16:05
Víðsjá
Unnur Ösp á Leiklistardaginn, Dáland og Afbygging stóriðju í Helguvík

Þáttur fyrir áhugafólk um listir og menningu. Ljósi varpað á það sem efst er á baugi hverju sinni, menningin nær og fjær skoðuð frá ólíkum sjónarhornum og skapandi miðlar settir undir smásjána.

Umsjón: Halla Harðardóttir og Melkorka Ólafsdóttir.

Unnur Ösp Stefánsdóttir, leikkona, leikstjóri og leikhöfundur flytur ávarp sitt í tilefni af alþjóðlega leiklistardeginum, sem haldinn er hátíðlegur á morgun, þann 27. mars. Við hugum líka að tónlist Purcell og samlanda hans, John Dowland og tónleikum þriggja tónlistarmanna undir yfirskriftinni Dáland, sem fara fram í Mengi annað kvöld

Listamannateymið Libia & Ólafur Ólafsson opnuðu í febrúar 2024 sýninguna, Afbygging stóriðju í Helguvík. Við rifjum uppfjöllun um sýningina, þar sem svar við spurningu listamannanna og samstarfsaðila þeirra er komið, niðurrif Kísilverksmiðjunnar er hafið.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 55 mín.
,