / Helgi Björnsson (Helgi Björnsson)
UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Popp og pólitík
Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.
Í nokkrar vikur hefur Lóa verið að ræða við fólk um ástina og ástarleit á stafrænum tímum, í innslögunum ástin á tímum Tinder. En hver voru lögmál ástarinnar í kringum aldarmótin 1900. Sigriður Kristín Þorgrímsdóttir sagnfræðingur, skrifaði bókina Piparmeyjar - Fröken Thora og saga einhleypra kvenna á Íslandi sem er að miklu leiti byggð á bréfaskriftum Thoru Friðriksson (1866 – 1958) til systur sinnar. Systirin Ida var gift og átti börn en Thora var yngsta systirin og hafði það hlutverk að annast aldraða foreldra sína, sem var algengt hlutskipti yngstu systra. Hennar draumar og þrár urðu að víkja fyrir hag stórfjölskyldunnar. Sigríður er gestur í 8. þætti af Ástinni á tímum Tinder, sem við gætum nú kallað Ástin fyrir tíma Tinder.
Svo pælum við í tónlist og tímanum. Bjarni Daníel færir okkur innslag þar sem um eitt þekktasta lag bandaríska trompetleikarans og djassöngvarans Chet Baker og hvernig það hefur haft mótandi áhrif hann á þremur ólíkum augnablikum á ævinni.
Og svo rifjum við upp goðsagnakennda tónleika Chets Baker í Reykjavík árið 1985. Við heyrum brot úr gömlum þætti eftir Vernharð Linnet þar sem hann ræðir við einn skipuleggjanda tónleikanna, Jónatan Garðarsson, og hljóðfæraleikarana þrjá sem léku með Baker: Kristján Magnússon, Svein Óla Jónsson og Tómas R. Einarsson.

Útvarpsfréttir.
Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.
Foreldrar barna sem eiga í erfiðleikum með að mæta í skóla hafa bent á að það þurfi fjölbreyttari úrræði og lausnir til þess að hægt sé að koma til móts við ólíka nemendur, stuðla að bættri líðan þeirra og draga úr skólasóknarvanda. Á dögunum var haldið málþing um skólaforðun á vegum Menntafléttunnar. Þar flutti Kristrún Lind Birgisdóttir, skólastjóri Ásgarðsskóla - skóla í skýjunum, áhugaverðan fyrirlestur um að mæta nemendum heima, sem er að hennar mati raunveruleg lausn við skólaforðun. Kristrún var á línunni og sagði okkur frá þessum áhugaverða skóla, þar sem börn hafa öðlast sjálfstraust, námsgleði og félagsleg tengsl – oft í fyrsta sinn í langan tíma.
Tæknihornið var að sjálfsögðu á sínum stað. Guðmundur Jóhannsson mætti eldhress og sagði okkur frá því allra nýjasta.
Aðfinnslur Snorra Mássonar, varaformanns Miðflokksins, um að regnbogafáninn fái sess í grunnskólum landsins vöktu hörð viðbrögð um helgina. Á samfélagsmiðlum lýsti fjöldi fólks yfir stuðningi við hinsegin fólk og meira að segja flokksfélagar Snorra víða um land höfnuðu málflutningi hans. Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra benti á það hafi verið forgangsmál að banna regnbogafána í skólum í Rússlandi Pútíns, Bandaríkjum Trumps og Ungverjalandi Orbán. Sandra Karen Árnadóttir þekkir það en hún bjó í Ungverjalandi þegar Viktor Orbán „lá hvað mest á hjarta að fjarlægja réttindi hinsegin fólks“, eins og hún orðar það sjálf. Hún upplifði bakslagið bæði á eigin skinni sem nemandi og starfsmaður í skóla og fann hvaða áhrif það hafði á líf hennar og nemenda sinna. Sandra Karen var á línunni.
Listin að blekkja er leynileg glærukenning unnin af samskiptadeild bresku leyniþjónustunnar sem komst í dreifingu árið 2014. Halldóra Mogensen, stofnmeðlimur Samtaka um mannvæna tækni, birti grein á Vísi á dögunum þar sem hún setti kynninguna í samhengi við umræðuna um væntanlega þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna við ESB. Sagði hún ljóst að lýðræðisleg ákvarðanataka verði sífellt berskjaldaðri fyrir þeim sem ná best að virkja ótta, reiði og sjálfsmynd kjósenda. Áhugaverður punktur sem Halldóra ræddi við okkur í Morgunútvarpinu.
Stefnumótaappið Smitten hefur tekið saman gögn frá hundruð þúsundum notenda á Íslandi og á Norðurlöndunum og birt á vefsíðunni smitteninsights.com. Þar má finna skemmtilega innsýn í stefnumótaheiminn og ýmislegt áhugavert kemur fram. T.d. að framhjáhald í Danmörku og Noregi sé næstum tvöfalt algengara en á Íslandi og að yfirgnæfandi meirihluti fólks hafi prófað svokallað „dirty talk“ og að hlutfallið aukist með hækkandi aldri. Ásgeir Vísir og Sverrir Ingi Sigþórsson frá Smitten komu í heimsókn með sjóðandi heit gögn.

07:30

08:30
Létt spjall og lögin við vinnuna.
Flutt var nýjasta lagið frá Madonna, The Strokes orðnir pólitískir, Herra Hnetusmjör með nýja plötu, Creed sigling og Pétur Ben kom í heimsókn.
Lagalisti þáttarins:
BUBBI MORTHENS – Afkvæmi Hugsana Minna
BILLY JOEL – We didn't start the fire
MADONNA – Vogue
ELLE KING – Ex's And Oh's
BOBBY MCFERRIN – Don't Worry, Be Happy
CREATURE OF HABIT – Myrká
RED HOT CHILI PEPPERS – Road Trippin'
MOSES HIGHTOWER – Ráðahagur
THE HUES CORPORATION – Rock the boat
DEEE-LITE – Groove is in the heart
TALK TALK – Life's What You Make It
GUÐMUNDUR PÁLSSON, MEMFÍSMAFÍAN – Ég skal syngja fyrir þig ásamt Guðmundi Pálssyni
GEORGE MICHAEL – Faith
CREED – Higher
KINGS OF LEON – To Space
VIOLENT FEMMES – Blister in the sun
ÁRÝ MARGRÉT – Hakk og spaghettí
ADELE – Cold Shoulder
MT JONES – I Don't Understand
HARRY STYLES – American Girls
PAUL McCARTNEY & WINGS – Maybe I'm Amazed
JOE FRAZIER, HERRA HNETUSMJÖR – Ól mig upp
BLUR – The Narcissist
KK – Lífið er
OLIVIA DEAN – So Easy (To Fall In Love)
NÝDÖNSK – Horfðu Til Himins
DAVID BOWIE – Space Oddity
TINA DICO, EMILÍANA TORRINI, PÉTUR BEN, HELGI HRAFN JÓNSSON – Pink cream
KRUMMI – Smile till it ends
NOAH KAHAN – The Great Divide
THE STROKES – Is This It
SUPERSERIOUS – Island full of deadbeats (..OR SOMETHING)
U2 & GREEN DAY – The Saints Are Coming
KINGFISHR – The Blade
DILJÁ PÉTURSDÓTTIR, HREIMUR – Svona var lífið
ADDISON RAE – Headphones On
BOARDS OF CANADA – Roygbiv

Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.
Útvarpsfréttir.
Ekki er útlit fyrir friðarumleitanir milli Bandaríkjanna og Írans í dag, þótt Bandaríkjaforseti segi samningamenn sína á leiðinni til slíkra viðræðna. Gildandi vopnahlé rennur út á miðvikudag.
Atvinnuvegaráðherra segir fátt nýtt koma fram í umfjöllun Berlingske tidende um íslenskan sjávarútveg. Forstjóri Brims segir blaðagreinina draga upp ranga mynd.
Þúsundir manna deila á spjallþráðum á netinu upptökum af nauðgunum eftir að hafa byrlað mökum sínum ólyfjan. Slík mál koma upp á Íslandi eins og annars staðar, segir teymistýra í Bjarkarhlíð.
Heitavatnslaust er á stóru svæði í Kópavogi, frá Smiðjuvegi að Hamraborg vegna bilunar í brunni. Skrúfað var fyrir stofnæð til að tryggja aðstæður í brunninum og koma viðgerð af stað.
Flóðbylgjur hafa skollið á norðurhluta Japans í morgun eftir jarðskjálfta af stærðinni 7,7 við Kyrrahafsströnd landsins. Engar fregnir hafa borist af tjóni en líkur eru á frekari skjálftum.
Mörg af stærstu málunum sem liggja fyrir þinginu eru skammt á veg komin. Nærri tvö hundruð mál bíða afgreiðslu.
8-liða úrslitum í úrvalsdeilda körfubolta karla lauk í gærkvöld og undanúrslitin hefjast annað kvöld. Undanúrslit kvenna hófust í gærkvöld og halda áfram í kvöld.

Poppland er vinur í raun og land án landamæra. Poppland er einn elsti og dáðasti tónlistarþáttur landsins. Umsjón: Lovísa Rut Kristjánsdóttir.
Lovísa stóð vaktina í Popplandi þennan sólríka mánudag. Plata vikunnar kynnt til leiks; Tónlist til að sigra við með Herra Hnetusmjöri.
MUGISON - Sólin Er Komin.
SISTER NANCY - Bam Bam.
Helgi Björnsson - Allt ljómar.
Rosalia - Reliquia.
KATA - Faded moments.
HALL & OATES - I Can't Go For That (No Can Do).
ELECTRIC LIGHT ORCHESTRA - Last Train To London.
Bubbi Morthens - Hún.
KHRUANGBIN - Texas Sun.
Ragnheiður Gröndal - Má ég?.
VALDIMAR - Karlsvagninn.
Birnir, Herra Hnetusmjör - 24 trommur.
Lauryn Hill - Doo wop (that thing).
Joe Frazier - Ég mynd líka hata mig.
Nightmares on Wax - Bang Bien (bonus track).
Herra Hnetusmjör - Ég mynd líka hata mig.
Yasiin Bey - Bang Bien (bonus track).
Jungle - Heavy, California.
Miley Cyrus - Flowers.
Lykke Li - Lucky Again.
Carpenter, Sabrina - Taste.
Moses Hightower - Ráðahagur.
QUARASHI - Stars.
Creature of Habit - Myrká.
Laufey - Tough Luck.
RAZORLIGHT - America.
Warmland - All for All.
Flott - Tuttugu og eitthvað.
SUGARCUBES - Hit.
KYLIE MINOGUE - Slow.
Ivar Klausen - Dreamer.
STEELY DAN - Dirty Work.
Haim hljómsveit - Relationships.
Sycamore tree - Better call off the search for my soul.
BASTILLE - Pompeii.
Joy, Vance - Fascination in the Dark.
Þormóður Eiríksson, Maron Birnir Reynisson, Alaska1867 - Stoppa tímann.
Friðrik Dór Jónsson, Moses Hightower - Bekkjarmót og jarðarfarir.
Emilíana Torrini, Greiningardeildin, Bogomil Font - Þú stendur alltaf með mér.
Styles, Harry - American Girls.
Death Cab for Cutie - Riptides.
sombr - 12 to 12.
JOAN JETT - I Love Rock'n'roll.
Frýs - Roll over.
KUSK - Sommar.
Eilish, Billie - Birds of a Feather.
Kanye West - Ultralight Beam.
Herra Hnetusmjör - Skutla/sækja (Interlude).
Birnir, Herra Hnetusmjör - 24 trommur.
Elvar - Miklu betri einn.
1860 - Íðilfagur.
KK - Lífið er.
Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir, Hólmfríður María Ragnhildardóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.
Við höldum áfram að fjalla um háan ferðakostnað sem foreldrar og íþróttafélög á landsbyggðinni þurfa að standa straum af en margar fjölskyldur greiða mörg hundruð þúsund á ári vegna ferðalaga barna í tengslum við leiki og mót. Þetta er auðvitað mjög íþyngjandi kostnaður og alls ekki á færi allra að taka þátt! Heiðrún Tryggvadóttir formaður barna-og unglingaráðs körfuknattleiksdeildar Vestra, var á línunni.
Heitavatnslaust varð á stórum hluta Kópavogs í morgun og samkvæmt upplýsingum frá Veitum er verið að lagfæra bilunina sem varð Silja Ingólfsdóttir er upplýsingafulltrúi Veitna, við heyrðum í henni.
Við ætlum að heyra um áhugaverða nýjung í umönnun aldraðra, svokölluð „símalaus heimili“ á Hrafnistu, þar sem áhersla er lögð á nærveru og bætt mannleg samskipti. Innleiðingu verkefnisins fór fram í byrjun árs og jákvæð áhrif eru þegar farin að koma í ljós, þær Gunnur Helgadóttir framkvæmdastjóri á heilbrigðissviði Hrafnistuheimilanna og Jakobína Hólmfríður Árnadóttir mannauðsstjóri komu til okkar.
Heimsmarkaðurinn fyrir endurnýjaðan tölvubúnað er í miklum vexti. Það er víst algengur misskilningur að endurnýjaður búnaður sé gamaldags eða lúinn. Sparnaður við að velja endurnýjaðan búnað sé að jafnaði 40-60% miðað við nýjan búnað. Trausti Eiríksson vörustjóri HP hjá O.K. sagði okkur frá.
Frá og með næsta hausti verður boðið upp á nýja námsleið hjá Landbúnaðarháskóla Íslands en um er að ræða diplómanám í búvísindum með sérstaka áherslu á dýraheilbrigði, þar sem nemendur geta nú tekið fyrstu skrefin hér heima áður en þeir halda mögulega áfram í dýralæknisfræði erlendis. Þetta opnar ný tækifæri fyrir þau sem vilja mennta sig á þessu sviði án þess að flytja strax úr landi. Við fengum til okkar gesti sem þekkja verkefnið vel, þær Báru Eyfjörð Heimisdóttur formaður stjórnar Dýralæknafélags Íslands og Auði Lilju Arnþórsdóttur en hún er verkefnisstjóri námsins.
Hljómsveitakeppnin Wacken Metal Battle verður haldin á laugardaginn. Í ár keppa sjö sveitir í úrslitum og mun fjölskipuð alþjóðleg dómnefnd ásamt áhorfendum velja eina af þeim til þess að spila fyrir Íslands hönd á stærstu þungarokkshátíð heims Wacken Open Air í sumar. Þar spilar hún fyrir mörg þúsund manns. Þorsteinn Kolbeinsson veit allt um málið hann kom til okkar.
Fréttir
Fréttir
Mikil óvissa er um friðarviðræður Bandaríkjanna og Íran sem fara áttu fram í Islamabad í Pakistan í dag. Samkvæmt heimildum fréttastofu AP er varaforseti Bandaríkjanna, sem átti að leiða viðræðurnar, enn í Washington.
Allt tiltækt slökkvilið var kallað út þegar eldur kviknaði í kjallaraíbúð fjölbýlishúss í Snælandshverfi í Kópavogi síðdegis í dag. Einn var fluttur á sjúkrahús.
Forsætisráðherra segir allt tal um að aðildarviðræður snúist um aðlögun að regluverki Evrópusambandsins þvælu og kallar eftir dæmum um slíka aðlögun frá fyrri aðildarviðræðum.
Nýjar strand-ratsjár Landhelgisgæslunnar, sem teknar verða í notkun í sumar, stórauka getuna til að fylgjast með umferð í hafi í kringum landið, einkum þeim sem reyna að leynast, segir yfirmaður greiningardeildar Ríkislögreglustjóra.
Upplýsingar um 45 börn sem flutt voru með valdi frá hernumdum svæðum í Úkraínu fundust í samræmdu rannsóknarátaki á vegum Europol í Hollandi í liðinni viku.
Umsjón: Ásta Hlín Magnúsdóttir
Tæknimaður: Mark Eldred
Stjórn útsendingar: Nanna Guðrún Sigurðardóttir
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Hvað eiga smyglarar og skuggaflotinn sameiginlegt? Að vilja ekki sjást, til dæmis á ratsjám, og að vera meðal þess sem nýjum tæknibúnaði Landhelgisgæslunnar verður beint gegn. Í sumar verða teknar í notkun fjórar ratsjár sem verða á völdum stöðum þar sem fylgjast á betur með skipaumferð í kringum landið. Ingólfur Bjarni Sigfússon ræðir við Finnboga Jónasson, yfirmann greiningardeildar ríkislögreglustjóra.
Miklar breytingar hafa orðið á verkefni því sem snýr að uppbyggingu stórskipahafnar og iðnaðar við Finnafjörð á Langanesi. Sveitarfélögin Langanesbyggð og Vopnafjarðarhreppur hafa frá árinu 2008 unnið að því að skapa þar tækifæri til atvinnu. Enn er unnið að uppbyggingu við Finnafjörð, eins og Björn S. Lárusson sveitarstjóri Langanesbyggðar rekur í samtali við Ágúst Ólafsson.
Öfugt við flest önnur Evrópuríki, sem leggja áherslu á að hindra för ólöglegra innflytjenda inn í landið og koma þeim sem þar eru úr landi, hyggjast Spánverjar veita rúmlega hálfri milljón innflytjenda sem þar eru án tilskilinna leyfa dvalar- og atvinnuleyfi til eins árs. Þetta er allt í senn skynsamlegt, gagnlegt og siðferðislega rétt, segir forsætisráðherrann. Ævar Örn Jósepsson segir frá.
Umsjón: Ævar Örn Jósepsson
Tæknimaður: Mark Eldred

Fréttastofa RÚV.
Á Kvöldvaktinni heyrir þú nýjustu slagarana og útgáfurnar frá upprennandi og uppáhalds tónlistarfólki þínu í fjölbreyttum kokteil af tónlist, tungum, straumum og stefnum sem þykja endurspegla tíðaranda dagsins í dag. Umsjónarmenn: Þorsteinn Hreggviðsson og Daníel Jón Baróns Jónsson.
Lagalistinn
Creature of Habit - Myrká.
THE CARDIGANS - You're The Storm.
Kacey Musgraves - Dry Spell.
GOO GOO DOLLS - Iris.
Edgehill - Doubletake.
THE XX - Crystalised.
Moses Hightower - Ráðahagur.
Aron Can - Poppstirni.
Birnir - Alveg farinn.
Mitski - I'll Change for You.
Superserious - Island full of deadbeats (..OR SOMETHING).
SMITHS - Shoplifters of the world unite.
CMAT - The Jamie Oliver Petrol Station
Royel Otis - Sweet Hallelujah.
Strokes - Going Shopping.
Blondie - Hanging On The Telephone.
Lambrini Girls - Cult of Celebrity.
Grohl, Violet - Thum.
Jungle - Carry On.
Styles, Harry - American Girls.
Kneecap, Casiokids - FENIAN
Fatboy Slim - Sunset (Bird Of Prey)
Disclosure - The Sun Comes Up Tremendous.
ANOTR, 54 Ultra - Talk To You.
JOSH WINK - Higher State Of Consciousness (remix).
Birnir, GusGus - Walk away.
Jack White - G.O.D. And The Broken Ribs.
VIOLENT FEMMES - Crazy (Gnarls Barkley kover).
Teddy Swims - Mr. Know It All.
Kingfishr - The Blade.
Dermot Kennedy - Turnstile.
Big Audio Dynamite - E=MC2.
U2 - Songs Of The Future.
Billie Eilish - Chihiro.
Arlo Parks - Get Go.
Addison Rae - Headphones On.
Nia Archives - Danger
Kyrr - Erjur
Depeche Mode - Cover Me
Soulwax - Perfect We Are Not
Lady Gaga, Doechi - Runway
Plata hverrar viku fyrir sig er kynnt í heild sinni.
Herra Hnetusmjör mætir til Atla í Plötu vikunnar til að kynna nýjustu breiðskífu sína, Tónlist til að sigra við. Í einlægu viðtali fer Árni Páll yfir ferilinn síðustu sjö ár, frá því að hafa ætlað að tryggja framtíðina með rekstri skemmtistaða og verslana, yfir í þá ákvörðun að helga sig tónlistinni alfarið. Við ræðum hvernig „IceGuys galsinn“ vatt upp á sig, hvernig það er að selja upp Eldborg á tveimur mínútum og af hverju þessi plata er virkar eins og tímahylki fyrir listamanninn í dag. Svo hlustum við auðvitað á plötuna sjálfa ásamt kynningum.
Gjallarhorn fyrir nýjar raddir, nýstárlegar hugmyndir, óhljóð og tónlist sem þú hefur aldrei heyrt. Í Ólátagarði á íslensk grasrótartónlist griðarstað.
Umsjón: Einar Karl Pétursson og Björk Magnúsdóttir.
RVK Noise Fest er tónlistarhátíð haldin í R6013 sem fagnar hvers kyns óhljóðatónlist. Þórir Georg, stofnandi hátíðarinnar segir frá henni í þættinum en ásamt því eru spilaðar upptökur frá tónleikunum sjálfum.
Lagalisti:
Andrés Þór Þorvarðarson - Ólátagarður
OBC - (upptaka frá RVK Noise Fest í R6013, 18.04.2026)
DESPAIR\\DECAY - (upptaka frá RVK Noise Fest í R6013, 18.04.2026)
SKJÁLFTI - (upptaka frá RVK Noise Fest í R6013, 18.04.2026)
BRIDE - (upptaka frá RVK Noise Fest í R6013, 18.04.2026)
AMFJ - (upptaka frá RVK Noise Fest í R6013, 18.04.2026)
HROTUR - (upptaka frá RVK Noise Fest í R6013, 19.04.2026)
WÜÜNDERBAR HOLOKAUST - (upptaka frá RVK Noise Fest í R6013, 19.04.2026)
MASAYA OZAKI - (upptaka frá RVK Noise Fest í R6013, 19.04.2026)
ÆGIR- (upptaka frá RVK Noise Fest í R6013, 19.04.2026)
VANITY PRODUCTIONS - (upptaka frá RVK Noise Fest í R6013, 19.04.2026)