18:00
Kvöldfréttir útvarps
Stefnt að afgangi hjá ríkissjóði í fjármálaáætlun, efnahagsaðgerðir á Spáni og lægðagangur

Fréttir

Fréttir

Ríkisstarfsmönnum verður fækkað um eitt prósent á næsta ári og ríkissjóður rekinn með eins milljarðs króna afgangi samkvæmt fjármálaáætlun næstu fimm ára sem kynnt var síðdegis

Spænska þingið samþykkti í dag að lækka virðisaukaskatt á eldsneyti og gas auk þess sem bændur og fleiri fá beinan stuðning. Þetta er gert til að bregðast við áhrifum stríðsins í Mið-Austurlöndum.

Ófært er um Öxnadalsheiði, Mývatns- og Möðrudalsöræfi og milli Kvískerja og Djúpavogs. Veðurviðvörun fellur brátt úr gildi en önnur tekur við í nótt.

Breski tónlistarmaðurinn Paul McCartney segist aldrei hafa litið jafnt djúpt í eigin barm og á nýrri plötu sem kemur út í maílok. Fyrsta lagið, minningaróður um æskuárin í Liverpool, kom út í dag.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 10 mín.
,