07:03
Morgunútvarpið
Þunglyndar inniplöntur, Eurovision og stafrænt ofbeldi

Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál.

Þjást plönturnar þínar af skammdegisþunglyndi? Það er þrautinni þyngra að halda inniplöntum líflegum á þessum dimmustu dögum vetrarins. Hvað skal gera? Guðríður Helgadóttir garðyrkjufræðingur gaf okkur sín bestu ráð.

Forseti Alþingis, Þórunn Sveinbjarnardóttir, bað þingið í gær afsökunar á því að hafa sagt „Ég er komin með nóg. Djöfulsins, helvítis, andskotans pakk,“ á leið úr stól forseta á föstudaginn. Nokkuð ljóst er að stemmningin á þinginu var orðin súr. Ef Unnur Ýr Konráðsdóttir væri mannauðsstjóri Alþingis, hvernig myndi hún tækla andann? Hún kom til okkar.

Í síðustu viku var ljóst að Ísrael fær að taka þátt í Eurovision-keppninni í Austurríki á næsta ári. Þegar það var ljóst tilkynntu Belgía, Holland, Írland, Spánn og Slóvenía að þau myndu ekki taka þátt að óbreyttu. Í dag tekur stjórn RÚV til umfjöllunar hvort Ísland verði á meðal þátttakenda í keppninni en stjórnin samþykkti í síðustu viku að beina þeim tilmælum til stjórnar Sambands evrópskra sjónvarpsstöðva, EBU, að vísa Ísrael úr keppninni næsta vor. En hvað nú? Hver er framtíð keppninnar í augum aðdáenda hennar? Viktor Orri Valgarðsson, stjórnmálafræðingur og Eurovision-aðdáandi, kíkti í spjall.

Stafrænt ofbeldi hefur opnað gerendum áður óþekktar leiðir til að áreita, stjórna og þagga niður í konum. Þetta kemur fram í pistli sem Guðný S. Bjarnadóttir birti á Vísi í gær undir fyrirsögninni ger­endur fá frípassa í of­beldis­málum. Í pistlinum sagði hún að meirihluti íslenskra kvenna sem verði fyrir stafrænu ofbeldi tilkynni það ekki vegna vantrausts á kerfinu. Guðný kom í Morgunútvarpið og fór yfir stöðuna.

Aðgengilegt til: Rennur ekki út.
Lengd: 1 klst. 52 mín.
,