18:10
Spegillinn
Nýjar ratsjár gegn smygli og skuggaflota, Finnafjörður og innflytjendamál

Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.

Hvað eiga smyglarar og skuggaflotinn sameiginlegt? Að vilja ekki sjást, til dæmis á ratsjám, og að vera meðal þess sem nýjum tæknibúnaði Landhelgisgæslunnar verður beint gegn. Í sumar verða teknar í notkun fjórar ratsjár sem verða á völdum stöðum þar sem fylgjast á betur með skipaumferð í kringum landið. Ingólfur Bjarni Sigfússon ræðir við Finnboga Jónasson, yfirmann greiningardeildar ríkislögreglustjóra.

Miklar breytingar hafa orðið á verkefni því sem snýr að uppbyggingu stórskipahafnar og iðnaðar við Finnafjörð á Langanesi. Sveitarfélögin Langanesbyggð og Vopnafjarðarhreppur hafa frá árinu 2008 unnið að því að skapa þar tækifæri til atvinnu. Enn er unnið að uppbyggingu við Finnafjörð, eins og Björn S. Lárusson sveitarstjóri Langanesbyggðar rekur í samtali við Ágúst Ólafsson.

Öfugt við flest önnur Evrópuríki, sem leggja áherslu á að hindra för ólöglegra innflytjenda inn í landið og koma þeim sem þar eru úr landi, hyggjast Spánverjar veita rúmlega hálfri milljón innflytjenda sem þar eru án tilskilinna leyfa dvalar- og atvinnuleyfi til eins árs. Þetta er allt í senn skynsamlegt, gagnlegt og siðferðislega rétt, segir forsætisráðherrann. Ævar Örn Jósepsson segir frá.

Umsjón: Ævar Örn Jósepsson

Tæknimaður: Mark Eldred

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 20 mín.
,