07:03
Morgunútvarpið
Heilbrigðisráðherra,Slapp,karlkyns brotaþolar og skyggnilýsing í beinni

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.

Slapp er nýr íslenskur samfélagsmiðill sem á að takast á við gervimenni og auglýsingaflóð sem einkenna aðra miðla. Slapp er búinn til af æskuvinum sem fannst samfélagsmiðlar sem fólk notar í dag sífellt minna spennandi. Kristján Leó Guðmundsson, einn af stofnendum Slapps, kom til okkar í Morgunútvarpið.

Heilbrigðisráðherra vill skera upp herör gegn offitu og meðhöndla hana eins og langvinnan sjúkdóm. Skoða á óhollustuskatt, endurskoða greiðsluþátttöku í þyngdarstjórnunarlyfjum og fjölga meðferðarúrræðum. Alma Möller kom til okkar og ræddi tillögurnar og heilsu þjóðarinnar.

Umfjöllun Kveiks um menn sem voru sendir í fóstur á Bakkakot sem ungir drengir og segjast hafa verið beittir grófu ofbeldi þar hélt áfram í gærkvöldi. Það er ekki algengt að karlmenn tjái sig um kynferðisofbeldi en til að ræða það við okkur kom Hjálmar Gunnar Sigmarsson hjá Stígamótum. Samtökin bjóða upp á ráðgjöf fyrir karlkyns brotaþola og það er algengt að fleiri hafi samband þegar svona mál koma upp.

Breski miðillinn Darren Orlowski kemur til landsins og verður með skyggnilýsingu í Gamla bíói 19. Febrúar næstkomandi. Orlowski er virtur á sínu sviði og hlaut styrk frá Arthur Findley College, sem er afar virtur á sínu sviði. Rósa Björk Hauksdóttir stendur fyrir komu miðilsins til landsins og hún kíkti til okkar, ásamt Darren Orlowski, og í heimsókninni heimsótti gömul kona Þráin að handan.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 1 klst. 50 mín.
,