18:00
Kvöldfréttir
Stýrivextir, vopnahlésviðræður, Bátavogsmálið og skimanir

Fréttir

Kvöldfréttir útvarps

Ríkisstjórnin var á Alþingi í dag sökuð um óstjórn og stefnuleysi í efnahagsmálum þegar rætt var um þá ákvörðun peningstefnunefndar Seðlabankans að halda stýrivöxtum óbreyttum.

Viðræður um vopnahlé á Gaza standa enn yfir í Egyptalandi. Stjórnandi bandarísku leyniþjónustunnar CIA reyndi að liðka fyrir þeim á fundi með forsætisráðherra Ísraels í dag.

Ekki er útilokað að fleira en ofbeldi geti skýrt andlát karlmanns í Bátavogi í Reykjavík síðasta haust.

Hratt hefur dregið úr hraunflæði við Sundhnúksgíga og mælingar benda til þess að það hafi verið um eða innan við einn rúmmetri á sekúndu síðustu vikur.

Stjórnvöld bera ábyrgð á að ryðja úr vegi hindrunum fyrir að konur mæti betur í skimun fyrir brjósta- og leghálskrabbameini - en dregið hefur úr mætingu undanfarin ár. Þetta segir framkvæmdastjóri Krabbameinsfélagsins.

Umsjón: Ævar Örn Jósepsson og Ásrún Brynja Ingvarsdóttir

Tæknimaður: Magnús Þorsteinn Magnússon

Stjórn útsendingar: Margrét Júlía Ingimarsdóttir

Var aðgengilegt til 08. maí 2025.
Lengd: 10 mín.
,