07:03
Morgunvaktin
Neyslustýring, dönsk málefni og eiturbyrlunarsaga rússneskra ráðamanna

Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.

Stjórnvöld ætla að skera upp herör gegn offitu, drög að áætlun þar um er til umsagnar í samráðsgátt. Anna Sigríður Ólafsdóttir, prófessor í næringarfræði, hefur lengi barist fyrir hollari neysluvenjum landsmanna. Hún ræddi málið á Morgunvaktinni.

Borgþór Arngrímsson sagði frá dönskum tíðindum og Vera Illugadóttir rakti aldarlanga eiturbyrlunarsögu rússneskra ráðamanna.

Tónlist:

Piano Sonata No. 6 in E minor, D566 : II: Allegretto - Víkingur Heiðar Ólafsson,

You can't always get what you want - Rolling Stones,

Bláu augun þín - Hljómar,

Garún - Mannakorn.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 1 klst. 55 mín.
,